Morgunblaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985
Reynir
Pétur
w
Eg lofaði í gærdagspistlinum
að halda áfram að rekja
garnirnar úr viðmælendum
Hrafns Gunnlaugssonar í þriðju-
dagsþætti hans um stöðu íslensku
kvikmyndarinnar en það krunk
verður að bíða betri tíma. Ég get
ekki látið hjá líða að minnast á
það fjölmiðlahneyksli er átti sér
stað í sambandi við harmleikinn í
úrslitaleiknum um Evrópubikar-
inn í Brussel nú á miðvikudaginn.
Aðeins ein sjónvarpsstöð stöðvaði
útsendingu frá blóðvellinum eftir
að skríllinn hafði tekið þar öll völd
V-Þýska sjónvarpið. Ég tek ofan
fyrir þeim mönnum er halda um
stjórnvölinn á þeim bæ. Gerðir
hinna stjórnuðust af því hugarfari
er ríkti forðum á Colosseum þá
ljónin bruddu bein saklausra
manna, lýðurinn varða að hafa
sína gladíatora.
Það er máski erfitt að dæma hér
stjórn knattspyrnusambandsins
og leikmenn liðanna, því ef til vill
byggðist ákvörðun þeirra um að
halda leikinn í skugga blóðbaðsins
á ótta við allsherjar öngþveiti.
Hitt er Ijóst að auðvitað átti að
stöðva útsendingu frá þessum
skrílslátum.
Það sem koma skal?
En kannski er þetta það sem
koma skal i knattspyrnunni, leik-
menn sem hlaupa um í blóðregni
hafnir yfir að taka eigin persónu-
lega ákvörðun byggða á siðferði-
legu mati. Síðan sitja yfir þessum
nútíma gladíatorum virðulegir
ráðsmenn er lýsa þvi yfir að þetta
... komi knattspyrnunni ekkert
við, sé bara félagslegt vandamál.
Knattspyrnan er að verða félags-
legt vandamál, þegar fólk getur
ekki farið óhult á kappleiki og
ekkert tillit er telið til þess er
fjöldi manna ferst og særist á
slíkum leikum, þá verða knatt-
spyrnumennimir sjálfir og yfir-
stjórn knattspyrnumála að taka af
skarið og ákveða hvort þeir vilji
þóknast skrílnum og leika í
skugga manndrápa og meiðinga
eða standa uppréttir sem menn.
Þeir knattspyrnumenn er taka við
sigurlaunum í skugga slíkra
hörmungaratburða er við sáum nú
á miðvikudaginn eru á vissan hátt
samsekir þeim er stóðu fyrir
manndrápunum og meiðingunum,
fram hjá þeirri staðreynd verður
ekki horft.
Sannur íþróttamaður
Til allrar hamingju mætti sannur
íþróttamaður á skjáinn í kjölfar
hins framlengda „knattspyrnuþátt-
ar“ frá Brússel sá nefndist Reynir
Pétur Ingvarsson og býr á Sólheim-
um í Grímsnesi. En Ómar Ragn-
arsson sótti þá byggð heim á dögun-
um. Reynir Pétur leggur stund á
einhverja elstu íþrótt mannsins,
göngu. Er hann nú í gönguferð í
kringum landið í því skyni að safna
fyrir íþróttaleikhúsi fyrir þá sem
búa á Sólheimum. Er næsta víst aö
þessi spengilegi göngugarpur þarf
ekki að neyta lyfja af nokkru tagi til
að keyra líkamann áfram, slíkur er
eldmóðurinn enda málefnið gott. En
Reynir Pétur stundar ekki bara lík-
amlegar íþróttir, hann stælir og
andann með svo flóknum reikni-
þrautum að vakti undrun mína og
aðdáun. Væri óskandi að Ómar
heilsaði uppá fleiri slíka ágætis-
menn sem í senn stæla andann og
líkamann í tómstundum. Það var
sannarlega gott að sofna með mynd
Sólheima í Grímsnesi fyrir hug-
skotssjónum, þar unir fólk í sátt og
samlyndi í leik og starfi fjarri
skrílslátum hins stóra heims. Legg
ég til að sjónvarpið endursýni þenn-
an frábæra og mannbætandi þátt
Ómars, sem ég veit að margir
misstu af vegna hinna framlengdu
skrílsláta í Brússel.
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP/SJONVARP
Dieter kvikmyndatökumaður með gervipelíkaaa.
Maðurinn bak við myndavélina
„Maðurinn bak
Ol 35 við myndavél-
ina“ nefnist
þáttur sem hefst í sjón-
varpinu klukkan 21.35 í
kvöld. Þetta er bresk
heimildamynd um kvik-
myndatökumanninn Diet-
er Plage og Mary konu
hans sem ferðast heims-
horna milli til að taka
dýralífsmyndir, oft við
erfið og jafnvel háskaleg
skilyrði.
Þýðandi er Jón 0.
Edwald.
Hjónakornin Dieter og Mary Plage meó svæfðan tígur.
■■■■ Kvöldvaka
00 40 hefst á rás 1
— klukkan 20.40 í
kvöld. Meðal efnis í kvöld
er „Af tröllum og
mönnum“. Þórey Hann-
esdóttir spjallar um eig-
inleika trölla og ástir
Kvöldvaka
þeirra og manna. Því næst
verður kórsöngur. Lilju-
kórinn syngur undir
stjórn Jóns Ásgeirssonar.
Síðast á kvöldvöku er
dagskrárliður er nefnist
„Litið til liðinnar tíðar“.
