Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 66

Morgunblaðið - 12.05.1985, Page 66
Gylmtr MORGUKBLAÐIÐ, 3UNNUDAGUR 12. MAl 1986 SSýning í dag. Ný lína í baðinnrettingum. Við kynnum alíslenska hönnun og framleiðslu á nýrri línu baðinnréttinga. Við erum ekkert feimnir við að nota liti, því nýju línuna í baðinnréttingum er hægt að fá í rauðu, svörtu, hvítu og bláu. Smíði nýju línunnar miðast að því að smíða utan um óskir og þarfir kaupenda okkar — ekkert staðlað einingakerfi því sumum hentar eitt betur en annað. Kaupendur velja t.d. sjálfir höldur og borðplötur en við bjóðum m.a. uppá marmara, plast, brenni og límtré. Við komum tökum mái og gerum tilboð, ykkur að kostnaðarlausu. . . . og ef þú ert á annað borð að innrétta eða breytá á baðherberginu átt þú svo sannarlega erindi til okkar. Við höfum upp á fleira að bjóða en nýja línu í baðinnréttingum. Qóif- ogveggfiísar, hreinlætis- ogblöndunartæki, spegla ogspeglaflísar, sturtuklefa og alla smávöru sem þarf á venjuleg baðherbergi. Hver veit nema þú fáir handklæði og aðra mjúka hluti hjá okkur líka? Við erum fluttir í nýtt og rúmgott húsnæði að Smiðjuvegi 38, Kópavogi. Sýningarsalurinn er opinn alla virka daga kl. 9:00—18:00 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 13:00-18:00. Sjúkraliðar vilja endur- skoðun á námi AÐALFUNDUR Sjúkraliðafélags ís- lands var haldinn 18. aprfl sl. Mikill hngar er nú í sjúkraliðum um mál- efni stéttarinnar, réttindi og mennt- unarmál, segir í frétt frá sjúkraliða- félaginu. Á fundinum kom fram að almennt væri talið að tímabært væri að taka til gagngerrar endurskoðun- ar nám sjúkraliða. „Tæp 20 ár eru nú liðin frá því að fyrstu sjúkraliðarnir voru út- skrifaðir hér á landi. Á seinni ár- um hafa orðið allverulegar breyt- ingar á námi sjúkraliða, þó blasir enn við sú staðreynd að sjúkralið- ar lokast í námi sínu og hafa nán- ast enga möguleika til framhalds- menntunar eða sérhæfingar. Sjúkraliðar munu nú vinna að möguleikum til aukinnar mennt- unar þannig að þeir eigi kost á framhaldsnámi eða frekari sér- hæfingu. Á fundinum kom fram ánægja vegna löggildingar sjúkraliða en frumvarp þess efnis var samþykkt á Alþingi í maí 1984,“ segir í lok fréttar SLFÍ. Jttftgusi' í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁOHÚSTORGI ^Uþ innrékkingoþiónuskon Smiðjtivcgi 38 200 Kópavogi Sími 79800. CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AD VANDADRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF. TÖKUM NÚ UPP SUMARTÍMA: AFGREIÐSLA TRYGO FRÁ 8 TIL 4 TKYGGING HF LAUGAVEG1178 SÍMI21120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.