Morgunblaðið - 15.06.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNl 1985
Sri Lanka:
New York:
Stórtjón vegna
hótelverkfalls?
New York 13. júní. AF.
HORFUR eru á að verkfall
starfsmanna á 53 helstu hótel-
um New York-borgar muni hafa
milljóna dollara tjón í för með
sér vegna tekjumissis og
minnkandi viðskipta enda þótt
forráðamenn hótela og ferða-
mála séu tregir til að viður-
kenna það.
Verkfallið virðist þó ekki
hafa bitnað á ráðstefnuhaldi í
borginni. Embættismenn segja
að kostnaður við löggæsluna
eina sé orðinn 2,4 milljónir
dollara, frá því að verkfallið
hófst 1. júní.
Mikið hefur verið um afbók-
anir ýmissa aðila, sem beint
hafa viðskiptum sínum til ann-
arra hótela.
Meðaltekjur þeirra starfs-
manna sem nú eru í verkfalli
eru um 315 dollarar (12.300 ísl.
kr.) á viku.
Noregur:
Hagstæður vöru-
skiptajöfnuður í maí
<)s*ló, 13. júní. AP.
Yöruskiptajöfnuður Nor-
egs í maímánuði var hag-
stæður um ríflega 3,4 millj-
arða norskra króna (u.þ.b.
15,6 milljarða ísl. kr.), sam-
kvæmt bráðabirgðatölum,
sem hagstofa landsins birti í
dag.
Hagstofan kvað tekjuafgang
Norðmanna vegna utanríkisversl-
unarinnar um 16,9 milljarða n.
króna fyrstu fimm mánuði ársins,
og er það um 2,1% minna en á
sama tímabili i fyrra.
Á fyrstu fimm mánuðum ársins
voru fluttar út olíuvörur fyrir um
36,8 milljarða króna eða um 16,3%
meira en á sama tímabili í fyrra.
Ef olíuvörur eru ekki teknar
með er um 19,9 milljarða króna
halli á vöruskiptum landsins, um
38% meiri en á sama tíma í fyrra.
Skákmótið í Taxco:
Timman efstur
Taxco, Mexíkó, 14. júní. AP.
OLEG Romanishin, Sovétrfkjunum, vann í gær skák sína við Saeed Alamed
Saeed, Sameinðu furstadæmunum, en skákin var biðskák úr fyrstu umferð. í
annarri skák úr fyrstu umferð gerðu þeir jafntefli, Bandaríkjamennirnir Lev
Alburt og Walter Browne.
Engar skákir voru tefldar í dag,
fimmtudag, en fjórða umferð fer
fram á morgun, föstudag. í þriðju
umferðinni vann Tal biðskák við
Saeed en dómarinn ógilti skákina
og sagði, að tvö peð hefðu verið á
röngum reit þegar aftur var tekið
til við skákina. Var skákin tefld
aftur og Tal vann í annað sinn.
Eftir þrjár umferðir eru efstir
þeir Jan Timman, Hollandi, Tal,
Sovétríkjunum, Kevin Spragget,
Kanada, Jozef Pinter, Ungverja-
landi, og Marcel Sisniega, Mexíkó.
Nýjasta geimdísin AÍVSimamynd
Tammy Jernigan heitir nýjasta geimdísin þeirra Bandaríkjamanna og
jafnframt sú yngsta, en hún er aðeins 26 ára gömul. Hefur hún nú verið
munstruð sem skipverji um borð í geimferju þar sem hún á að vinna að
ýmsum rannsóknum. Jernigan er enn nemandi við háskólann í Kali-
forníu en mun nú á næstunni útskrifast þaðan sem doktor í stjarneðlis-
fræði.
Fær Ogarkov
uppreisn æru?
NIKOLAI OGARKOV marskálkur, sem var sviptur stöðu forseta sovézka
herráðsins í fyrrahaust, hefur sent frá sér bók um hermál. Útgáfa bókar-
innar hefur leitt til nýrra bollalegginga um hvort hann muni fá uppreisn
æru að sögn Washington Post.
