Morgunblaðið - 31.05.1985, Side 56

Morgunblaðið - 31.05.1985, Side 56
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Álitegerð um þróun fiskeldis: Framleiðslan 60 þúsund tonn á ári eftir 30 ár? f DRÖGUM að álitsgerð um þróun fiskeldLs sem sUrfshópur i vegum Rann- sóknaráðs ríkisins hefur tekið saman er gert ráð fyrir að fiskeldisframleiðslan verði orðin 10—15 þúsund tonn um aldamót. Gert er ráð fyrir, að Hskeldi geti þróast mishratt, háð þeim aðgerðum sem gerðar verða til að auka samkeppnis- aðstöðu þess. Gerðar eru spár um hæga, meðalhraða og hraða þróun fiskeldis. Með luegrí þróun er framleiðslan áætluð 20 þúsund tonn eftir 30 ár, 40 þúsund með meðalhraða og 60 þúsund tonn eftir 30 ár með hraðri þróun nskeldis. Hæg þróun fiskeldis miðast við nær óbreytt ástand fiskeldismála; lélegt skipulag og stjórnun, litlar markvissar rannsóknir í líffræði, lítið fylgst með markaðsmálum, svipaðar forsendur varðandi stofn- kostnað, orkukostnað og fóður- -kostnað og lagðar eru til grund- vallar í dag. Reiknað er með að verð á laxi fari lækkandi upp úr 1990 um svipað leyti og festa er að komast á markaðsmál einstakra fyrirtækja. Meðalhröð þróun fiskeldis miðast við markvisst skipulag eldisfyrir- tækja; lélegt skipulag rannsókna og hagnýting rannsóknaniðurstaða bágborin; gert er ráð fyrir að til- raunstarf stærri eldisfyrirtækja leiði til úrbóta hjá þeim en hagnýt- ist ekki öðrum; markaðssetning verði á vegum einstakra eldisfyrir- J^tækja, innlent fjármagn af skorn- um skammti sem leiðir til aukinnar hlutdeildar erlendra fyrirtækja. Kókaínsmyglið: ítalinn dæmdur - stúlkan úr landi ÍTALINN, sem tekinn var fyrír kókaínsmygl, var í gærkvöldi dæmdur í 4 mánaða fangelsi I Sakadómi í ávana- og fíkniefna- málum. Brazilísku stúlkunni, sem kom með honum hingað til lands, var sleppt úr haldi og fór hún með Fhigleiðavél til Lundúna síðdegis í gær. Embætti ríkissaksóknara gaf út ákæru á hendur ítalanum í gær, en ekki þótti ástæða til að ákæra stúlkuna. ítalinn var dæmdur fyrir til- raun til að smygla 18,9 grömm- um af kókaíni i sendibréfi. Hann sendi bréfið hingað frá Sao Pa- olo í Brazilíu og stílaði á sjálfan sig. Grunsemdir vöknuðu meðal tollvarða og var hann látinn opna bréfið þegar hann sótti það. Islensk hjón voru handtek- in vegna grunsemda um að vera viðriðin málið, en var sleppt eft- ir yfirheyrslur. Reiknað er með úrbótum í fóður- framleiðslu sem leiði til lægra fóð- urverðs. Hár virkjunar- og orku- kostnaður leiðir til þess að eldi beinist til staða þar sem virkjunar- kostnaður er lágur. Loks er sagt að hröð þróun fisk- eldis miðist við að eftirtöldum at- riðum verði fullnægt: Tekið sé upp markvisst skipulag í öllum málum sem snerta fiskeldi; frumkvæðið sé í höndum eldisfyrirtækja og sam- taka þeirra; unnið verði markvisst rannsókna- og þróunarstarf í eld- istækni og mannvirkjagerð, þar sem leitað væri að ódýrustu leiðum í seiðaeldi og matfiskeldi; fóður- framleiðsla á fárra höndum í stór- um einingum; seiðaeldi í stórum einingum; sameiginleg markaðs- setning eldisfyrirtækja. Aukin áhersla lögð á grunnrannsóknir til að bæta skilning á viðbrögðum eld- istegunda við umhverfisbreytingum og leiði það til betri stjórnunar og árangurs í eldi. Nægt lánsfjármagn verði á sanngjörnum vöxtum; fram- boð á hæfu starfsfólki og skipulegar aðgerðir til að lækka orkukostnað. Morgunbla&id/G .Berg Snœldu-Blesi í röntgenmyndatöku STÓÐHESTURINN Snældu-Blesi fór í röntgen- myndatoku á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í gær. Snældu-Blesi varð fyrir því óhappi að fótbrotna í fyrra. Eigandi hans, Magni Kjartansson bóndi í Ár- gerði í Eyjafirði, tók til sinna ráða og fékk ýmsa sérfræðinga í lið með sér sem hafa gert allt til þess að fá brotið til að gróa, enda er Snældu-Blesi með efni- legri stóðhestum á íslandi í dag. Að sögn Júlíusar Gestssonar læknis, sem er einn þeirra sem annast hafa Snældu-Blesa, er brotið ekki gróið enn. Settar voru spelkur á klárinn og getur hann tyllt í fótinn. En líklega verður Snældu-Blesi alltaf haltur, þó brotið grói. Menn gera sér vonir um að þrátt fyrir það verði hægt að nota hann til undaneldis í framtíðinni. Myndin sýnir Snældu-Blesa þegar verið var að taka af honum röntgenmyndir í gær. Við hlið hans stendur eigandinn, Magni Kjartansson bóndi í