Morgunblaðið - 31.05.1985, Síða 2
2
MQRGBNflLADIÐ, P6STUDAGUR 31. MAl 1985
Verður bjórfrumvarpið svæft:
Helgi Seljan
vill fundi með
sérfræðingum
SVO kann að fara að bjórfrumvarpið verði svo lengi í meðforum allsherjar-
nefndar efri deildar Alþingis, að ekki fari fram atkvæðagreiðsla um það á
þessu þingi. Helgi Seljan alþingismaður, einn nefndarmanna, óskaði eftir því
á fundi nefndarinnar í gærmorgun, að til yrðu kvaddir sérfræðingar, svo sem
læknar, til viðtals við nefndina, og var ákveðið að verða við óskum hans. Slík
viðtöl munu væntanlega hefjast nk. mánudagsmorgun.
Það er hald fjölmargra þing- Hann ætlaði sér
manna að Helgi hafi með þessari
ósk sinni viljað þæfa málið, þann-
ig að það komi ekki til afgreiðslu,
en Helgi er yfirlýstur andstæðing-
ur frumvarpsins. Helgi sagði hins
vegar í samtali við Morgunblaðið i
gær, að þessi væri ekki raunin.
Dagsbrún:
Gengið til
viðræðna
við VSÍ
AÐALFUNDUR Dagsbrúnar
samþykkti samhljóða tiliögu í
gærkvöldi þess efnis að fela
stjóm félagsins að ganga til
viöræðna við Vinnuveitenda-
samband íslands um tilboð
þess, en í tillögunni era til-
greind ýmis atriði sem leggja
skal meginþunga á í þeim við-
ræðum.
Fundinn sátu rétt liðlega
hundrað manns, en hann var
haldinn að Hótel Sögu. Tillög-
una fluttu Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður, Þröstur
Ólafsson framkvæmdastjóri og
Halldór Björnsson varaformað-
ur. Megináhersla er lögð á
kaupmáttartryggingu. Þá er
gert ráð fyrir að ýmsum sér-
kjarasamningum verði lokið
fyrir ákveðinn tíma. Gildistími
nýs kjarasamnings skuli vera
til 1. sept. 1986 o.fl.
einungis sama
rétt og neðrideildarmenn við af-
greiöslu þessa frumvarps.
„Ég vil einfaldlega fá að ræða
við hluta af þeim aðilum sem þeir
í allsherjarnefnd neðri deildar
ræddu við. Þetta eru þeir aðilar
sem fást við drykkjuvandamál í
víðari merkingu — fyrst og fremst
læknar."
„Ég hef margsagt að ég væri
ekki meinsmaður þess að þetta
mál gengi til atkvæða í efri deild
ef að mönnum sýnist svo. Ég
áskildi mér auðvitað rétt til þess
meðan svo óljóst væri um þing og
svo ótal mörg önnur mál sem eftir
er að ljúka, að vera andvígur því
að þessu máli yrði hraðað sér-
staklega," sagði Helgi jafnframt.
Tíð reiðhjólaslys
Morjfunblaöið/Jón Svavarsson
AÐ UNDANFÖRNU hafa nokkur börn á reiðhjólum slasast í árekstri við bifreiðir. Á þriðjudag varð enn eitt
reiðhjólaslysið, þá á Bústaðavegi. Átta ára gamall drengur hugðist fara yfir Bústaðaveginn, en varð fyrir
fólksbifreið. Meiðsl hans reyndust ekki alvarleg.
„Full ástæða er til að hvetja börn og ökumenn til að sýna gætni í umferðinni. Þúsundir barna hjóla nú í góða
veðrinu, oft út á götu án mikillar fyrirhyggju. Nokkur slys hafa orðið þegar börn hafa skotist út á götu frá
húsasundi eða milli bifreiða," sagði Gylfi Jónsson, lögreglufulltrúi, í samtali við Morgunblaðið.
Sjúkdómar og geymsluskemmdir eyðileggja kartöflurnar:
Sumir bændur þurfa að
henda 70—80 % uppskeru
Einstaka bændur hafa neyðst til að setja niður kartöflur sýktar af hringroti
TALIÐ ER að flestir kartöflubænd-
ur hafi enn sem komið er ekki selt
nema 20—30% af kartöfluuppskeru
sinni frá því í fyrra. Eiga þeir um
belming uppskerunnar eftir og mis-
munurinn hefur verið tekinn í út-
sæði eða er ónýtur. Allar kartöflu-
birgðir sumra bænda eru nú orðnar
ósöluhæfar vegna sjúkdóma eða lé-
legra geymsluaðstæðna, þannig að
Morgunblaðið/Bjami
Þessir stúdentar fengu verðlaun frá skólanum fyrir hæstu einkunnir.
Þau eru frá vinstri: tvíburabræðurnir Magnús, Lv., og Páll Harðarsynir,
Magnús varð dúx og Páll semidúx. Þá koma Margit J. Lund, Guðjón
Guðjónsson, Bjarni K. Þorvarðarson, Sigrún E. Jónsdóttir og Berglind
Tryggvadóttir.
Verslunarskólinn útskrifar
stúdenta í fertugasta sinn
VERSLUNARSKÓLI íslands útskrifaði stúdenta í fertugasta sinn
í gær að loknu 80. starfsári skólans. Þetta var jafnframt í síðasta
sinn sem stúdentar eru útskrifaðir frá gamla skólanum við Grund-
arstíg. Um næstu áramót verður tekin í notkun ný bygging skólans
við Ofanleiti í nýja miðbænum í Reykjavík.
