Morgunblaðið - 12.05.1985, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAl 1985
Þannig lítur nedanjarðarmannvirkið við Blöndu út í stórum dráttum.
(1) Vatnsinntak, um 250 metrar á lengd. (2) Stöðvarbús. (3) Flæði-
göng. (4) Aðkomugöng, rúmlega 800 metra löng. (5) Aðkomusalur. (6)
Manngangur þar sem einnig verða rafmagnskaplar frá stöðvarhúsinu.
(7) Frárennslisgöng. (8) Frárennslisskurður. (9) Aðkomuvegur að
frárennsli. (10) Stjórnstöð og tengivirki. (11) Háspennulínur.
Krafttak sf. leggur til öll tæki
sem notuð eru við verkið og er
þessi hluti verksins allur undir
stjóm Krafttaks sf. Landsvirkjun
er hins vegar ábyrg fyrir öllum
teikningum. Hönnum mannvirkis-
ins var á höndum Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen en bygginga-
stjóri fyrir Landsvirkjun er
Sveinn Þorgrímsson verkfræðing-
ur.
Vinnuhringurinn
— Hvernig er vinnunni hagað
hérna?
Hér er unnið nærfellt allan sól-
arhringinn. Unnið er á tveim tíu
tíma vöktum — önnur vaktin er
frá kl. 6 til 16 en hin frá kl. 16 til 2.
Þannig er unnið sex daga vikunn-
ar, en venjulega liggur öll vinna
niðri á sunnudögum. Íslendingarir
vinna tvær vikur samfellt en hafa
frí þá þriðju. Norðmennirnir
vinna hins vegar 4 vikur samfellt
en hafa svo 2ja vikna frí. Þeir
fljúga þá til Noregs.
Það tekur venjulega um 4 klst.
að bora fyrir sprengiefninu og
hlaöa því. Bora þarf samkvæmt
ákveðinni forskrift þannig að
sprengingin rjúfi bergið þannig að
göngin haldi reglulegri lögun.
Göngin lengjast um 4 metra við
hverja sprengingu.
Eftir sprengingu þarf að bíða í
hálftíma uns loftað hefur verið út
úr göngunum. Þá er farið inn og
losað um laust grjót í lofti hvelf-
ingarinnar þar sem sprengt hefur
verið. Svo er grjótruðningnum
mokað upp með hjólaskóflu og
lestað á trukka í útskotum sem
gerð hafa verið í aðkomugöngun-
um. Svo er hreinsað aftur úr loft-
inu til öryggis. Síðan er farið með
steypusprautubílinn inn aðkomu-
göngin og honum ekið fast að
„stafninum", þ.e. innst í göngin.
Svo er steypu, sem oft er styrkt er
með stálnálum, sprautað um loft
og veggi hvelfingarinnar sem
sprengd hefur verið til að styrkja
hana. Norðmennirnir sem hér
vinna eru vanir betri jarðlögum,
en þeir hafa allir einnig langa
reynslu af gerð vega- og lesta-
ganga i Noregi.
Vatnsleki hefur verið tölverður í
göngunum og meiri en gert var
ráð fyrir. Það eru um 700—800
lítrar á mínútu sem við verðum að
dæla út úr göngunum, en stundum
hefur það verið meira. Þá verður
að sjálfsögðu að dæla miklu lofti
inn í göngin því þar eru sífellt á
ferðinni stór tæki sem menga loft-
ið töluvert.
Það tilheyrir einnig okkar verki
að steypa upp stöðvarhúsið, sem
verður á þrem hæðum. Við áætl-
um að til þess fari um 6 þúsund
rúmmetrar af steypu og um 200
tonn af járni. Er við steypum það
upp munum við vinna í samvinnu
við þá sem setja niður vélarnar.
Vegagöng á íslandi?
— Nú hefur verið talað um að
með þessari tækni sem hér er not-
uð væri hagkvæmt að gera vega-
göng, t.d. á Vestfjörðum og Norð-
urlandi.
Maður hefur nú lítið hugsað út i
það, en óneitanlega virðist þetta
góður kostur við gerð vega. Við
erum hér með öll þau tæki sem
þarf til að gera svona göng, og að
loknu þessu verki verðum við
komnir með reynslu til að taka að
okkur svona verk upp á eigin spýt-
ur. En að sjálfsögðu er það stjórn-
málamannanna að ákveða hvað
gert verður.
— bó.
Trukkur ekur inn í aðkomugöng Blönduvirkjunar. Fyrir ofan hann sést stokkurinn sem hafður er til að
flytja hreint loft í göngin.
65
Firmakeppni
Knattspyrnudeild Hauka hyggst halda firmakeppni
í knattspyrnu á Hvaleyrarholtsvelli dagana
17,—19. maí nk. ef næg þátttaka fæst.
Þátttökutilkynningar skulu tilkynntar í síma
54403 og 51907 fyrir kl. 20.00 nk. fimmtudag 16.
maí.
LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA
SAMVINNUSTARFSMANNA .
Bygging orlofshúsa
Landssamband íslenskra samvinnustarfsmanna
hefur ákveöiö aö reisa allt aö 10 orlofshús í landi
Breiöumýrar í Reykjadal á næsta ári.
Því eru þeir aðilar sem áhuga hafa á aö byggja slík
hús beönir aö senda sem fyrst upplýsingar um
stærö, verö, gerö og hugsanlegan afgreiöslutíma
til Guömundar Loga Lárussonar,
Landssambandi íslenskra samvinnustarfsmanna,
sími 96-21900, Glerárgötu 28, 602 Akureyri.
30°: afsláttur
Við veitum 30% afslátt af bamamyndatök-
um með 12 prufumyndum og 2 13x18 cm
stækkunum.
Verð með afslætti er kr. 3.400.—
Tilboðið stendur aðeins út maí.
Pantið tíma strax.
bama&fþlskyldu-
Ijðsmyndir
A usturstræti 6, sími 12644.