Morgunblaðið - 31.05.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985
Verðlagning á vefnaðarvöru gefin frjáls:
Sterk neytendasam-
tök á óskalista okkar
— segir form. félags vefnaðarvörukaupmanna
FKÁ og með deginum á morgun, 1. júní, verður öllura verdlagshöftum aflétt
af vefnaðarvöru. Það þýðir með öðrum orðum það að verðlag á fatnaði,
fataefnum, gluggatjöldum o.fl. verður gefið frjálst Á fundi með blaða-
mönnum nú í vikunni sagði Ragnar Guðmundsson formaður Félags vefnað-
arvörukaupmanna, að hér væri um byltingu í greininni að ræða. „Við höfum
lengi talað um svæfinguna, en þá hefur verið átt við þau verðlagshöft sem við
höfum orðið að búa við.“
Stjórn FVK heldur því fram að
þessi breyting á verslunarháttum
komi til með að verða neytendum
til góðs. „Það hefur sýnt sig á
þeim tíma sem liðinn er síðan
verðlagshöftum var aflétt af ann-
arri neysluvöru, s.s. matvöru, að
það veldur verðlækkun," sagði
Sigurður E. Haraldson meðstjórn-
andi FVK. „Frjáls álagning hvetur
menn til hagstæðari innkaupa, og
lækkar þar með vöruverð." Alagn-
ing á vefnaðarvöru hefur hingað
til miðast við 36.5% hámark.
„Þetta fyrirkomulag veldur því að
kaupmaðurinn græðir ekki á því
Nefnd flytji
frumvarpið
„ÞAÐ væri ekkert óeölilegt að
meirihluti fjárhags- og viðskipta-
nefndar flytti þetta frumvarp. Þetta
mál kemur upp í þeirri nefnd í
tengslum við frumvarp um greiðslu-
jöfnun," sagði Þorsteinn Pálsson er
hann var spurður hver eða hverjir
myndu flytja frumvarp um skyldu-
sparnað og eignaskatt á alþingi, en
Albert Guðmundsson fjármálaráð-
herra hefur lýst því yfir að hann
muni ekki flytja frumvarpið.
„Ég er ekki reiðubúinn til þess að
svara því. Hef reyndar ekkert
ákveðið í því efni,“ sagði Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra er
spurt var hvað hann hygðist gera
þegar frumvarp um eignaskatt og
skyldusparnað til fjáröflunar fyrir
húsnæðislánakerfið yrði flutt á Al-
þingi. Albert sagðist reyndar ekki
vera búinn að sjá að slíkt frumvarp
yrði flutt.
að kaupa inn ódýra vöru — þvert á
móti græðir hann meira á því að
kaupa dýrt inn, því hlutur hans af
verði til dæmis 1000 kr. flíkur er
tvisvar sinnum meiri en af verði
500 kr. flíkur,“ sagði Sigurður. Fé-
lag vefnaðarvörukaupmanna ætl-
ar að gera mikið átak í tilefni
breytingarinnar, og um þessar
mundir eru kaupmenn að hengja
upp merki í verslunum sínum með
áletruninni: „Þekking — Gæði —
Þjónusta". „Vöruþekkinguna hafa
allir kaupmenn í félagi okkar, hér
fást vörur frá bestu framleiðend-
um heims, og útlendingum ber
saman um það að úrval af tísku-
fatnaði í Reykjavík standist sam-
anburð við stærstu borgir heims.
Við teljum að það fari best á því
að kaupmenn og neytendur vinni
saman án íhlutunar stjórnvalda,“
sagði Ragnar. „Sterk neytenda-
samtök eru efst á okkar óskalista,
og við teljum að neytendur séu
besta verðlagseftirlitið.
Félag vefnaðarvörukaupmanna
var stofnað 9. janúar 1932, og það
átti því 50 ára afmæli árið 1982.