Árgerði. Tillögur stjómarandstöðunnar í húsnæðismálum: Vilja með afla tveggja milljarða aukinni skattheimtu FULLTRÚAR stjórnarandstöðunnar vilja afia allt að tveimur milljörðum króna til húsnæðislánakerfisins á næstu 18 mánuðum, eða til ársloka 1986. Þetta er næstum því tvöfalt það Ijármagn sem stjórnarflokkarnir gera ráð fyrir að leggja í þennan málaflokk á næstu 18 mánuðum, ef tillögur stjórnarflokkanna eru framreiknaðar. Þetta kom fram á fundi sem fulltrúar stjórnarandstöðunnar og þeir Þor- steinn Pálsson formaður Sjálfstæðis- flokksins og Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra sátu í gær. Þar kynntu þau Jóhanna Sigurðardóttir, Svavar Gestsson og Stefán Bene- diktsson stjórnarflokkaformönnunum sínar tillögur í húsnæðismálum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins felast hugmyndir stjórnar- andstöðunnar um fjáröflunarleiðir einkum í aukinni skattheimtu, en einnig í tilfærslu fjármuna, inn- lendri lánsfjármyndun og sam- drætti í ríkisrekstri. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því, að þótt stjórnarandstaðan hafi skilað sam- eiginlegum tillögum, þá sé ekki al- gjör samstaða innan hennar um leiðir. Einkum mun Alþýðuflokkur- inn vera andvígur söluskatts- hækkuninni. Stjórnarandstaðan mun þó vera reiðubúin til þess að sitja hjá, þegar að atkvæðagreiðslu í þinginu kemur um að hækka söluskattinn um eitt prósentustig. Báðir aðilar eru nú sammála um að falla frá skyldu- sparnaði á hátekjur, en stjórnar- ^ Húsnæðissparnaðarreikningan Fjórðungur reglulegs sparnaðar skattfrjáls .STJÓRNARFRUMVARP um húsnæðissparnaðarreikninga í bönkum og spari- sjóðum var lagt fram á Alþingi í gær. Meginregla frumvarpsins er sú að reglubundinn sparnaður einstaklinga á húsnæðissparnaðarreikningum skapar rétt til skattafsláttar er nemur fjórðungi árlegs innleggs. Árlegur sparnaður skal vera minnst tólf þúsund krónur en mest hundrað og tuttugu þúsund krónur og breytist upphæð í samræmi við byggingavísitölu. Sparnaður skal vera reglulegur og varða vanskil viðurlögum, s.s. missi skattafsláttar. Sparifé má taka út eftir þriggja ára binditíma ef menn afla sér íbúðarhúsnæðis til eigin nota eða ráðast i meiriháttar endurbætur en ella er féð bundið til tíu ára (5 ár fyrir lífeyrisþega og 75% öryrkja). Auk mikilvægs skattafsláttar nýtur spariféð beztu ávöxtunar- kjara í viðkomandi peningastofnun og kann að stofna til réttar á láni við úttekt sparnaðarins, eftir því sem viðkomandi banki eða spari- sjóður ákveður. Þeir sem náð hafa 16 ára aldri geta stofnað til húsnæðissparnað- arreiknings. f stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar um átak í húsnæðismálum er heitið fjölbreyttari sparnaðar- áformum. Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra skipaði nefnd til að 'ylgja eftir þessari yfirlýsingu. Formaður hennar er Halldór Blöndal alþingismaður. Sú nefnd samdi framangreint stjórnar- frumvarp. fiokkarnir höfðu gert tillögu þar um. Stjórnarandstaðan leggur til að 0,25% eignaskattsviðaukinn, sem stjórnárliðar vilja leggja á skuld- lausar eignir einstaklinga sem eru 3,5 milljóna virði eða meira, og á fyrirtæki verði sama prósentutala hjá einstaklingum, en eignaskattur fyrirtækja hækki hins vegar um 100%, eða úr 0,95% í 1,9%. Tillögur stjórnarfiokkanna gerðu ráð fyrir því að 370 milljóna yrði afiað á þessu ári, og þar af skiluðu sér 70 til 90 milljónir vegna eignaskattsvið- aukans. Stjórnarandstaðan segir tillögur sinar ekki vera neina úrslitakosti, en bendir á að ef þær tillögur sem hún hefur gert verða framkvæmd- ar, þá sé hér um mun vfðtækari lausn á vanda húsbyggjenda að ræða, en felist i tillögum stjórnar- fiokkanna. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra vildi í gær ekki tjá sig um tillögur stjórnarandstöð- unnar. Hann var spurður hvort þau orð hans, að tillögur stjórnarfiokk- anna myndu ekkert breytast, stæðu óhögguð: „Ég hef ekki trú á því að þar verði breytt miklu, en vissulega munum við skoða þeirra tillögur af fullri alvöru.“ Sömu aðilar munu ræðast við á nýjan leik síðdegis f dag, og þá munu þeir Steingrímur og Þor- steinn greina frá afstöðu sinna flokka til tillagna stjórnarandstöð- unnar. Búist er við að endanlega verði gengið frá þessum málum nú um helgina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.