Morgunblaðið - 31.05.1985, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985
((
Cuðmundur J. Guðmundsson
formaður VMSÍ:
„Það var aðeins
samþykkt að
fresta þessu máli
„ÞAÐ var aöeins ein samþykkt gerð á
þessum fundi, og það var tillaga fri
mér, þess efnis að málið yrði ekki af-
greitt fyrr en á formannafundi á morg-
un, þar sem ég hafði lofað for-
mannafundi því að það gæti enginn
hnekkt ákvörðun formannaráðstefnu
nema annar formannafundur," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, formað-
ur Verkamannasambands íslands, f
samtali við blm. MbL.l ger. Guðmund-
ur var spurður hvort hann liti þannig i
að hann veri að missa undirtökin í
VMSf, þar sem meirihluti fram-
kvemdastjórnar sambandsins lýsti
þeim vilja sínum i fundi sl. þriðjudag,
að hefja nú þegar viðreður við Vinnu-
veitendasamband fslands um samn-
ingstilboð þess. Þetta var gert í blóra
við vilja Guðmundar, sem er andvígur
slíkum viðreðum, og hefur sagt að
ekki sé til neins að reða við VSÍ um
kjarabetur iður en samningar eru út-
runnir.
„Þessi tillaga mín var samþykkt,"
sagði Guðmundur, „um meirihluta
eða minnihluta veit ég ekki. Það hef-
ur oft komið til þess að menn hafa
haft misjafna skoðun á ýmsu i stjórn
Verkamannasambandsins og ekki
gert það að blaðamáli. Kg mun halda
mig við þá reglu sem hefur verið f
heiðri höfð í stjórn Verkamanna-
sambandsins, að þó að skoðana-
ágreiningur ríki í einhverjum mál-
um, þá sé það afgreitt innan sam-
bandsins en ekki f dagblöðunum.“
„Loftbrú“ Útsýnar
til Spánar og Portúgal í sumar
TVÖ HUNDRUÐ og fimmtíu farþegar fóru í gær utan til Algarve í
Portúgal og Costa del Sol á Spáni með DC-8 þotu frá Flugleiðum, sem
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur tekið á leigu. Mun slík ferð farin þriðja
hvern fimmtudag í allt sumar fram í október.
Samkvæmt upplýsingum Ingólfs Guðbrandssonar, forstjóra Útsýn-
ar, hefur það ekki gerzt frá árinu 1978 að svo margir farþegar hafi
farið í einu á vegum ferðaskrifstofunnar, en hvert sæti var skipað í
þotunni, sem fór utan í gær. Sagði Ingólfur að með því að senda svo
marga utan í einu væri unnt að halda flugkostnaðinum í lágmarki.
Farþegarnir verða erlendis um 3ja vikna skeið, en flest sætin á
þessari flugleið eru seld í sumar.
Athugasemd Axels Gíslasonar framkvæmdastjóra skipadeildar SÍS:
Rainbow Navigation hefur
undirboðið flutninga ÁTVR
Vextir af ríkis-
skuldabréfum
ekki lækkaðir
segir Albert Guð-
mundsson fjármála-
ráðherra
„VEXTIR af þeim ríkisskuldabréf-
um sem gefin hafa verið út og eru í
gildi, verða ekki lækkaðir,“ sagði Al-
bert Guömundson fjármilaráðherra
er blm. Mbl. spurði hann hvort fyrir-
huguð væri vaxtalækkun á ríkis-
skuldabréfum.
Fjármálaráðherra sagði að ekki
kæmi til greina að breyta þeim
kjörum sem væru á bréfunum. Þau
hefðu verið seld með ákveðnum
kjörum og þau kjör yrðu í gildi út
gildistíma bréfanna.