Sovézka landvarnaráðuneytið
gefur bókina út og lofsamleg rit-
fregn fréttastofunnar Novosti gef-
ur til kynna að hún sé í svipuðum
dúr og fyrri bók Ogarkovs 1982.
í fyrri bókinni hvatti Ogarkov
til aukinnar árvekni í heraflanum,
hergagnaiðnaðinum og á öllum
sviðum atvinnulífsins.
Nýja bókin heitir „Sagan kennir
árvekni". Þar segir Ogarkov að
friði stafi aðallega hætta frá
Bandaríkjunum og hermálastefnu
bandarísku stjórnarinnar. Hann
hvetur Rússa til að auka mögu-
leika sína í efnahagsmálum og
varnarmálum til þess að hamla
gegn árásarfyrirætlunum Banda-
ríkiamanna.
Oljóst er hvort útgáfa bókarinn-
ar er vísbending um harðnandi
stefnu heraflans eða nýju leiðtog-
Kókuimendur sætta síg
ekki við nvja bragðið
Bandaríkin:
ÓHÆTT er að segja að nýja kókið hafi hlotið misjafnar viðtökur
neytenda í Bandaríkjunum, en nú er rúmlega einn og hálfur
mánuður frá því að það kom þar á markað.
Nú hafa jafnvel verið stofnuð
neytendasamtök meðai kókunn-
enda í því skyni að reyna að fá
framleiðendur Coca-Cola til að
hefja aftur framleiðslu á gamla
kókinu. Formaðurinn segir að
um 60 þúsund manns hafi hringt
í samtökin til að láta í ljós
óánægju sína yfir nýja kókinu.
Eldharðir „kókistar" telja að
þeir hafi verið sviknir: Nýja kók-
ið sé bæði sætara og líkara Pepsi
en hið gamla. Meira að segja
háðfuglinn Jean Shepard, sem
hefur haft það að lífsstarfi sínu
að segja brandara um kókið,
lýsti því yfir að hinn nýi drykkur
væri gjörsneyddur öllum húmor.
Rithöfundurinn Robert Hester
tók í svipaðan streng og sagði að
nýja bragðið bæri vitni um
„harmleik".
Það þarf því ekki að koma á
óvart að þeir sem ekki gátu sætt
sig við nýja bragðið voru reiðu-
búnir að greiða tvöfalt verð fyrir
uppáhaldsdrykk sinn meðan
birgðir entust. Og ein verslun
Beverly Hills í Kaliforníu var
ekki lengi að þrefalda verð sitt á
gamla kókinu. Einn kókunnandi
gekk meira að segja svo langt að
hann bauð sem samsvarar 41
þúsundi íslenskra króna í 60
flöskur af gamla kókinu, og fór
auk þess fram á að þær yrðu
sendar með hraðpósti til heimil-
is síns í Flórída.
Forstjóri Coca-Cola, Brian
Dyson, hefur nú fengið um 40
þúsund símhringingar og bréf
frá því nýja kókið kom á mark-
að. I langflestum tilvikum er hér
um að ræða fólk sem er óánægt
með nýja bragðið. „Þetta vekur
að vonum hjá okkur ugg, enda
viljum við að allir geti fellt sig
við nýja kókið,“ sagði forstjór-
inn, en hann bætti því þó við að
búist hefði verið við fleiri kvört-
unum.
Hins vegar eru framleiðendur
Pepsi hinir ánægðustu: „Mark-
mið Coke-framleiðenda var aug-
ljóslega að láta nýja kókið líkj-
ast pepsí, en þeim hefur ekki
tekist það,“ er haft eftir tals-
manni Pepsi-Cola í Bandaríkj-
unum. Þess má geta að sala á
pepsí í maí varð sú mesta í sögu
fyrirtækisins; óx hún um 14%
þann mánuð.
Samt sem áður eru framleið-
endur Coca-Cola vongóðir um að
nýja kókið eigi eftir að ganga
vel. Segja þeir að um 110 millj-
ónir neytenda hafi bragðað nýja
kókið, og halda því fram að
a.m.k. 75% þeirra muni kaupa
það aftur. Því muni salan í raun
tvöfaldast, en um 40 milljónir
neytenda keyptu gamla kókið á
dag.
