Morgunblaðið - 15.06.1985, Síða 27
MORGÚNBLAÐIÐ, LAÚGARDÁGÚR Í5. JÖÚÍ 1985
27
KRÓNPRINS MEÐ KONUNGI
AKIHITO, krónprins Japana, og kona hans, Michiko, voru nú í vikunni í opinberri heimsókn í Noregi og komu
til Óslóar sl. mánudagskvöld. Tók Ólafur, Noregskonungur, i móti þeim hjónunum á Fornebu-flugvelli og í
neðu, sem hann hélt krónprinsinum til heiðurs sagði hann, að hafið tengdi þjóðirnar tvær traustum böndum.
Eru það orð að sönnu og má geta þess, að 20% af verslunarflota Norðmanna eru bundin við það eitt að flytja
vörur til og frá Noregi og Japan. Logn var veðurs þegar Akihito kom til Óslóar en mikil rigning og var því
fenginn maður til að halda á regnhlíf yfir keisaraefninu.
Sovétríkin:
Olíu fr amleiðslan
jan.-maí 4 % minni
en á sama tíma ’84
Moskvu, 14. júni. AP.
í maímánuði var olíuframleiðsla Sovétmanna enn einu sinni minni
en áætlunartölur sögðu fyrir um og framleiðnin minnkaði enn þá
meira þrátt fyrir nýlega endurskipulagningu orkuráðherra og kröfur
sovéska leiðtogans, Mikhail S. Gorbachev, um meiri vinnuaga.
Framleiðslutölur fyrstu fimm
mánaða ársins 1985, sem birtust
í dag í vikuritinu Gazette, sýna,
að framleiðslan hefur dregist
saman um 4% miðað við sama
tímabil í fyrra.
Framleiðni minnkaði um 7%
á sama tímabili miðað við árið
1984.
Frá því að Gorbachev varð
flokksleiðtogi í marsmánuði,
hefur hann barist fyrir, að
iðnframleiðsla yrði aukin með
bættri framleiðni og vinnuaga.
Sovétmenn eru mesti olíu-
framleiðandi heims, en fram-
leiðsla þeirra minnkaði í fyrsta
sinn árið 1984. Þá var fram-
leiðslan sögð hafa verið 613
milljón tonn eða Vt% minni en
árið áður.
Þessi þróun hefur haldið
áfram á árinu 1985 og hefur
Sovétmönnum ekki tekist að
standa við framleiðsluáætlanir.
Bretland:
Mikilvægar
aukakosningar
Ix)ndon, 13. jíní. AP.
MIKILVÆGAR aukakosningar mikinn meirihluta atkvæða.
til breska þingsins fara fram í Hins vegar á fhaldsflokkur-
kjördæminu Brecon og Radnor í inn nú undir högg að sækja síð-
Wales 4. júlí. Er litið á kosn- ustu þrjá mánuði eftir skoðana-
ingarnar sem prófraun fyrir könnunum að dæma, svo að
íhaldsflokk Margrétar Thatcher, kosningarnar í Wales eru tald-
en í síðustu kosningum í þessu ar skipta miklu máli fyrir
litla kjördæmi fékk flokkurinn flokkinn.
Hversu ríkir
verða íslenskir
skemmtikraftar?
Eða verða þeir yfirleitt ríkir? Allt um það í Samúel
Og svo einn
laufléttur af
blaðsíðu 31:
Kalli kom að konunni
sinni, harðsnúnu Hönnu, í
rúminu með öðrum karl-
manni.
„Hvað á þetta eiginlega
að þýða?“ öskraði hann.
„Hvaða náungi er þetta
eiginlega?"
„Þetta virðist vera
nokkuð sanngjörn
spurning," sagði Hanna
og sneri sér að rekkjunaut
sfnum.
„Hvað heitirðu?"
1957: Þegar Bryndís Schram var kjörin
Fegurðardrottning íslands í "\volí
■■
NYR OG HRESS A SOLUSTOÐUM UM ALLT LAND