Morgunblaðið - 12.05.1985, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNKUDAGUR12. MAÍ 1985
Attræður.
Alexander Guðjóns
son vélstjóri
Alexander Guðjónsson fæddist
að Geitagili í Rauðasandshreppi
12. maí 1905, sonur hjónanna er
þar bjuggu, Guðjóns Bjarnasonar
og Guðbjargar Brynjólfsdóttur,
bæði ættuð úr Árnessýslu og
fluttu um aldamótin til Patreks-
fjarðar og þaðan að Geitagili í Ör-
lygshöfn.
Tvítugur að aldri kemur Alex-
ander til Hafnarfjarðar og fer í
iðnnám. Fimm árum síðar hefur
hann lokið bæði járnsmíðanámi og
* prófi frá Vélstjóraskóla Islands. A
því ári, 1930, giftist hann heitmey
sinni Sigrúnu Júlíu Sigurjónsdótt-
ur, sem fædd er og uppalin í Hafn-
arfirði. Eignuðust þau þrjár
myndarlegar dætur allar löngu
giftar og eiga þær bæði börn og
barnabörn. Einn son eignuðust
þau en hann dó nýfæddur.
Eftir að hafa lokið vélstjóra-
námi var Alexander tvö ár vél-
stjóri á togara og hófst svo handa
ásamt fleiri hafnfirskum sjó-
mönnum um kaup á togaranum
Haukanesi og var hann jafnframt
vélstjóri á skipinu. Togarinn var
gerður út hér í Hafnarfirði með
samvinnusniði og var útgerðin
' * stofnuö til styrktar Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar. Átti Álexander
sæti í stjórn fyrirtækisins allt til
ársins 1937, er hann gerðist þá
einn af stofnendum Raftækja-
verksmiðju Hafnarfjarðar. Var
það raunar í framhaldi af því að
Sogsvirkjun tók til starfa.
Árið 1941 stofnaði Alexander
ásamt tveimur öðrum mönnum
Blikksmíðaverkstæðið Dverga-
stein og veitti því forstöðu í mörg
ár. Einnig tókst hann á við fleiri
— - verkefni svo sem bílaviðgerðir.
Sem bóndasonur, nemi og tog-
arasjómaður kynntist Alexander
kjörum alþýðunnar. Réttlætis-
kennd hans og samúð með þeim
sem heyja erfiða lifsbaráttu skip-
aði honum snemma í vinstri arm
stjórnmálanna.
Hann gerðist einn af stofnend-
um Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins og var einn af
forystumönnum Sósíalistafélags
Hafnarfjarðar. Gegndi hann
margvíslegum trúnaðarstörfum
fyrir félagið m.a. á þeim árum er
Sósíalistaflokkurinn var i meiri-
hlutastjórn Hafnarfjarðarbæjar
ásamt Álþýðuflokknum.
Alexander nýtur trausts og
virðingar þeirra er kynnast hon-
um enda hafa honum verið falin
ýmis trúnaðarstörf, svo sem
stjórnarforysta í Barðstrendinga-
félaginu, Stangaveiðifélagi Hafn-
arfjarðar og margt fleira.
Nú á áttatíu ára afmælinu vil ég
færa Alexander kærar þakkir
fyrir störf hans og ágætt samstarf
öll þau 19 ár sem hann vann hjá
mér á skrifstofunni í Bátalóni hf.
Hógvær framkoma hans og góð
samvinna við alla, bæði starfs-
menn og viðskiptavini, var
traustvekjandi og hafði mjög góð
áhrif bæði innávið og útávið hjá
fyrirtækinu.
Þetta má eflaust meðal annars
þakka þeirri miklu reynslu af fé-
lagsstörfum, sem hann var mikið
búinn að vinna við áður en hann
fór að starfa í Bátalóni hf. og þá
orðinn nokkuð fullorðinn. Þessi
starfsreynsla hans á sviði félags-
mála var mér mikils virði, því ég
hafði lítið sem ekkert af félags-
starfi að segja, þegar ég stofnaði
fyrirtæki mitt með Jóhanni L.
Gíslasyni 1947 og hóf rekstur
Bátasmíðastöðvar Breiðfirðinga
er síðar varð Bátalón hf.
Ég minnist þess að ég kynntist
fyrst Alexander Guðjónssyni all-
mörgum árum áður en hann fór að
vinna með mér á skrifstofunni.