„íslenskir umboðsmenn banda-
ríska skipafélagsins Rainbow Nav-
igation hafa að undanförnu haldið
uppi vörnum í dagblöðum fyrir
bandaríska félagið vegna fullyrð-
inga um undirboð þess á flutning-
um til fslands sem undirritaður
hefur upplýst að fram færu í skjóli
úreltra einokunarlaga í Bandaríkj-
unum,“ segir m.a. í athugasemd
sem borist hefur Morgunblaðinu
frá Axel Gíslasyni framkvæmda-
stjóra skipadeildar SÍS.
Þar segir ennfremur: „Fullyrða
umboðsaðilar, Gunnar Guðjóns-
son sf., Hafnarstræti 5, Reykjavík,
að Rainbow Navigation hafi aldrei
undirboðið neina flutninga, hvorki
til né frá fslandi og benda á að
undirritaður hafi ekki nefnt nein-
ar tölur eða staðreyndir máli sínu
til stuðnings.
Af þessu tilefni vill undirritaður
ítreka fyrri ummæli sín um undir-
boð Rainbow Navigation og vill í
því sambandi nefna dæmi um
flutninga á tóbaki frá Bandarikj-
unum til Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins, en staðfest hefur
verið af forstjóra ÁTVR að boðnar
hafi verið vörur, fluttar með Rain-
bow Navigation, á farmgjaldi sem
er langt undir því er íslensku fé-
lögin hafa skráð hjá FMC í Wash-
ington (Federal Maritime Comm-
issionj.í þessu sambandi skal tek-
ið fram að þó svo að gerð hafi
verið tilraun til að fela undirboðin
með því að bjóða vörumar CIF í
stað FOB áður, breytir það í engu
þeirri staðreynd að Rainbow Nav-
igation hefur í skjóli einokunar-
aðstöðu hafið undirboð á flutning-
um til íslands.
Undirritaður stendur við þau
orð sem áður hafa verið sögð um
undirboð Rainbow Navigation og
tilburði Gunnars Guðjónssonar sf.
til að halda uppi vörnum fyrir um-
bjóðendur sína, Rainbow Navigat-
ion, verður væntanlega að líta á
sem þekkingarleysi því vart verð-
ur þeim ætlað að fara vísvitandi
með rangt mál“.
Flutningar Rainbow Navigation:
Hafskip hf. hefur tapað um
80 millj. kr. á síðasta ári
NÚ hefur bandaríska skipafélagið
Rainbow Navigation Inc. séð um
alla flutninga fyrir varnarliðið í
rúmt ár.
Morgunblaðið hafði samband
við Ragnar Kjartansson forstjóra
Hafskips og var hann spurður
hvernig þessi breyting horfði við
forsvarsmönnum fyrirtækisins.
„Þegar við misstum þessa flutn-
Fjármálaleg ráðgjöf á Suðumesjum:
99
Þjónustan ekki bundin
við vanda húsbyggjenda“
Segir Sævar Reynisson, viðskiptafræðingur
„VIÐ FÖRUM HÆGT í sakirnar. Höfum í byrjun opið tvo tíma í senn
tvisvar í viku,“ sagði Sævar Reynisson, viðskiptafræðingur, sem veitir
forstöðu skrifstofu, er annast fjármálalega ráðgjöf fyrir almenning á
Suðurnesjum. „Garðar Garðarsson, lögfræðingur hér á Suðurnesjum,
reifaði fyrstur hugmyndina að fjármálalegri ráðgjöf fyrir almenning.
Honum blöskraði ríkjandi ástand og var orðinn þreyttur á að skrifa upp
sófasett fólks. Hann átti frumkvæði að viðræðum við banka hér á Suður-
nesjum, Lífeyrissjóð verkamanna og Verkalýðsfélagið í Keflavík. Rætt
var við Jóhann Einvarðsson, aöstoðarmann tryggingaráðherra, og Hús-
næðismálastofnun ríkisins bættist svo við. í framhaldi af þessum viðræð-
um var svo ákveðið að reyna þetta.
