Morgunblaðið - 31.05.1985, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985
9
íbúð með húsgögnum
Tölvufyrirtækiö Norsk Data óskar aö taka á leigu nú
þegar eða sem fyrst 3ja-4ra herb. íbúö með húsgögnum
fyrir starfsmenn sína. Leigutími til hausts.
Tilboö sendist augl.deild Mbl. merkt: „ND - 1600“.
PEISINN
Kirkjuhvoli-sími 20160
Meirihlirti ftimkrwilrilfnur VeHt»m«»w«H»nib*n<fains:
Tafarlausar viðræður við
Vinnuveitendasambandið
Jón Karlsson dró ranga ályktun vegna orða Guðmundar J. Gnómundssonar
mihll .... »«i I —- Vinl n ni»i>i i m n*. ^
bandunn á mor«un. fðatodac til aó mann* V.
raóa þeaaa afatóðo meirihlut*
_____ haOi takjó þátt I ftutaia*i
þairrar tillóri hefói earió aó. aó
h»na hefói tróaó formaaai VMSl
þá am aó akki wari tíl nein. aó taU
rió VSI um kjarabmtur. áðor en
■amaiacar rynnu ót
Meirihluti framkvæmdastjórnar VMSÍ
vill viöræöur strax
Mikill meirihluti framkvæmdastjórnar Verkamannasambands
íslands hefur lýst yfir þeim vilja sínum aö hefja tafarlausar viö-
ræöur við VSÍ um samningstilboð þess. Þessi afstaöa stríöir
gegn fyrri niðurstöðu formannafundar VMSÍ. Nýr formannafund-
ur kemur saman til aö ræöa þessi mál í dag. Stjórn Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, fjölmennasta launþegafélags landsins,
samþykkti í fyrradag aö ganga til viðræöna viö VSÍ með ákveðn-
um skilyrðum. Staksteinar staldra viö þessi mál í dag.
Yfirlýsing Jóns
Karlssonar
Jón Karlsson, formaður
verkalýðsfélags á Sauðár-
króki, er stðð að fyrri sam-
þykkt formannafundar
VMSl, greinir frá því í við-
tali við Morgunblaðið í
gær, að sú afstaða hafí
byggzt á fullyrðingu Guð-
mundar J. Guðmundsson-
ar, formanns Dagsbrúnar,
sem reynzt hafí röng.
Hann kvaðst hafa lagt
trúnað á staðhæfíngu for-
manns Dagsbrúnar, sem
jafnframt er þingmaður
fyrir Alþýðubandalagið,
þess efnis, „að Vinnuveit-
endasambandið væri ekki
til viðtals um neinar kjara-
bætur, og þvi væru allar
viðræður við það tilgangs-
lausar", eins og segir í til
vitnuðu fréttaviðtali.
Um tilboð VSÍ, sem nú
liggur fyrir, segir Jón
Karlsson orðrétt í viðtal-
inu:
„Auðvitað þarf tilboð
VSÍ lagfæringa við og ekki
er hægt að ganga að því
óbreyttu, en það sýnir að
vilji er fyrir hendi til við-
ræðna og það er meira en
mér var sagt af formanni
VMSÍ fyrir viku.“
Sjö gegn
þremur
Hart var deil á fram-
kvæmdastjðrnarfundi
VMSÍ fyrr í vikunni um af-
stöðu tÚ tilboðs VSÍ. Þeir
sem mæltu gegn viðræðum
vðru Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaöur Dags-
brúnar og þingmaöur A1
þýðubandalags, Jðn Kjart-
ansson frá Vestmannaeyj-
um og Sigrún Clausen frá
AkranesL
Sjö framkvæmdastjðrn-
armenn lýstu hinsvegar yf-
ir vilja til að ganga þegar
til samningaviðræðna við
VSÍ, þeirra á meðal Jðn
Karlsson frá Sauöárkróki,
sem fyrr er getið.
Þessi niðurstaða sýnir að
mikill meirihhiti fram-
kvæmdastjórnar Verka-
mannasambandsins er síð-
ur en svo sáttur við ákvörð-
un formannafundar, sem
nú er Ijóst að knúin var
fram með villandi upplýs-
ingum, að ekki sé fastar að
orði kveðið.
