Morgunblaðið - 12.05.1985, Síða 46
46 MORGTWfÉLAÐIÐ, SUNNUDAÖUR 12. MAÍ 1985
SVIPMYNDIR Á SUNNUDEGI
í fótspor
frú Jeane
Kirkpatrick
VERNON A. WALTERS, sem öldungadeild Bandaríkjaþings hefur
samþykkt að mæla með að skipaður verði sendiherra hjá Sameinuðu
þjóðunum, er hermaður, hefur oft verið sáttasemjari bandarískra
forseta í erfiðum deilum, starfaði mikið í leyniþjónustunni og er
ágætur tungumálamaður.
Walters hershöfðingi tekur við
af frú Jeane Kirkpatrick og skoð-
anir þeirra í heimsmálunum fara
mjög saman. Hann hefur lengi
viljað kóróna feril sinn með því
að gegna þessu starfi.
Hann hefur látið þau orð falla
að hann ætli sér ekki að vera að-
eins „sendisveinn" í nýja starf-
inu. Þessum orðum hans var
greinilega beint til stjórnarer-
indreka, sem hafa lagzt gegn til-
nefningu hans á þeirri forsendu
að hann sé „segulbandstæki i
mannsmynd" — sérhæfður í að
afhenda leynilegar orðsendingar
og taka við leyniorðsendingum.
Walters hershöfðingi, sem er
68 ára að aldri, hefur mikla
reynslu að baki og hefur staðið af
sér mörg áföll um dagana. Um
hann hefur verið sagt að hann
hafi verið alls staðar, hitt alla
sem máli skipti og séð nánast
allt.
LEYNISTÖRF
Hann var aðstoðarmaður
Marks Clark hershöfðingja þegar
Róm var frelsuð. Hann var að-
stoðarmaður Harrys S. Truman
forseta og var hjá forsetanum
þegar hann kallaði Douglas Mac-
Arthur hershöfðingja fyrir sig
vegna óhlýðni hans í Kóreustríð-
inu.
Nokkrum árum síðar var hann
viðriðinn tilraunir CIA og brezku
leyniþjónustunnar til þess að
steypa Mohammed Mossadeq for-
sætisráðherra af stóli þegar olíu-
deila Breta og írana stóð sem
hæst.
Hann starfaði fyrir Eisenhow-
er forseta þegar U-2-njósnaflug-
vélin var skotin niður og var með
Richard Nixon varaforseta þegar
múgur grýtti bifreið hans í Ven-
ezúela 1958. Þá þýddi hann
ókvæðisorð, sem Nixon lét falla,
fyrir múginn.
Walters var viðriðinn Svína-
flóainnrásina skömmu eftir að
Kennedy-stjórnin kom til valda.
Þegar hann starfaði ekki á vegum
stjórnarinnar var hann ráðu-
nautur i hergagna- og olíuiðnað-
inum og efnaðist vel.
Walters hershöfðingi neitar
Víð hlið Nixons (1969)
því sem hefur verið haldið fram
að hann hafi staðið á bak við
herbyltinguna í Brazilíu 1964.
Hann hefur haft náin tengsl við
suður-ameríska herforingja síðan
hann gegndi starfi tengiliðs i
brazilískri herdeild á Ítalíu 1944.
Nixon er gamall verndari og
aðdáandi Walters hershöfðingja
og gerði hann að næstæðsta yfir-
manni CIA í þakklætisskyni fyrir
vel unnin störf og til þess að
leggja áherzlu á að skoðanir
þeirrra færu saman.
WATERGATE
Minnstu munaði að Walters
flæktist í Watergate-hneysklið.
Yfirmaður starfsmannahalds
Hvíta hússins, H.R. Haldeman,
kom að máli við Walters sjö vik-
um eftir að hann tók við starfi
sfnu hjá CIA og bað hann að
stöðva rannsókn alríkislögregl-
unnar FBI á innbrotinu í Wat-
ergate-bygginguna á þeirri for-
sendu að hún mundi skaða hags-
muni CIA f Mexfkó.
Walters ákvað fyrst að láta til
leiðast („það hvarflaði ekki að
mér að Haldeman mundi biðja
mig um að gera eitthvað ólöglegt
og rangt," skrifaði hann f endur-
minningum sfnum).
En hann sá sig um hönd þegar
hann hafði kynnt sér málið betur,
hætti við að láta stöðva rann-
sóknina og hótaði að segja af sér.
Hann sagði ráðunaut Hvfta húss-
ins, John Dean, að rannsóknin
mundi ekki stofna nokkrum hags-
munum CIA i hættu.
Þrátt fyrir þetta eru Walters
og Nixon ennþá góðir vinir.
Þegar Walters var hermála-
fulltrúi í París kom hann í kring
leynifundum þeim sem Henry
Kissinger átti með sendimanni
Norður-Víetnama, Le Duc Tho.
Til þess að halda viðræðunum
leyndum lagði hann eitt sinn hald
á einkaflugvél Georges Pompidou
forseta.
MÁLAMAÐUR
Tungumálaþekking Walters er
annáluð og hefur oft komið hon-
um að góðum notum. Hann talar
a.m.k. átta tungumál reiprenn-
andi.
William Colby, fv. jrfirmaður
CIA, segir að hann „gæti sett sig
f samband við týndan Eskimóa og
lært tungumál hans á leiðinni til
hans í leitarflugvél".
Walters hershöfðingi fæddist í
New York og faðir hans var
brezkur sölumaður tryggingafyr-
irtækis. Hann dvaldist f Englandi
og Frakklandi á bernskuárum
sínum og gekk f kaþólska skóla,
en neyddist til að hætta námi af
olivetti
þjónustan
hefur opnað
í nýju hús-
næði:
HANS ÁRNASON
UMBOÐ & ÞJÓNUSTA
Laugaveg 178-105 Reykjavík
© 3 13 12
IGNIS
H: 133. Br.: 55 D: 60.
270 lítr. m/frystihólfl.
Klfl
utmmu'imm
Mtjmíimíi
Kr. 18.800
Rafiðjan sf.,
Ármúla 8,108 Raykjavik,
■ími 91-19294.