A hinn bóginn staðhæfa fram-
leiðendur Pepsi að næstum
helmingur þeirra sem reynt hafa
nýja kókið kjósi fremur pepsí.
Eitt er a.m.k. víst: gosdrykkja-
stríðið er rétt hafið.
(Heimild: The New Vork Times.)
Vopnahlé
í sjónmáli
Nýju Delhí, 14. júní. AP.
BÚIST er við, að vopnahlé gangi í
gildi einhvern næstu daga á ófrið-
arsvæðunum í norður- og austur-
hluta Sri Lanka, að sögn indversku
fréttastofunnar UNI, og mun þá
Ijúka heiftarlegum átökum skæru-
liða tamfla og stjórnarhersins. Er
þetta þakkað nýlegum viðræöum
Rajiv Gandi, forsætisráðherra
Indlands, og Juniusar Jayeward-
ene, forseta Sri Lanka, í Nýju
Delhí.
Ekki er líklegt, að nein formleg
tilkynning verði gefin út af þessu
tilefni, að því er UNI hafði eftir
embættismönnum í Colombo,
höfuðborg Sri Lanka.
„Vopnagnýrinn mun skyndi-
lega hljóðna, og það fer ekki fram
hjá neinum," kvað UNI einn emb-
ættismann hafa sagt.
Yfir 230 manr.s hafa látið lífið í
átökum hinna stríðandi fylkinga
undanfarnar fjórar vikur.
Tamílar, sem eru um 18% íbú-
anna, hafa haldið fram, að þeir
hafi sætt ofsóknum af hálfu sin-
halesa, sem eru í meirihluta.
Herir beggja aðila hafa verið sak-
aðir um grimmilegar árásir á al-
menna borgara.
Ogarkov marskálkur
anna í Kreml undir forystu
Mikhail Gorbachevs. Bókin kemur
út á sama tíma og sovézkir og
bandarískir samningamenn sitja á
fundum um vígbúnaðarkapp-
hlaupið í Genf.
Ogarkov marskálkur var her-
ráðsforseti og fyrsti aðstoðarland-
varnaráðherra í sjö ár áður en
Konstantín Chernenko svipti
hann skyndilega störfum. Sumir
telja að hann hafi verið mótfallinn
þeirri ákvörðun stjórnmálaráðsins
að hefja nýjar viðræður við
Bandaríkjamenn í Genf.
Skömmu áður hafði Andrei
Gromyko utanríkisráðherra rætt
við Ronald Reagan forseta í Hvíta
húsinu. Eftir endurkjör Reagans
samþykktu Rússar nýjar Genfar-
viðræður. Þær höfðu legið niðri
síðan Bandaríkjamenn komu fyrir
stýriflaugum og Pershing-2-
flaugum í Vestur-Evrópu.
Orgakov marskálkur var
fremstur í flokki þeirra sem gagn-
rýndu staðsetningu þessara
flauga. Viðræður gátu hafizt aftur
í Genf, þar sem Chernenko tók
aðra afstöðu en Yuri Andropov,
fyrirrennari hans.
Lengi hafði verið talið að Ogar-
kov yrði landvarnaráðherra. Þeg-
ar honum var vikið frá var sagt að
honum hefði verið fengin önnur
störf, en þess var ekki getið hvaða
störf það væru.
Skömmu síðar sagði Grigori
Romanov, fulltrúi í stjórnmála-
ráðinu, að Ogarkov hefði verið
gerður að yfirmanni stórs her-
stjórnarumdæmis í vesturhluta
Sovétríkjanna. Samkvæmt öðrum
fréttum var Ogarkov gerður að yf-
irmanni herskóla.
Síðan hefur lítið sem ekkert
verið minnzt á Ogarkov í blöðum. í
desember var nafn hans neðarlega
á skrá um þá sem fylgdu Dmitri
Ustinov landvarnaráðherra til
grafar.