Akvöröun Qölmennasta
launþegafélags landsins,
V erzlunarmannnafélags
Reykjavikur, um að ganga
þegar til viðræðna við við-
semjendur með ákveðnum
skilyrðum, áréttar enn og
aftur, að meirihluti launa-
fðlks vehir fremur faglega
kjarabaráttu en „pðlitíska
forsjá" Alþýðubandalags-
ins.
Flokkspólitísk
midstýring
Alþýðubandalaginu bef-
ur mistekizt fíest siðustu
misserin. Stjðrnarandstaða
þess er bæði klúðursleg og
veik — og máske bezta
stoð ríkisstjórnarinnar þeg-
ar grannt er gáð.
Sitthvað orkar tvímælis í
vinnulagi ríkisstjórnarinn-
ar. I augum flestra er Þó
stjórnarandstaðan, veik og
sundruð og án beild-
stæðrar stefnu í meginmál
um, sýnu verri kostur.
Veikasti hlekkurinn f
veikri stjórnarandstöðu er
þð Alþýðubandalagið. Það
er þessi fráhrindandi kost-
ur sem festir rfldsstjórnina
í sessi, í hugum aímenn-
ings, betur en fíest annað.
Svavari Gestssyni, for-
manni Alþýðubandalagsins
og fyrrverandi ráðherra
1978—1983, befur tekizt
fíokksstjórnin illa. Hrðfa-
tildur AJþýðubandalagsins
hefur steytt á skeri fylgis-
taps í hverri skoðanakönn-
uninni á fætur annarri,
ekki sízt eftir að Fylkingin,
samtök byltingarsinnaðra
sósíalista, gekk í einu lagi í
fíokkinn og settist við fðt-
skör formannsins.
Þrautaráð fíokksfor-
mannsins og Fylkingarinn-
ar, eftir málefnalegt strand
á Alþingi og stanzlaust
fylgishrun f skoðanakönn-
unum, er að þröngva
fíokkspðlitískri miðstýr-
ingu upp á verkafýðshreyf-
inguna. Þannig sýnist for-
maöur Dagsbrúnar nánast
bandingi Fylkingarfélaga.
Árásir Fylkingarfélaga
og annarra „bandamanna“
flokksformannsins á Ás-
mund Stefánsson, forseta
ASÍ, bæði í málgagni
þeirra, Neista, og Þjððvilj-
anum, segja sína sögu, og
hana ófagra. Forseti ASf,
sem sjálfur heyrir til Al-
þýðubandalaginu, þykir
hinsvegar ekki nðgu mið-
stýrður né meðvitaður um
foðurlega forsjá flokksfor-
mannsins, sem er eins kon-
ar lifandi minnisvarði um
margfrægan ráðberra-
sðsíalisma.
Nú á að befna þess í hér-
aði sem hallaöist á á Al
þingi. Nú á að ná fram
flokkspðlitískum markmið-
um með fíokkspðlitískri
miðstýringu á launþega-
samtökum. þ.e.a.s. ef Al-
þýðubandalaginu bregzt
ekki bogalistin enn og aft-
ur, enda „sérhæft" orðið á
þeim vettvangi.
Áskríftarsíminn er 83033
BARNAÖRYGGI
Börnunum er óhætt í baði
þar sem hitastillta Danfoss
baðblöndunartækið gætir
rétta hitastigsins. Á því er
öryggi gegn of heitu vatni.
Kannaðu aðra kosti Dan-
foss og verðið kemur þér á
óvart.
= HEOINN =
SEUAVEGI 2.SIMI 24260
Hjartanlegar þakkxr og kveðjur sendi ég
skyldfólki mínu, vinum og kunningjum sem
glöddu mig meö heimsóknum, gjöfum og skeyt-
um á 85 ára afmælisdegi mínum 22. maí.
Guö blessi ykkur öll.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Túngötu 17,
Patreksfirði.
Innilegar þakkir til œttingja minna og vina
sem heiöruóu mig á 90 ára afmæli mínu þann
10. maí sl.
Guö blessi ykkur öll.
Jóhandine Sæby,
Siglufirði.
PRENTVEL
Til sölu er lítið notuð og
einstaklega vel með farin
Original Heidelberg
prentvél.
Verð kr. 250.000.
Upplýsingar í síma 40112.