Stjórn félagsins tók þá ákvörðun
að fresta afmælishátíðinni vegna
þess ástands sem þá ríkti í verð-
lagsmálum. Væntanlega verður úr
því bætt í tilefni afnámsins. Fé-
lagar í FVK eru núna um 60 tals-
ins, en nokkuð vantar uppá það að
allir kaupmenn í stéttinni séu í
félaginu. „Það er ljóst að þjóðfé-
lagið og verslunin eru á leiðinni úr
einu skeiði inn í annað. Slík breyt-
ing tekur sinn tíma, en við teljum
að með þessu sé stigið framfara-
skref. Dæmin sanna að á Vestur-
löndum hafa menn farið þessa
leið, og almenningur telur hana
sjálfsagða," sagði Ragnar Guð-
mundsson formaður FVK.
Opinberri heimsókn lokið
AP/Símamynd
Opinberri heimsókn Geirs Hallgrímssonar utanríkisráðherra og konu hans, Ernu Finnsdótt-
ur, til Danmerkur lauk í gærkvöldi. í gær voru ráðherrahjónin í Árósum á Jótlandi þar sem
þau skoðuðu m.a. gamla borgarhlutann, ráðhúsið og tónleikahöllina. Myndin er tekin í
lyfjabúðinni í gamla bænum og eru þau Geir og Erna þarna að virða fyrir sér kynjadýr úr
gifsi, sem lyfsalinn hefur gert.
Fölsuðu skuldabréf
fyrir þrjár milljónir
Náðu að selja bréf fyrir 800 þúsund krónur
Tveir menn handteknir en báðum hefur verið sleppt
LÖGFRÆÐINGUR og liðlega fimmtugur maður, sem rekur bókhaldsfyrir-
tæki í Reykjavík, hafa viðurkennt að hafa falsað skuldabréf, sent til embætt-
is borgarfógeta til þinglýsingar og selt hluta þeirra á verðbréfamarkaði.
Mennirnir hafa viðurkennt að
hafa selt fölsuð skuldabréf fyrir
800 þúsund krónur. Alls fölsuðu
þeir 25 skuldabréf að andvirði 3
milljónir króna. Þeir hafa verið
látnir lausir, enda liggja játningar
Skoðanakönnun Hagvangs:
Stuðningur við ríkisstjórnina
hefur aukist síðustu 3 mánuði
RÚMLEGA 52% kjósenda styðja
ríkisstjórnina, en 47,5% eru
henni andvígir. Þetta er niður-
staða skoðanakönnunar Hag-
vangs hf. er gerð var fyrr í þess-
um mánuði og er þá aðeins miðað
við þá sem afstöðu tóku. Þátttak-
endur voru af öllu landinu, alls
eitt þúsund. Miðað við niðurstöðu
könnunar frá því í febrúar síð-
astliðnum hefur ríkisstjórnin
bætt við sig 2,3 prósentustigum.
Stuðningur við ríkisstjórnina
er meiri meðal karla en kvenna,
59,7% þeirra eru henni hlynnt-
ir og 40,3% andvígir. Meðal
kvenna snýst dæmið við, 55%
þeirra eru á móti ríkisstjórn-
inni en 45% segjast styðja
hana.
Ef tekið er tillit til þeirra er
annað hvort neituðu að svara
eða voru óákveðnir (13,4%) þá
nýtur ríkisstjórnin stuðnings
45,5% kjósenda og 41,1% er
henni andvígt. í fyrrnefndri
febrúarkönnun var sama hlut-
fall 41,9% og 41,5%.
Mestur stuðningur við ríkis-
stjórnina er í dreifbýli, en
66,7% svara spurningunni um
stuðning við ríkisstjórnina ját-
andi og er þá aðeins miðað við
þá sem tóku afstöðu. Á höfuð-
"STYÐUR ÞÚ EÐA STYÐUR ÞÚ EKKI
NÚVERANDI RÍKISSTJÓRN ?"
Ef aöeins eru taldir þeir
sem afstöðu tóku
80 %.
Styður
Styður ekki
77,2'
70
60
50
40
30
20
10 _
apríl 1984 júll 1984
sept. /okt.
