Morgunblaðið - 15.06.1985, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1985
--------—n—r—n------- :1 r
TTT
Jacques Delors, framkvæmdastjóri EB:
Evrópuríkin taki þátt í banda-
rískum geimvarnarannsóknum
Hrussel, 14. júni. AP.
Jacques Delors, aöalframkvæmda-
stjóri Evrópubandalagsins, sagði í
dag, fóstudag, aö Evrópuríkin ættu
aö hefja samningaviöræöur viö
bandarísk stjórnvöld í því skyni að
Bretland:
Verðbólga
vex í 7 %
London, 14. júní. AP.
ÁRLEG verðbólga í Bretlandi mæld-
ist 7% í maí, og hefur hún ekki veriö
eins mikil í tvö og hálft ár.
Atvinnumálaráðherra Bret-
lands, Tom King, kvað þó ríkis-
stjórnina gera ráð fyrir að verð-
bólga minnkaði aftur á seinni
hluta ársins. Það, sem rynni stoð-
um undir þessa spá, væri að verð á
iðnvöru, eldsneyti og ýmsum hrá-
efnum hefði hækkað nú um aðeins
3,6% í samanburði við 10% í
febrúar.
Hins vegar sagði einn leiðtoga
Verkamannaflokksins, Roy Hatt-
ersley, að hinar slæmu efnahags-
tölur mætti rekja til „kolrangrar
efnahagsstefnu stjórnarinnar
undir forystu Margrétar Thatcher
forsætisráðherra".
gerast þátttakendur í geimvarna-
rannsóknum Bandaríkjamanna.
Delors sagði á fréttamanna-
fundi í aðalstöðvum framkvæmda-
ráðs Evrópubandalagsins, að
nauðsynlegt væri að semja við
Bandaríkjamenn um þetta efni, ef
koma ætti í veg fyrir stórfelldan
flótta vísindamanna vestur um
Er litið á þessa ákvörðun sem
svar stjórnar sandinista við sam-
þykkt fulltrúadeildar bandaríska
þingsins sl. miðvikudag um að veita
skæruliðum í Nicaragua 27 milljón
dollara fjárhagsaðstoð.
Ortega kvað samþykkt banda-
ríska þingsins vera ólöglega og sið-
lausa. Nú væri nauðsynlegt að efla
varnir Nicaragua því að hætta á
innrás Bandaríkjamanna hefði auk-
ist til muna.
haf.
Búist er við, að Delors leggi
fram skýrslu um þetta efni á fundi
æðstu manna bandalagsins í Míl-
anó seinna í þessum mánuði. Á
þeim fundi er enn fremur búist
við, að tillaga Frakka um „Eur-
eka“, geimrannsóknastofnun Evr-
ópu, komi til umfjöllunar.
Hvatti Ortega í útvarpsávarpi til
þjóðarinnar til þess að sérhver legði
sitt af mörkum til að vinna bug á
skæruliðum, svo að unnt væri að
koma í veg fyrir að Bandaríkja-
menn réðust inn i landið.
Bandaríkjamenn hafa haldið þvi
fram að þær fullkomnu herþotur,
sem Ortega gaf í skyn að keyptar
yrðu, kunni að raska valdajafnvægi
í Mið-Ameríku.
Nicaragua:
Aflétta banni við
innflutningi hergagna
Managua, 14. júnf. AP. ° C-F °
FORSETI Nicaragua, Daníel Ortega, lýsti yfir því í dag, aö hann mundi
aflétta fimm mánaða banni við innflutningi hergagna til landsins. Gaf hann
einnig í skyn aö stjórn sín mundi reyna á ný að festa kaup á fullkomnum
herþotum, sem gegna því hlutverki að ráðast gegn árasarflugvélum.
