Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 62

Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 62
62 MÖRG'UNfeíAÖIÐ, SUNNUDAGUK 12. MAÍ 1985 1 ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON Fiskeldi á íslandi: „Villihestur — á leið í góða haga“ • Heimildir, sem telja verður örugg- ar, herma, að Jén Helgason, land- búnaðarráðherra, bafi í handraða fullsmíðuð frumvarpsdrög til laga um fiskeldi. • Talið er að ágreiningur sé milli landbúnaðar- og sjávarútvegsráðu- neyta um forsjá í fiskeldismálum. Forsmtisráðherra hefur gripið inn í málið og skipað nefnd, í samráði við þessi tvö ráðuneyti, sem samræma á sjónarmið og ganga frá endanlegri frumvarpsgerð um þetta efni. • Kjartan Jóhannsson og fieiri þing- menn Alþýðufiokks hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um aðgerð- ir í fiskeldismálum, sem fjallar um fiskeldisnefnd, rannsóknir á fisk- sjúkdómum, fiskeldisstöð ríkisins o.fi. • Stefán Valgeirsson og fleiri þing- menn Framsóknarfiokks flytja til- lögu til þingsályktunar um stefnu- mótun í fiskeldismálum og rann- sóknir og tilraunir í fiskeldi. • Fimm þingmenn: Kjartan Jó- hannsson, Eiður Guðnason, Kristín Halldórsdóttir, Ellert B. Schram og Geir Gunnarsson fiytja tillögu til þingsályktunar um að sjávarútvegs- ráðuneytið fari með fiskiræktarmál en ekki landbúnaðarráðuneytið, eins og nú er. • Guðmundur Einarsson, Bandalagi jafnaöarmanna, bar og nýlega fram á Alþingi fyrirspurn til Jóns Helga- sonar, íandbúnaðarráðherra, varð- andi þessi mál, sem ráðherra svar- aði, og í kjöifar fór hressileg um- ræða, sem lítillega verður vikið að í þingbréfi þessu. Ráðuneyti líkt viÖ póstlúgu og símaklefa Hafbeit og fiskeldi hafa reynzt mörgum þjóðum drjúg búbót, auk- ið á fjölbreytni í atvinnulífi og eflt útflutning og öflun gjaldeyris. Frændur okkar Norðmenn hafa náð langt í þessu efni og sama má segja um fleiri. Nokkrir framsýnir athafnamenn hér á landi hafa um langt árbil unnið farsæl braut- ryðjendastörf á þessu sviði og lagt grunn að því, sem getur orðið nægtabrunnur í íslenzkum þjóðar- búskap. Guðmundur Einarsson (BJ) hélt því fram á Alþingi í vikunni að Jón Helgason, landbúnaðarráð- herra, hafi þegar i höndum full- smíðuð frumvarpsdrög til laga um fiskeldi, sem miðuðu að því að færa fjötra ríkisforsjár á starf- semina. Hann líkti framtaksmönnum i fiskeldi við „villihest utan girð- ingar, sem fer greitt, og menn gruni jafnvel að sé á leið í góða haga; svo geti allt eins farið að menn græddu á fiskeldinu. Og þá er náttúrulega um að gera að koma böndum á hestinn, færa hann inn í framsóknardilkinn, til að hafa síðan í fullu tré við hann.“ „Ætlar landbúnaðarráðuneytið að búa samskonar umgjörð um fiskeldi," spurði þingmaðurinn, „og því hefur tekizt að búa til um landbúnaðinn?" „Því hefur tekizt að gera bændur að bónbjargar- mönnum ... sem eiga allt undir því, hvernig kjaftaklúbbarnir I Stéttarsambandi bænda og Bún- aðarfélagi reikna meðaltölin sín ... Það hefur sýnt sig að Stétt- arsamband bænda og Búnaðar- sambandið eru hið raunverulega landbúnaðarráðuneyti í þessu landi. Landbúnaðarráðuneytið sjálft er ekki annað en póstlúga, eða í bezta falli símklefi, sem tek- ur við fyrirskipunum frá þessum háu herrum." „Það er nauðsynlegt,“ sagði Guðmundur, „að vita um áætlanir ráðuneytisins, samkvæmt þessu frumvarpi um fiskeldi. Það er nauðsynlegt vegna þess að ég tel að þetta landbúnaðarráðuneyti hafi reynzt landbúnaðinum álíka vel og sláturhús reynast lömbun- um á haustin." Hér tekur þingmaðurinn stórt upp í sig, sennilega of