Nú útskrifuðust alls 112 stúdentar, 33 frá máladeild og 89 frá
hagfræðideild. Auk þeirra voru útskrifaðir í fyrsta sinn nemendur
með verslunarmenntapróf og voru þeir 11 talsins. Fjöldi útskrif-
aðra stúdenta frá Verslunarskólanum á síðastliðnum fjörutíu árum
er samtals 1.886.
þeir þurfa að henda 70—80% af upp-
skeru síðasta hausts. Hafa sumir
neyðst til að setja niður hringrots-
skemmdar kartöflur í vandræðum
sínum.
Magnús Sigurðsson i Birtinga
holti, formaður Landssambands
kartöflubænda, sagði i samtali við
Morgunblaðið að þessar vikurnar
væru bændur með söluhæfar kart-
öflur smám saman að heltast úr
lestinni. Það væri annars vegar
vegna sjúkdóma, einkum hring-
rots sem upp kom i vetur, en hins
vegar vegna lélegra geymsluað-
stæðna. Sagði hann þó að flestir
þeirra bænda sem hefðu kartöflu-
rækt að aðalatvinnu væru með
góðar geymslur og ættu því að
geta verið með góðar kartöflur á
boðstólum þar til nýja uppskeran
kemur á markaðinn í sumar.
„Þetta ár hefur komið afar illa
út hjá bændum, það hefur reynst
sist betra en þau ár sem uppskeru-
brestur hefur orðið. Það er mikið
um að þeir sem fá góða uppskeru
að hausti reikni sér hana sem
tekjur og hagi sér í samræmi við
það, taki afurðalán, fjárfesti o.þ.h.
sem síðan reynist ekki grundvöll-
ur fyrir. Það er viða mjög bágt
ástand hjá þeim sem lifa eingöngu
á kartöfluræktinni," sagði Magn-
ús.
Magnús sagði að bændur á Suð-
urlandi hefðu sett niður í kart-
öflugarðana óvenju snemma í vor
og bjóst hann við nýjum kartöfl-
um í fyrra lagi, jafnvel í lok júlí. Á
undanförnum vikum og mánuðum
hefur verið mikil umræða meðal
kartöflubænda um sölumálin. Mál
Grænmetisverslunar landbúnað-
arins eru í biðstöðu vegna ákvæða
í frumvarpi til nýrra framleiðslu-
ráðslaga sem gera ráð fyrir að
stofnunin verði lögð niður í núver-
andi mynd. Bændur í Þykkvabæ
hafa ákveðið að stofna pökkun-
arstöð og má búast við að fleiri
fylgi í kjölfarið. Meðal annars eru
bændur í Villingaholtshreppi með
pökkunarstöð í deiglunni.
Hringrot hefur nú fundist í
kartöflum frá á fimmta tug bæja
á Suðurlandi og virðist það vera
útbreitt um allt Suðurland, en
sjúkdómurinn fannst fyrst í ís-
lenskum kartöflum í vetur. Hann
hefur valdið miklu tjóni hjá sum-
um bændum, og í einstaka tilvik-
um eyðilagt stóran hluta uppsker-
unnar. Erfitt er að forðast sjúk-
dóminn vegna þess að ekkert er
athugavert við útlit kartaflanna.
Sjúkdómurinn berst fyrst og
fremst með útsæði, en getur þó
borist með öðrum leiðum og hafa
bændur verið hvattir til að kaupa
ósýkt útsæði. Það hafa ekki allir
treyst sér til þess af fjárhags-
ástæðum og er talið að þeir hafi
neyðst til að setja niður útsæði
sýkt af hringroti sem aftur getur
valdið þeim enn meira tjóni í
haust og næsta vetur.
Stangarholt:
Byggingarleyfið aftur sam-
þykkt f byggingarnefnd
BYGGINGARNEFND Reykjavíkur
samþykkti byggingarleyfi fjölbýlis-
hússins nr. 3—9 við Stangarholt á
nýjan leik á fundi sínum í gær. Var
það gert að ósk Davíðs Oddssonar
borgarstjóra sem í gær afturkallaði
gerð mæliblaðs mælingardeildar
borgarverkfræðings sem var for-
senda úrskurðar félagsmálaráðherra
fyrir ógildingu samþykktar borgar-
innar um útgáfu byggingarlcyfis
fjölbýlishússins. Jafnframt var
byggingarfulltrúa falið að stöðva
framkvæmdir þar til borgarstjórn
hefur staðfest samþykktina. Búist er
við að byggingarfulltrúi geri það ár-
degis í dag og framkvæmdir liggi þá
niðri í vikutíma, en næsti borgar-
stjórnarfundur er fyrirhugaður 6.
júní.
Á því mæliblaði sem borgar-
stjóri afturkallaði var gert ráð
fyrir að byggingarsvæðinu við
Stangarholt yrði skipt niður í
tvær lóðir, annars vegar fyrir fjöl-
býlishúsið sem hafin er bygging á
og hins vegar fyrir dagheimili sem
sami byggingaraðili hefur tekið að
sér að byggja fyrir borgina. Var
litið á þetta mæliblað sem vinnu-
plagg. Var það ódagsett og óút-
gefið. í gær var jafnframt form-
lega gefið út mæliblað fyrir svæð-
ið, þar sem það er sýnt sem ein
byggingarlóð, þannig að nýtingar-
hlutfall svæðisins á að verða inn-
an þeirra marka sem skipulag ger-
ir ráð fyrir.
Samþykkt byggingarnefndar
var gerð með fimm atkvæðum (4
fulltrúar Sjálfstæðisflokks og full-
trúi Alþýðubandalags) gegn einu
(fulltrúi Alþýðuflokks) en fulltrúi
Kvennaframboðsins sat hjá við af-
greiðsluna. Féllu atkvæði á sama
hátt og við fyrri útgáfu bygg-
ingarleyfisins.