Falklandseyjastrídsins minnst
Elísabet II Bretlandsdrottning sést hér koma ásamt syni sínum, And-
rew, til athafnar f Sankti Páls-dómkirkjunni f Lundúnum til minningar
um aö þrjú ár eru nú liðin frá lokum Falklandseyjastríðsins. Drottning-
in afhjúpaði minnismerki við athöfnina og Andrew prins, sem tók þátt í
stríðinu, kom þar fyrir blómsveig fyrir hönd íbúa Falklandseyja.
Gengi gjaldmiðla:
Dalur lækkar
London, 14. juni. AP.
ORÐRÓMUR um að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefði fengið
hjartaáfall olli því að dollarinn féll
gull í verði.
Gengi dollarans féll um 1% til
1,5% á aðeins hálftima er sögu-
sagnir um veikindi forsetans
komust á kreik. Dollarinn rétti
þó úr kútnum eftir að talsmenn
Hvíta hússins báru orðróminn
til baka.
Á hinn bóginn lækkaði dollar-
inn aftur seinna um daginn er
efnhagstölur frá Bandaríkjunum
voru birtar, en samkvæmt þeim
dróst iðnframleiðsla saman um
0,1% í maí. Er þetta talin vís-
bending þess að dregið hafi úr
efnahagsbatanum.
Þegar gjaldeyrismarkaðir lok-
uðu í Tókýó síðdegis fengust
í verði í dag. Hins vegar hækkaði
249,50 yen fyrir dollarann, en
það er lækkun frá 249,90 yenum í
gær. í lok viðskipta í London
fengust hins vegar 248,52 yen
fyrir dollarann.
Sterlingspund hækkaði í dag
gagnvart dollar. Fyrir pundið
fengust 1,2795 dollarar, en í gær
voru það 1,2647.
Gengi annarra helstu gjald-
miðla gagnvart dollar er sem hér
segir:
3,0615 vestur-þýsk mörk (í gær 3,0980)
2,5755 svissneskir frankar (2,6107)
9,3450 franskir frankar (9,4250) 3,4525
hollensk gyllini (3,4875) 1.949,00 ítalskar
lirur (1.969,00) og 1,3685 kanadískir doll-
arar (1,3723).
Botswana:
16 manns felldir í
árás S-Afríkuhers
Gaborone, Botswana, London og Washington, 14. júnf. AP.
Hermenn frá Suöur-Afríku fóru snemma í morgun inn í Gaborone, höfuð-
borg Botswana, og réðust með vélbyssuskothríö og handsprengjukasti á tíu
staöi, sem þeir töldu vera aösetur skæruliða. Að minnsta kosti 16 manns
voru felldir í árásinni, að sögn yfirmanns suður-afríska heraflans, Constand
Viljoen hershöfðingja.
Viljoen kvað hermennina hafa
gert skyndiárás á aðsetur Afríska
þjóðaráðsins, en það eru helstu
samtök skæruliða, sem berjast
gegn aðskilnaðarstefnu Suður-
Afríku-stjórnar.
Forseti Botswana, Quett Masire,
sagði, að árásaraðgerðirnar hefðu
verið „hörmulegar" og meðal
þeirra sem fallið hefðu væri fimm
ára gamalt stúlkubarn. Kvað hann
skothríð suður-afrísku hermann-
anna hafa verið hamslausa.
Viljoen sagði fréttamönnum í
Pretoríu, að árásarmennirnir
hefðu sært eina konu og tvö börn,
þó að það hefði ekki verið ætlunin,
og dauði litlu stúlkunnar hefði
verið „sorglegur atburður".
í dag fordæmdi breska stjórnin
árásina harðlega og var sendi-
herra Suður-Afríku krafinn skýr-
inga.
I yfirlýsingu utanríkisráðuneyt-
isins sagði, að „við fordæmum
þetta blygðunarlausa brot gegn
fullveldi einnar af þjóðum Breska
samveldisins og hörmum mann-
tjón það sem af árásinni hlaust.“
í dag fordæmdu bandarísk
stjórnvöld árásina og kölluðu
heim sendiherra sinn í Suður-
Afríku, Herman Nickel, í mót-
mælaskyni.