Ég óttast helst að menn telji
að héðan verði peningum ausið í
allar áttir, en það er alls ekki
hugmyndin. Fólk getur komið
hingað og fengið ráð til að
freista þess að leysa fjárhagsleg
vandamál sín. I samráði við
banka getum við skuldbreytt
lánum eða lengt lánstíma og
bent fólki á lánamöguleika.
En jafnframt legg ég áherslu
á, að þjónustan er alls ekki
bundin við vanda húsbyggjenda.
Ég tel mikilvægt að fólk, sem
hyggur á kaup á húsnæði, geti
komið hingað og fengið holl ráð.
Við yfirförum kauptilboð —
metum útgjöld og hvort dæmiö
hreinlega gangi upp, stuðlum að
því að fólk meti kalt og yfirveg-
að, hvort það geti klofið þær
fjárhagslegu skuldbindingar,
sem það tekst á hendur með
kaupum á húsnæði.
í viðræðum um stofnun ráð-
gjafarþjónustunnar kom fram
gagnrýni á fasteignasala; ýms-
um sýnist að sumir þeirra rækti
ekki þá skyldu sína að upplýsa
fólk. Margir hafa því miður reist
sér hurðarás um öxl, hafa fest
kaup á húsnæði, þrátt fyrir
óvÍ8su um að geta staðið í skil-
um. Ég tel algengt að ungu fólki
hafi um of verið att út í kaup á
húsnæði. Foreldrar jafnvel sagt:
Jú, þetta gátum við þegar við
vorum ung. Á undanförnum
misserum hefur kaupmáttur
launa minnkað. Fólk hefur þurft
að standa skil á hávaxtalánum,
sem hefur reynst mörgum
ofviða."
— Hvernig skiptist kostnaður
við rekstur skrifstofunnar?
„Bankarnir og verkalýðsfélag-
ið skipta með sér kostnaði.
Verkalýðsfélagið leggur fram
húsnæði og aðstöðu, síma og
fleira. Fólk getur snúið sér til
félagsins og pantað tíma, en ég
legg áherzlu á að þetta er öllum
opið og án endurgjalds. Húsnæð-
ismálastofnun leggur fram
tölvuforrit til að gera greiðslu-
áætlanir.
Samningurinn er til sex mán-
aða. Að þeim tíma liðnum tökum
Morgunblaðið/Einar Falur
Sævar Reynisson, viðskiptafræð-
ingur, forstöðumaður fjármálalegr-
ar ráðgjafaþjónustu á Suðurnesj-
við afstöðu til framhaldsins;
metum reynsluna af þessari til-
raun,“ sagði Sævar Reynisson.
inga fyrir rúmu ári, eftir að hafa
annast þá að hluta til í mörg ár,
urðum við að sjálfsögðu fyrir
miklu tekjutapi," sagði Ragnar
Kjartansson. „Nettótap á síðast-
liðnu ári, sem rekja má til þessar-
ar breytingar, nam um 80 milljón-
um króna.
Við höfum haft þá trú að islensk
stjórnvöld væru að fást við málið
og verið vongóðir um að það yrði
leitt til lykta. Við erum enn þeirr-
ar skoðunar og teljum líkur á að
afgerandi hreyfing verði á málinu
á næstu vikum," sagði Ragnar.
Vinsældalisti rasar 2:
Duran Duran
í fyrsta sæti
VINSÆLDALISTI rásar 2 er sem
hér segir þessa vikuna:
1. (1) A View to a Kill/Duran
Duran.
2. (2) Axel F./Harold Falter-
meyer.
3. (3) 19/Paul Hardcastle.
4. (10) Just a Gigolo-Ain’t got
Nobody/David Lee Roth.
5. (17) Clouds Across the Moon/
Rah Band.
6. (19) Lover Come Back to Me/
Dead or Alive.
7. (6) The Beast in Me/Bonnie
Pointer.
8. (8) The Unforgettable
Fire/U2.
9. (7) Some Like it Hot/The
Power Station.
10. (5) Kiss Me (With Your
Mouth)/Stephen „Tintin" Duffy.