Morgunblaðið - 12.05.1985, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAt 1985
6±
FRAMKVÆMDIR KRAFTTAKS SF.
Hjólaskófla mokar í vörubfl í útskoti í aðkotnugöngum. Mslt fyrir borholum fyrir sprengihleóslur við enda ganganna — „stafninn" eins og þeir
Krafttaksmenn nefna það.
VIÐ BLÖNDUVIRKJUN
Fylgst með „vinnuhring“ í neðanjarðargöngum og rætt
við Ellert Skúlason, annan aðalstjórnanda Krafttaks sf.
Moreunblaðift/Árni Sæberg
Ellert Skúlason (Lv.) og Björn Johansen innst í aðkomugöngunum — vinstra megin við þá má sjá
grjóthauginn sem losnað hefur við síðustu sprengingu.
Við Blönduvirkjun hafa í
vetur staðið yfir miklar
framkvæmdir á vegum
Krafttaks sf. við gerð
undirganga að stöðvarhúsi virkj-
unarinnar. Gerð hafa verið rúm-
lega 800 metra löng aðkomugöng
inn í fellið vestan Blöndu og er nú
hafist handa við að grafa út sjálft
stöðvarhúsið sem verður við enda
aðkomuganganna. Verður stöðv-
arhúsið þrjátíu metrar á hæð en
sextíu metrar á lengd þegar það
hefur verið grafið út. Þarna í jarð-
göngunum, um 250 metrum undir
jarðaryfirborði eru stórvirkar
vinnuvélar á ferð allan sólar-
hringinn að heita má. Hefur
verkið gengið vel því þrátt fyrir að
berglögin hafi reynst lakari þarna
á svæðinu en gert hafði verið ráð
fyrir eru þeir Krafttaksmenn vel á
undan áætlun með verkið.
Fullgerð verður Blönduvirkjun
um 150 Mg eða álíka og Sigöldu-
virkjun. Gerð stíflugarða í Blöndu
og vatnsvegs að inntaksrás hefur
enn ekki verið boðin út.
Krafttak sf.
Er Morgunblaðsmenn voru á
ferð við Blönduvirkjun á dögunum
var vinna þar i fullum gangi. Ell-
ert Skúlason, framkvæmdastjóri
og aðaleigandi Ellert Skúlason hf.
í Ytri-Njarðvík, er annar aðal-
stjórnandi Krafttaks sf. sem
þarna annast framkvæmdir. Blm.
Mbl. ræddi við Ellert um fram-
kvæmdirnar og spurði hann fyrst
útí stofnun Krafttaks sf.
Krafttak sf. varð til í framhaldi
af opnun tilboða Landsvirkjunar
2. maí 1980 í neðanjarðar-
mannvirkið við Blönduvirkjun,
sagði Ellert. Fyrirtækin Jernbet-
on as. í Noregi og Ellert Skúlason
hf. Njarðvík stóðu að stofnun
Krafttaks sf. Það voru alls ellefu
fyrirtæki sem buðu í verkið, en
fjögur þeirra voru í samstarfi við
ísienska verktaka. Tilboð Kraft-
taks sf. hljóðaði uppá um 65 pró-
sent af kostnaðaráætlun Lands-
virkjunar, og var rúmum fimmtíu
milljónum lægra en tvö næstu til-
boð í verkið.
Það mætti vel koma fram að í
útboðsgögnum var þess krafist að
verktakinn sem tæki verkið að sér
hefði tiltekna reynslu í gerð neð-
anjarðarganga. Enginn innlendur
verktaki gat uppfyllt þetta skil-
yrði, og þess vegna gengum við í
samstaf við Jernbeton as. til að
geta boðið í verkið.
í stjórn Krafttaks sf. er einn frá
hvorum eignaraðila, Gunnar
Gundersen fyrir Jernbeton as.,
Oddmund Flönes til vara, og Ell-
ert Skúlason fyrir Ellert Skúlason
hf. Verkefnisstjórar eru Egil
Markussen og Stefán Guðbergs-
son. Staðarstjóri er Per Inge
Hendriksen en aðstoðarmaður
hans er Jomar Berg. Már Svavars-
son er skrifstofustjóri. Aðalverk-
stjórar eru Björn Johannsen og
Hans Langö. Ráðskona hér á
staðnum er Kolbrún Geirsdóttir.