stórt. Ekki er þó ræða hans öll út í hött. óhjákvæmilegt er, þegar svo al- varleg ásökun er borin fram af ábyrgum aðila á sjálfri löggjafar- samkomu þjóðarinnar, að viðkom- andi ráðuneyti geri almenningi heiðarlega, málefnalega grein fyrir gangi mála. Við lifum nú einu sinni á upplýsingaöld. Viðbrögð ráðherra Jón Helgason, landbúnaðarráð- herra, sagði m.a.: „Að þessu verki var unnið í vetur og drög að frum- varpi vóru mótuð á vegum ráðu- neytisins." Ráðherra neitaði því hinsvegar að hugmyndir væru uppi um „gífurlegt bákn“, heldur væri megintilgangurinn með frumvarpinu „að leita eftir sam- starfi allra þeirra aðila í þjóðfé- laginu, sem geti stutt að þessum málum“. Ráðherra gat þess að Veiði- málastofnun færi með fram- kvæmd laga um lax- og silungs- veiði. Auk þess stæði ríkið að lax- eldisstöð I Kollafirði, þ.e. tilrauna- starfi á þessu sviði. Sett hafi verið á fót fiskeldisbraut við bænda- skólann að Hólum. Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins búi yfir þekkingu á kynbótum vatnafiska. Dýralæknar sinni fisksjúkdómum og sjúkdómavörnum. Allir fram- angreindir aðilar heyri undir landbúnaðarráðuneytið. Aðilar utan þess sviðs, sem landbúnaðarráðuneytið spannar, hafi ekki síður hagsmuni og þekk- ingu á þessum vettvangi. Hann nefndi Hafrannsóknastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Samtök fiskeldis- og hafbeitar- stöðva, sem hafi öðlazt mikla reynslu á þessu sviði. Vegna alls þessa hafi forsætis- ráðherra ákveðið að skipa nefnd „með aðild frá landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytum til þess að ljúka við frágang þessa frum- varps...“. Landbúnaðarráðherra kvaðst og hafa ákveðið að kalla saman til fundar alla þá aðila, sem þessi mál varða og tengsl hafi við landbúnaðarráðuneytið, til undirbúnings þessu samstarfi. Guðmundur Einarsson, fyrir- spyrjandi, var ekki ánægður með svör landbúnaðarráðherra. Hann spurði efnislega, hvort rétt væri að ráðherra hafi fullsmíðað frum- varp í höndum, sem geri ráð fyrir: 1) að leyfi landbúnaðarráðherra þyrfti til fiskeldis, 2) að landbún- aðarráðherra eigi að skipa fiskeld- isráð til fjögurra ára í senn. Hann spurði ennfremur, hvort ráðherra hefði í hyggja að skipa sérstaka fisksjúkdómanefnd, setja sérstök lög um slátrun laxfiska, hvort ráð- herra ætlaði sér það vald að stað- festa samþykktir frjálsra samtaka um fiskeldis- og hafbeitarstöðvar og leggja til að mynduð verði söl- usamtök á afurðum fiskeldis sem hafi einokun á sölu afurða erlend- is. Við þessum spurningum fengust ekki hrein svör. Ráðherra sagði hinsvegar: „Ég held, að það hafi engar hugmyndir verið uppi um það í landbúnaðarráðuneytinu að fara að leggja einhverja fjötra á þessa starfsemi.“ Fimm hundruö eldisstöövar í Noregi Norðmenn, Skotar og Færey- ingar hafa þegar töluverðan hag af fiskeldi og hafbeit. Norska ríkið hefur lagt fram mikla fjármuni til rannsókna og tilrauna í þessari atvinnugrein. í Noregi munu nú starfa rúm- lega 500 eldisstöðvar og veita á þriðja þúsund manns atvinnu. Gert er ráð fyrir því að fiskeldis- framleiðsla Norðmanna verði 40 þúsund tonn 1985 og 55 þúsund BAÐHÚSVK) SAMSTARFSAÐILAR ÓSKAST Hitaveita Suðurnesja hefur ákveðið að leita eftir samstarfsaðilum um byggingu baðhúss við Bláa lónið í Svartsengi. Ennfremur gæti verið um rekstur eða rekstraraðild að ræða. Þeir aðilar sem áhuga hafa á þessu máli tilkynni það til Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, 260 Njarðvík, fyrir 1. júní 1985. HITAVEITA SUÐURNESJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.