Það var i fyrsta félagsstarfinu
sem ég tók þátt í og eitthvað
reyndi á og varð mér síðan ómet-
anlegur skóli þegar ég fór sjálfur
að reka fyrirtæki. Þessi félags-
málareynsla mín sem mér er
minnisstæð fékkst þegar ég
reynslulaus var kosinn í stjórn og
stuttu síðar formaður í stjórn
Sósíalistafélags Hafnarfjarðar.
Þá voru m.a. til umfjöllunar
verkalýðsmál, stjórn bæjarins
með Álþýðuflokknum og stjórn
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar þar
sem Kristján heitinn Ándrésson,
skarpgreindur maður, var annar
forstjórinn.
Þarna í forystu félagsins taldi
ég vera ákaflega vel gefið fólk og
sumir háskólalærðir og litu á
mannlífið með ótrúlegu raunsæi. í
þessum félagsskap fékk ég ómet-
anlega reynslu, líka vegna þess
hvað mér var þrýst fram f félag-
inu, meir en líklega hefði orðið í
nokkru öðru félagi sem ég hafði
tekið þátt í hér í Hafnarfirði og
þessi reynsla var allt öðruvísi en
draga má ályktun af á síðum
Morgunblaðsins.
Þegar mesti framleiðslu- og
annatími Bátalóns hf. gekk yfir og
hafln var smiði á skipum fyrir er-
lendan markað, var Alexander
starfandi þar á skrifstofunni. Þá
störfuðu hjá fyrirtækinu um 70
manns þegar flest var, en það var
á árunum upp úr 1970. Segja má
að ekki sæist þá fram úr verkefn-
um og pantanir voru minnst hálft
annað ár fram í tímann.
Þrátt fyrir mikið álag á skrif-
stofunni veit ég að Alexander hef-
ur líkað vel að starfa við þá efl-
ingu skipaiðnaðarins sem þá fór
fram. Ég veit að Alexander minn-
ist þessa tímabils þegar fram-
leiðslan og uppbygging Bátalóns
hf. var óhindruð, áður en erlenda
togarabylgjan skall yfir, með mik-
illi ánægju, þótt heilsan bagaði
hann nokkuð, því að reisn sinni í
starfi hélt hann öll árin sem hann
starfaði með mér.
Fyrir starf hans, frábæra sam-
viskusemi og ágætt samstarf færi
ég honum kærar þakkir á áttatíu
ára afmælinu. Konu hans, dætr-
um, barnabörnum og öllum hans
nánustu óska ég til hamingju með
afmælisbarnið.
Þorbergur Ólafsson
Alexander verður að heiman á
afmælisdaginn.
MAZDA 626 er margfaldur uerðlaunabíll og metsölubíll á Islandi sem annars staðar.
Werð: 626 GLA Coupe 2.0L mA/ökvastýri. Kr. 502.000 Til öryrHja ca Hr. 396.000
BILABORG HF
ísrYliAchAf 1 iim, Sílbúó
NÝVAXIAKIÖR
Innlán Mafnvextir Ársávöxtun Útlán
fratl.maí
1985
SparisjóösbæKur...........................22.0%
Sparlvelturelknlngar......................25.0%
SparireiKnlngar meö 3ja mán. uppsögn
..........................................25.0%
Sparireikningar meö 6. mán uppsögn
..........................................28.5%
Innlánsskirteini 7.5% +
alm. sparisjóösvextir
Hávaxtareíkningar.........................22.0% — 30.5%
(verðtryggöur meö vöxtum miöað viö kjör 3ja
og 6 mán. vísitölubundinna reikninga hjá
bankanum).
Verötryggöir sparireikningar:
3ja mán. binding..........................1.0% (x)
6 mán binding.............................3.5% (x)
Tékkareiknlngar.
^ Ávísanareikningar..........................9.0%
Hlaupareikningar..........................9.0%
Innlendir gjaldeyrisreikningar:
, innst. i USD............................... 7.5%
y Innst. ÍOBF................................11.5%
| innst. í DCM...............................4.5%
innst. í DKK..............................9.0%
22.0%
25.0%
26.56%
30.53%
32.83%
Víxlar (forvextir).........................30.0%
Viösk. víxlar (forvextir)..................31.0%
Hlaupareikningar...........................31.0% (xx)
Skuldabréfalán.............................33.0% (xxx)
Viösk. skuldabréf..........................34.0% (xxx)
Lán meö verötryggingu:
a) lánstími allt aö 2'h ár.................4.0%
b) lánstími minnst 2‘h ár..................5.0%
(x) sérstakar veröbætur 1.83% á mánuöi (22.0% á ári).
(xx) grunnvextir 13.0%
(xxx) grunnvextir 9.0%
- fw
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn