Morgunblaðið - 31.05.1985, Page 26

Morgunblaðið - 31.05.1985, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985 Meiri neyð en orð fá lýst AP/Símamynd Neyð fólks á hörmunasræðunum í Bangladesh er enn meiri en orð fá lýst, það vantar matvæli, drykkjarvatn, lyf, skjól, í stuttu máli: Nær allL Konan á myndinni grætur og þorir ekki undan regnhlífinni. Hún slapp undan flóðbylgjunni með ótrúlegum hætti, skolaðist með henni langar leiðir, en reyndist ekki feig. Öðru máli gegnir um fjölskyldu hennar, um tíu manns. Eftir lifir konan ein. Afvopnunarviðræður í gang á ný: Fundað í á aðra klukkustund í dag (k*nf, Svíhn. 30. maí. AP. ÖNNUR lota afvopnunarviðræðna Sovétríkjanna og Bandaríkjanna hófst í dag með fundi sendinefnda ríkjanna. Stóð fundurinn í eina klukkustund og tuttugu mínútur og fór fáum eða engum sögum um gang mála. Síðustu dagana fram að fundin- um í dag hafa rannsóknir Banda- ríkjamanna á geimvarnarkerfi verið í sviðsljósi sovéskra fjöl- miðla sem hafa fundið rannsókn- unum allt til foráttu og ásakað bandaríkjamenn um að spilla þeim möguleikum á sáttum sem fyrir hendi eru. Karpov, aðal- samningamaður Sovétmanna, sagði, áður en fundurinn hófst, að stórveldin væru sammála um að koma bæri í veg fyrir vígbúnað- arkapphlaup í geimnum, deilt væri hins vegar um framkvæmda- hliðina. Karpov sagðist vera „hagsýnn bjartsýnismaður" og telur að árangur gæti náðst í þessari lotu ef hugarfarið væri rétt. Báðir aðil- ar voru sammála um að lítið hafi þokast í fyrstu lotunni sem lauk fyrir 5 vikum. Alþjóðleg friðarráðstefna um Miðausturlönd: Er stefna Bandaríkja- stjórnar að breytast? Washington og Túnin, 30. maí. AP. BANDARÍKIN hafa verið mótfallin því að halda friðarráðstefnu um mál- efni Miðausturlanda á þeim for- sendum, að slík samkoma yrði ekk- ert annað en „pólitískur leikara- skapur". En nú getur verið að breyt- ing sé að verða á afstöðu banda- rískra stjórnvalda, ekki síst fyrir orð Husseins Jórdaníukonungs. Hussein sagði í Wahington í gær, að frelsisfylking Palestínu- araba væri reiðubúin til að viður- kenna tilverurétt Israels á grundvelli ályktana öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Hussein kvað Jórdaníumenn og Palestínumenn fúsa til að setjast að samningaborðinu með ísraels- mönnum á ráðstefnu, þar sem Bandaríkin, Kína, Bretland og Frakkland yrðu einnig þátttak- endur. „Ég vona, að einurð Bandaríkj- anna verði svo mikil í þessu máli, að þeir sjái sér fært að bregðast nú jákvætt við friðarviðleitni okkar," sagði Hussein. Það sem kom á óvart í boðskap Husseins var að Yassar Arafat, leiðtogi Frelsisfylkingar Palest- ínuaraba, PLO, skyldi hafa lagt blessun sína yfir, að samningavið- ræðurnar yrðu grundvallaðar á ályktunum öryggisráðs SÞ nr. 242 og 338 frá 1967 og 1973.1 ályktun- um þessum er kveðið á um tilveru- rétt ísraela, en aðeins talað um Palestínumenn sem flóttamenn og í engu getið réttar þeirra til stofn- unar sjálfstæðs ríkis. Frakkland: Kaldur vetur eyðilagði kampavíns- uppskeruna ParÍM, 28. mu'. AP. HINN harði vetur sem nú hefur runnið sitt skeið á enda kvaddi þó ekki fyrr en hann hafði skilið við vínakra í Frakklandi í slæmu ásigkomulagi. Hafa samtök kampavínsframleiðanda í land- inu spáð því að uppskeran verði rýr og framleiðsla kampavíns því með minnsta móti þetta árið. Talsmaður framleiðenda sagði í dag, að um 10.000 af 25.000 hekturum vínberja- ræktarlandsins hefðu skemmst svo mjög í frostun- um, að uppskera af þeim yrði því sem næst engin og ein- hverjar skemmdir hefðu einn- ig orðið á hinum 15.000 hekt- urunum. Góð uppskera árin 1982 og 1983 varð til þess að enn eru til vinberjabirgðir síð- an og það mun hjálpa til við að koma í veg fyrir hrun kampa- vínsframleiðslu, samt sem áð- ur munu margir vínberja- bændur og vínframleiðendur standa frammi fyrir miklum fjárhagslegum vanda i ljósi uppskerubrestsins. Stór sovéskur floti siglir norður í höf Háttsettur Rússi hverfur í Aþenu Lundúnum, 30. naí. AP. BANDARÍSK, hollensk, portúgölsk og frönsk herskip hafa að undan- förnu fylgst með stærsta hernaðar- flota Sovétríkjanna sem nokkru sinni hefur safnast saman í Miðjarð- arhafi. 24. maí sigldu sovésku skipin út á Atlantshaf og síðast er fréttist voru skipin stödd norðvestur af Bretlandseyjum. Sovésku skipin voru 8 talsins, í fararbroddi flugmóðurskipið Kænugarður, einnig tvö herskip, fjórir tundurspillar og ein frei-- gáta. Portúgalskur tundurspillir var fyrstur á vettvang, en síðan bættust fleiri skip í fylgdina. Kænugarður hefur verið í Svarta- hafi í tvö ár og sérfræðingar telja að nú eigi skipið að styrkja sov- éska flotann í norðurhöfum. Aþenu, 30. maí. AP. SERGEI Bokhane, fyrsti rit- ari sovéska sendiráðsins í Fimm með alnæmi í Japan Tókýó, 30. maí. AP. YFIRVÖLD heilbrigðismála í Japan greindu frá því í dag, að fimm menn befðu sýkst af alnæmi (AIDS) þar f landi. Þrír mannanna eru látnir. Þeir voru dreyrasjúklingar, sem smituð- ust eftir að þeir fengu blöðvökva, sem fluttur var inn frá Bandaríkjun- um. Hinir alnæmissjúklingarnir tveir eru hommar, sem talið er að hafi sýkst erlendis. Aþenu, er horfinn og er ekki vitað hvar hann er niðurkom- inn. Gríska lögreglan telur að hann hafi leitað hælis í einhverju vestrænu sendiráði í borginni. Bokhane, sem er fimmtugur að aldri og hefur starfað við sendi- ráðið frá því september 1982, átti að snúa aftur heim til Sovétríkj- anna á mánudag ásamt konu sinni og sjö ára dóttur þeirra. Hann hefur ekki sést síðan á laugardag, er hann ók á brott frá sendiráðs- bústaðnum. Þá kvaðst hann aðeins ætla að skreppa frá stutta stund. Eiginkona Bokhane tilkynnti lögreglu um hvarf hans á mánu- dag og hélt úr landi með dótturina á miðvikudag. Ósló: Lögreglumenn mót- mæla lágum launum Ósló, 29. maí. Kri Jan Erik Lauré, fréturitara Mbl. EINKENNISKLÆDDIR lögreglu- menn, 2.436 talsins, gengu í dag fylktu liði um götu Óslóarborgar og höfðu uppi mótmæli gegn lágum launum. Árið 1957 voru norskir lögreglu- menn sviptir verkfallsréttinum en þá var jafnframt samþykkt, að laun þeirra skyldu ávallt hækka til jafns við laun á almennum vinnumarkaði. Sú hefur hins veg- ar ekki verið raunin, segja lög- reglumennirnir og benda á, að nú séu hæstu laun innan lögreglunn- ar 118.000 nkr. eða um 550.000 fsl. Segjast þeir vera orðnir langt á eftir sambærilegum starfshópum hjá ríkinu og krefjast þriggja launaflokka hækkunar. Mótmælaganga lögreglumann- anna var mörg hundruð metra löng og vakti mikla athygli enda hafa ekki fyrr sést jafn margir lögreglumenn saman komnir í Noregi. Luku þeir göngu sinni fyrir framan forsætisráðuneytið i Osló en þar tók á móti þeim Mona Rökke, dómsmálaráðherra, og hét því, að ríkisstjórnin myndi taka launamálin til endurskoðunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.