Þorsteinn Matthíasson
flytur frásögn skráða eft-
ir Valgerði Skarphéðins-
dóttur í Grundarfirði.
Umsjónarmaður kvöld-
vökunnar er Helga Ág-
ústsdóttir.
„Vogun vinnur,
vogun tapar“
— bresk-þýsk sjónvarpsmynd
■■■■ „Vogun vinnur,
00 30 vogun tapar“
— nefnist bíó-
mynd kvöldsins, sem hefst
klukkan 22.30.
Myndin er ný bresk-
þýsk sjónvarpsmynd, sem
byggð er á sannsögulegum
viðburðum. Leikstjóri er
John Goldschmidt og með
aðalhlutverkin fara: Dav-
id Suchet ásamt Maria
Schneider, Reinhard
Glemnits, George Claissie
og Robert Freitag.
Myndin er um háttsett-
an starfsmann lyfsölufyr-
irtækis í Sviss, sem kærir
húsbændur sína fyrir brot
á viðskiptareglum Efna-
hagsbandalagsins. Hann
verður að gjalda þessa
uppljóstrun dýru verði
þegar fyrirtækið hefur
gagnsókn.
Þýðandi er Kristmann
Eiðsson.
m
JE
David Sucbet f mjnd
kvöldsins, sem Djer.
„Klassapia
— Raffaella Carra
■■■ Skemmtiþáttur
OA 40 með ítölsku
“U — söngkonunni
Raffaellu Carra í aðal-
hlutverki er á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld eftir
fréttir klukkan 20.40.
Þátturinn ber nafnið
„Klassapía“. Hún flytur
einkum bandarísk lög og
stendur þátturinn í 55
mínútur.
Raffaella Carra
UTVARP
FÖSTUDAGUR
31. maí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Oagiegt mál. Endurt.
páttur Siguröar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð: — Sigrún
Schneider talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Börn eru besta fólk“ eftir
Stefán Jónsson. Þórunn
Hjartardóttir les (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 .Mér eru fornu minnin
kær“. Einar Kristjánsson fra
Hermundarfelli sér um þátt-
inn. (RÚVAK).
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 .Sælir eru syndugir" eftir
W.D. Valgardson. Guörún
Jörundsdóttir endar lestur
þýöingar sinnar (19).
14J0 A léttu nótunum. Tónlist
úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Slödegistónleikar.
a. Rómansa I f-moll op. 11
eftir Antonln Dvorák. Salva-
tore Accardo leikur á fiðlu
með Concertgebouw-hljóm-
sveitinni I Amsterdam; Colin
Davis stórnar.
b. Konsertrapsódía fyrir selló
og hljómsveit eftir Aram
Katsjatúrlan. Karine Georgi-
an leikur með Sinfónlu-
hljómsveit rússneska út-
varpsins; höfundurinn stjórn-
ar.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Til-
kynningar.
Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þor-
steinn J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Af trðllum og mönnum.
Þórey Hannesdóttir spjallar
um eiginleika trölla og ástar
þeirra og manna.
b. Kórsöngur. Liljukórinn
syngur undir stjórn Jóns
Asgeirssonar.
c. Litiö til liöinnar tlöar.
Þorsteinn Matthlasson flytur
frásögn skráöa eflir Valgerði
Skarphéöinsdóttur I Grund-
arfirði. Umsjón: Helga Ag-
ústsdóttir.
21M Frá tónskáldum. Atli
Heimir Sveinsson kynnir
„Mors et vita“, strengja-
SJÓNVARP
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
19.25 Barnamyndasyrpa.
Myndir frá finnska, tékkn-
eska og sænska sjónvarp-
inu.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
10.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Klassapla.
(Fantastico.) Skemmtiþáttur
meö itölsku söngkonunni
Raffaellu Carra I aðalhlut-
vérki. Hún flytur einkum
bandarisk lög.
FÖSTUDAGUR
31. maí
21.35 Maöurlnn bak viö
myndavélina.
Bresk heimildamynd um
kvikmyndatökumanninn Di-
eter Plage og Mary, konu
hans, sem ferðast heims-
horna á milli til aö taka dýra-
lltsmyndir, oft viö erfiö og
jafnvel háskaleg skilyrði.
Þýöandi: Jón O. Edwald.
22.30 Vogun vinnur, vogun
tapar.
(A Song for Europe.) Ný
bresk-þýsk sjónvarpsmynd
sem byggö er á sann-
sögulegum viöburðum. Leik-
stjóri John Goldschmidt. Aö-
alhlutverk: David Suchet
ásamt Maria Schneider,
Reinhard Glemnits, George
Claisse og Robert Freitag.
Myndin er um háttsettan
starfsmenn lytsölufyrirtækis I
Sviss sem kærir húsbændur
slna fyrir brot á við-
skiptareglum Evrópu-
bandalagsins. Hann veröur
að gjalda þessarar uppljóstr-
unar dýru veröi þegar fyrir-
tækiö hefur gagnsókn. Þýö-
andi Kristmann Eiösson.
00.10 Fréttir I dagskrárlok.
kvartett eftir Jón Leifs.
22.00 Tónlist.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Úr blöndukútnum. —
Sverrir Páll Erlendsson. (RÚ-
VAK).
23.15 A sveitallnunni. Umsjón:
Hilda Torfadóttir. (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl
03.00.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Siguröur Sverr-
isson og Einar G. Einarsson.
14.00—16.00 Pósthólfiö
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
(Rásirnar samtengdar aö
lokinni dagskrá rásar 1.)