Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 41

Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1985 41 Krabbamein: Hvítar konur hafa mestu lífslíkurnar AtUnla, Georgiu, 10. mni. AP. ATHUGANIR, sem stodiö hafa í átto ár, leiöa í Ijós, að þeir, sem líklegast- ir eru til að komast yfir krabbamein, eru hvítir menn og þá einkum kon- ur. { könnuninni, sem Bandaríska krabbameinsstofnunin annaðist, voru athugaðir 400.000 krabba- meinssjúklingar á árunum 1973—79 og var fylgst með hvern- ig þeim reiddi af fram yfir 1981. Af þessum hópi voru 350.302 hvítir menn, 8.622 af suður-amerískum ættum, 30.253 svertingjar, 1.264 af indíánaættum, 3.048 af kínversk- um ættum, 5.030 af japönskum, 2.355 af filipískum og 1.878 ættað- ir frá Hawaiieyjum. Vísindamennirnir höfðu það í huga, að sá væri búinn að komast yfir krabbameinið, sem lifað hefði i fimm ár án þess, að meinið tæki sig upp aftur, og var niðurstaðan sú, að hvítar konur hafa mestar lífslikurnar. Standast þær sjúk- dóminn betur en hvítir karlar og það sama á raunar við um svartar konur, sern eru sterkari en svartir karlar. Hvítir karlar koma svo aftur betur út en svartir karlar hvað varðar flestar tegundir krabbameins. Það krabbamein, sem auðveldast er viðureignar, er krabbamein í skjaldkirtli en af því læknast 91% allra sjúklinga, en viðsjárverðast er krabbamein í vélinda, lifur og brisi en af því læknast aðeins 9% sjúklinga. Myndlistar- sýning í Gerðubergi SÝNING á verkum nemenda Myndlista- og handíðaskóla ís- lands verður opnuð í Gerðubergi í dag, sunnudag, kl. 16. Sýningin er haldin á vegum SALÍ, samstarfs listanema á Islandi. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 16 til 22 og stendur til 17. júní. Aðgang- ur er ókeypis og athygli er vakin á því að leiðir 12 og 13 stansa fyrir framan Gerðuberg. (FréiUtilkjHHÍng) Ert þú umsjónarmaður sparibauksins á vinnustaðnum, fjárhaldsmaður, fjármálastjóri, sparifjáreigandi, eða þarft þú að varðveita fé á góðan og öruggan hátt? ¥íd gerum þér sérstakt tílboð: Reynist meðalinnstæða á Bónusreikningi, á árinu 1985, 500.000 kr. eða hærri verður 2% Vaxtabónus lagður við þann Bónusreikning. Vaxtabónus reiknast af samanlögðum áunnum verðbótum og vöxtum á árinu 1985 og verður lagður við þá Bónusreikninga, sem uppfylla ofangreind skilyrði, þann 20. jan. 1986. Tilboðið gildir fyrir alla þá sem eiga nú fé á Bónusreikningi eða stofna Bónusreikning fyrir 15. maí nk. Ársávöxtun á Bónusreikningi jan. - mars 1985 var = Með Vaxtabónus hefði hún orðið =

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.