— Hvernig hafa framkvæmd-
irnar gengið fram til þessa?
Verkið hefur gengið vel og betur
en við höfðum gert ráð fyrir. Við
hófum verkið 1. október í haust en
þá hafði Landsvirkjun sett upp
búðirnar hérna og grafið hafði
verið fyrirgangamunnanum.
Krafttak sf. hefur sýnt styrk sin í
þessu verki því okkur hefur tekist
að komast fram úr verkáætlun,
þrátt fyrir tafir sem orðið hafa.
Gott samstarf
Þar á ég við verkfall opinberra
starfsmanna í haust sem skall á
rétt eftir að við byrjuðum í haust.
Það varð til þess að við fengum
ekki nauðsynleg byggingarefni, og
tafðist verkið töluvert af þeim
sökum.
Þá hafa berglögin hér í fellinu
verið lakari en gert var ráð fyrir í
útboðsgögnum. Því hefur verið
nauðsynlegt að sprautusteypa eft-
ir hverja sprengingu til að styrkja
bergið, sem er margfalt oftar en
áætlað hafði verið í útboðsgögn-
um. Þetta er gert vegna öryggis
þeirra sem í göngunum vinna en
við leggjum mikla áherslu á að öll-
um öryggiskröfum sé fylgt til hins
ýtrasta.
Við erum hér með úrvals starfs-
lið og samstarfið hefur verið gott
— það er held ég skýringin á því
hversu verkið hefur gengið vel.
Allt samstarf og samvinna hefur
verið með ágætum, hvort heldur
er milli íslendinga og Norðmanna,
eða Landsvirkjunarmanna og
Krafttaksmanna sf.
— Hvernig verður framkvæmd-
um hagað hjá ykkur í framtíð-
inni?
Þegar lokið hefur verið við að
grafa út stöðvarhúsið verða boruð
lóðrétt göng, um 250 metrar, og
verður sú borhola 3,70 metrar í
þvermál. Þetta verður gert með
aðferð sem aldrei hefur verið not-
uð áður hér á landi. Aðferð þessi
felst í því að fyrst verður borað
niður með 10 tommu (25 sm) bor.
Þegar þessi hola hefur verið boruð
■niður í stöðvarhúsið verður þar
tekið í stóra borkrónu, 3,70 metra
í þvermál. Síðan verður borað með
henni uppávið þar til holan er full-
gerð.
11 hundruð tröppur
Við munum bora tvær svona
holur, 250 metra að dýpt. Önnur
verður fyrir aðfallsvatnið niður í
stöðvarhúsið en hin manngangur.
Inn í vatnsganginn verður sett
járnpípa, 3,40 metrar í þvermál og
steypt utan með henni út í barma
borholunnar. Inni í manngangin-
um verður hringstigi, um 1.100
tröppur og einnig lyfta. Upp um
hann munu einnig liggja raf-
magnskaplar frá stöðvarhúsinu
upp i4.engivirkið.
Aðkomugöngin eru orðin 810
metra löng og erum við nú að
sprengja út stöðvarhúsið. Við er-
um að vinna um 250 metra niður í
jörðinni og höfum náð 25 metra
inn í stöðvarhúsið.
Stöðvarhúsið, sem við erum nú-
að grafa út, verður 30 metra hátt
og 66 metrar á lengd. Er lokið hef-
ur verið við það munum við grafa
önnur göng sem ligga til hliðar við
stöðvarhúsið (sjá mynd). Og svo
1.800 metra löng frárennslisgöng
sem eiga að liggja skáhallt niður
að ánni. Þegar við ljúkum verkinu
verðum við staddir um 7 metra
undir árbotni Blöndu hér niðri í
gilinu.
Samkvæmt áætlun skal okkar
verki vera lokið í júní 1989.
— Hversu margir starfsmenn
eru að jafnaði hér á staðnum?
Það hafa verið um tuttugu
manns alls þ.e. með starfsliði á
skrifstofu og í eldhúsi. Væntan-
lega fjölgar svo töluvert hér í
næsta mánuði.
Borað fyrir sprengjuhleðslum. Borvagninn borar Þarna er verið að hreinsa út úr borholu áður en
þrjár holur samtímis. sprengiefninu er komið fyrir í henni.