1984
febrúar 1985 mai 1985
Jean Pierre-Biard
borgarsvæðinu eru 51,6%
hlynntir, en á móti ríkisstjórn-
inni eru 48,8%.
Á meðfylgjandi töflu
eru
sýndar breytingar á fylgi
stjórnarinnar í skoðanakönn-
unum Hagvangs hf. frá apríl
1984 til maí 1985.
fyrir og málið talið að fullu upp-
lýst.
í nóvember síðastliðnum fðls-
uðu mennirnir undirskrift 10
skuldabréfa, hvert að upphæð 100
þúsund krónur, með veði í íbúð í
Reykjavík og gjalddaga að ári.
Þeir fölsuðu undirskrift eiganda
íbúðarinnar, fóru með bréfin til
embættis borgarfógeta og fengu
þeim þinglýst. Síðan sendu þeir
bréfin í pósti til verðbréfasölu í
Reykjavík með beiðni um að sölu-
verðið yrði sett á bankabók, sem
skráð var undir fölsku nafni.
Mennirnir fengu 800 þúsund krón-
ur fyrir bréfin, sem seld voru á
almennum markaði.
{ marz endurtóku þeir leikinn,
enda gefist vel. Þeir fölsuðu undir-
skrift 10 bréfa, þá á annan eig-
anda íbúðar í Reykjavík og sendu
til þinglýsingar og síðan til verð-
bréfasala. Svikin komust upp nán-
ast fyrir tilviljun. Starfsfólk verð-
bréfasölunnar hringdi einhverra
erinda til skráðs útgefanda bréf-
anna. Hann kom af fjöllum og
kvaðst aldrei hafa skrifað undir 10
skuldabréf, sem satt var.
Málið var kært til Rannsóknar-
lögreglu ríkisins. Grunsemdir
vöknuðu meðal starfsmanna emb-
ættis borgarfógeta í síðustu viku
að fleiri fölsuð skuldabréf væru til
þinglýsingar. Að þessu sinni 5
skuldabréf, hvert að upphæð 200
þúsund krónur. Frá því á föstudag
biðu rannsóknarlögreglumenn
falsaranna. Annar þeirra kom á
miðvikudag og hugðist sækja bréf-
in. Hann var umsvifalaust hand-
tekinn og kollegi hans síðar.
VR reiðubúið
til viðræðna
— gegn vissum skilyrðum
EINS og fram kom í Morgunblaðinu í gær, er stjórn Verslunarmannafélags
Keykjavíkur tilbúin að ganga til viðræðna við Vinnuveitendasamband ls-
lands á grundvelli tilboðs þess, sem VSÍ setti fram í síðustu viku. í sam-
þykkt, sem gerð var á stjórnarfundi í VR segir að stjórnin sé reiðubúin að
ganga til viðræðna við VSÍ á grundvelli eftirfarandi atriða:
1. Stjórn VR lysir sig reiðubúna
til viðræðna um tillögur VSÍ að
kjarasamningi enda lítur VR svo
á, að ekki sé um úrslitakosti að
ræða af hálfu VSÍ heldur um-
ræðugrundvöll.
2. VR telur mjög brýnt, að nú
þegar verði komið í veg fyrir frek-
ara kaupmáttarhrap, sem fyrir-
sjáanlegt er næstu vikurnar ef
ekkert verður aðhafst og þróun-
inni verði snúið við til vaxandi
kaupmáttar.
3. I væntanlegum samningi
verða að vera ótvíræð og skýr
ákvæði um tryggingu þess kaup-
máttar, sem stefnt er að.
4. Með tilliti til hinna öru breyt-
inga, sem orðið hafa á undanförn-
um árum með síaukinni tækni-
væðingu og sérhæfingu í ýmsum
starfsgreinum, er nauðsynlegt að
semja um einstök sérmál, sem
ekki hefur verið tekið tillit til og
ekki hafa fengist rædd á undan-
förnum árum.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að hann gerði sér vonir um
að viðræðurnar gætu hafist sem
fyrst.