Morgunblaðið - 30.04.1985, Side 62

Morgunblaðið - 30.04.1985, Side 62
62 MORGUNBLAÐH), ÞRIÐJUDAGUR 30. APRfL 1985 nmnmn tl9>1 Uniwml ^rn Syndicof ÍOA Jf/Anna5 hv/ort \Jar þetto. Ofurrnennu*" eóa pQbbi aé> detka oían af þa/cinu.'' er... ... að a/ca gœtilega í bílnum hennar. TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved ®1985 Los Angeles Tlmes Syndtcate I*ú ættir að standa á fætur og bjóða stúlkunni sætid þitt! HÖGNI HREKKVÍSI „ÍG HELP ÉS LATI MÚ.R N/E3JA TKÉTÁL0E'lt'(JNA " Rás 2 alltaf með sömu lögin Lesandi af Landsbyggðinni skrif- ar: Kæri Velvakandi: Mig langar til að tjá mig nokkuð um rásirnar í Ríkisútvarpinu. Þegar rás 2 byrjar á morgnana klukkan 10.00 þá er eins og að út- sendingarstyrkurinn minnki á rás 1, a.m.k. ber meira á truflunum. Einnig finnst mér allt of mikið af því sama á rás 2, t.d. um miðjan dag á virkum dögum. Þátturinn hjá Svavari Gests er hins vegar með þeim betri og finnst mér að fleiri ættu að feta í hans spor. Rás 2 er ágæt að ýmsu leyti, en samt finnst mér sömu lögin spiluð upp aftur og aftur, viku eftir viku. Eins vil ég benda á að til eru fleiri aldurshópar í landinu en ungl- ingar og gætu þeir jafnvel valið vinsældalista eldri laga — fjög- urra til sex ára gömul lög en ekki alltaf Wham og Duran Duran. Ég er alveg búinn að fá mig fullsadd- an af þessum sömu lögum svo að nú er ég annaðhvort farinn að skipta yfir á rás 1 eða læt spólu í tækið. Eg vona að fleiri láti frá sér heyra í þessu sambandi og ég þakka Velvakanda fyrir birting- una. Af hverju ekki Kanasjónvarpið? JEK skrifar: .. __ ______ BréfriUri spyr af hverju við þurfum alluf að líU svona langt yfir skammt I sjónvarpsmálum, þegar Keflavíkursjónvarpið er svo að segja á bæjarhlaðinu. Kæri Velvakandi: í allri þessari umræðu um afnot af fleiri sjónvarpsrásum kemur ávallt babb í bátinn vegna kostn- aðarhliðarinnar. Það hefur verið talað um ýmsa möguleika, til dæmis sjón- varpshnetti, Nordsat, Telex og fleiri. Þessar umræður um mögu- leikana eru allar góðar og gildar. En af hverju þurfum við ávallt að líta svona langt yfir skammt, þeg- ar það er sjónvarpsstöð rétt við bæjardyrnar, nánar tiltekið á Keflavíkurflugvelli? Af hverju hefur sá möguleiki ekki verið ræddur? Er það einhver lítillækk- un að kanna þann möguleika? Við vitum að eitt hús hér í Reykjavík hefur afnot af dagskrá Keflavík- ursjónvarpsins — Laufásvegur 1. Fyrir nokkrum vikum kom frétt í einu blaðanna um að ætlunin væri að senda dagskrána áfram til ratsjárstöðvarinnar við Höfn í Hornafirði. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að við íslendingar fáum að sjá þessa dagskrá og þarf ekki að kosta okkur mikið. Við höfðum einu sinni afnot af Keflavíkursjónvarpinu þar til eft- ir 1970, að lokað var fyrir það vegna fáviskulegrar rökfærslu um slæm áhrif á ungdóminn á þeim tíma. Ef við fsleningar erum svona áhrifagjarnir, erum við þá eitthvað betur settir með evrópsk- an heilahristing en með einhvern annan menningarrembing ann- arra þjóða? Ég get ekki greint neinn varan- legan skaða á því fólki sem hafði þann möguleika að horfa á Kana- sjónvarpið á þeim tima er það stóð okkur til boða nema síður sé. Það fólk, sem átti sjónvarp þá, er mjög vel að sér í enskri tungu svo eitthvað sé nefnt. Ekki er það skaðlegt að mati ráðamanna þar sem enskan er skyldunám í grunn- skólum landsins. Að lokum vil ég skora á ráðamenn þessa lands að athuga þennan möguleika með hagkvæmnissjónarmið í huga. Sleppum öllum pólitískum vanga- veltum. Þessir hringdu . Dúlla Verslunareigandi Dúllu hringdi: í sambandi við þær kvartanir sem borist hafa Velvakanda að undanförnu vil ég taka fram að símanúmer mitt heima hefur verið skrifað á hverja einustu nótu sem gefin hefur verið út vegna fataumboðssölu. Hingað til hefur síminn hjá mér ekki verið bilaður og bendi ég því fólki sem vill hafa tal af mér að hringja í mig. Koligátan Til Velvakanda. Síðastliðinn fimmtudag birtist hér á síðunni bréf frá Douglas A. Brotchie um spurningaþáttinn Kollgátuna sem ég annaðist um- sjón á. Ég þakka hlý orð i minn garð og annarra sem að þættin- um stóðu, en vegna orða Douglas um upphafsstefið vil ég taka fram eftirfarandi: Vísast er það rétt að stefið sé gamalt, en sú útgáfa sem við notuðum í Kollgátuna er jafnt á hljómplötum og I nótnaheftum kennd við Georg Friedrich Hándel. Því má bæta við að stef- ið er tekið af hljómplötu með tónlistinni úr kvikmyndinni Barry Lyndon eftir Stanley Ku- brick og mun hafa verið leikin inn á band sérstaklega fyrir þá mynd. Virðingarfyllst, Illugi Jökulsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.