Æxliseyðirinn — nýtt vopn í
baráttunni við krabbameinið
í BANDARÍKJUNUM veröur brátt fariö að gera tilraunir á mönnum meö
fágætt, náttúrulegt efni, sem vísindamenn víða um heim binda miklar vonir
viö og trúa, að geti komið að miklu liði í baráttunni viö krabbameinið. Hefur
efnið þau áhrif, að þaö eyðir krabbameinsfrumunum en lætur heilbrigðu
frumurnar ósnertar.
Efnið, sem á ensku kallast
„tumor necrosis factor", verður
hér kallað æxliseyðir, en talið er
að það gegni miklu hlutverki í
varnarkerfi líkamans. Mjög lítið
er af því í líkama manna og dýra
en líklegt þykir að með aðferðum
erfðaverkfræðinnar megi fram-
leiða það í miklu magni.
Á liðnum árum hafa stundum
vaknað vonir um, að fundið væri
nýtt og öflugt lyf gegn krabba-
meininu en þessar vonir hafa þvi
miður brugðist að flestu leyti.
Þannig var það t.d. með berkla-
lyfið BCG og interferón, sem
raunar verður einnig til í sjálfum
líkamanum. Bæði þessi efni eru
enn notuð og koma að gagni við
ákveðnar tegundir krabbameins
en um hvorugt er hægt að segja,
að það hafi markað tímamót.
Við rannsóknir á æxliseyðinum
hafa fengist ýmis svör við því
hvers vegna BCG og interferón
virtust lofa svo góðu i upphafi og
hvers vegna þau brugðust vonum
manna. „Við höfum fundið sam-
bandið þar á milli," sagði dr. Lloyd
J. Old, sem starfar við Sloan-
Kettering-krabbameinsrann-
sóknastöðina og átti mestan þátt í
að finna æxliseyðinn. Var dr. Old
að vinna að rannsóknum á BCG
þegar hann fann hann en þá kom
einnig í ljós, að samband var á
milli þeirrar uppgötvunar og at-
hugana skurðlæknisins Williams
B. Coleys fyrir einni öld. Coley
veitti þá athygli því undarlega
Aöeins sólarhring eftir
aö æxliseyöirinn hafði
veriö notaður höföu
veggir sumra krabba-
meinsfrumnanna rofn-
að og vöxtur annarra
stöövast. Efniö hafði
hins vegar engin áhrif á
heilbrigðu frumurnar.
fyrirbrigði, að þegar sumir sjúkl-
inga hans, sem voru með krabba-
mein, fengu alvarlega bakteríu-
sýkingu hurfu krabbameinsæxlin í
kjölfarið.
Við siðari rannsóknir var sýnt
fram á, að eitrað efni, sem bakt-
eríurnar framleiða og kallast end-
otoxin, hefur mjög eyðandi áhrif á
sumt krabbamein en hins er það
mjög hættulegt meðferðar.
Dr. Old og samstarfsmenn hans
uppgötvuðu æxliseyðinn við rann-
sóknir á dýrum, sem þeir sýktu
með BCG-sýklinum og sprautuðu
síðan með endotoxin.
Átfrumur likamans framleiddu
þá mjög öflugt efni, sem eyddi
krabbameinsfrumum en virtist
láta heilbrigðar frumur með öllu
ósnertar. Þess vegna var það kall-
að æxliseyðir. Dr. Old og sam-
starfsmenn hans hafa á tilrauna-
stofum athugað áhrif efnisins á 62
tegundir krabbameins og var út-
koman sú, að það eyddi alveg 19,
stöðvaði næstum vöxt 21 tegundar
en hafði engin áhrif á 22.
Rannsóknir, sem unnið hefur
verið að í ýmsum rannsóknar-
stöðvum að undanförnu, leiða í
ljós, að þegar æxliseyðirinn er
notaður ásamt interferón næst
rniklu betri árangur en þegar ann-
aðhvort efnið er notað eitt. Þessi
samvirkni er talin mjög mikilvæg