Morgunblaðið - 15.06.1985, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNl 1985
fclk í
fréttum
Nokkrir af aðstandendum Sultuleikhússins fri vinstri: GuAbjörg Þórisdóttir, Agúst Pétursson, Sóri,
Abdou, Hans Gústafsson.
Á þjóðhátíðardaginn
32 metra langur dreki
að verður mikið um dýrðir í Reykjavík á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní. Meðal skemmtiatriða
verður skrautleg sýning sem Sultuleikhúsið stend-
ur að. Forsprakkar þess eru Hans Gústafsson og
Sigurþór Heimisson (Sóri), en alls taka um 60
manns þátt í sýningunni.
„Reykjavíkurborg kom að máli við okkur og bað
um að við staeðum fyrir svipaðri uppákomu og var
í fyrra, og undirbúningur hefur staðið á annan
mánuð.
Sýningin verður bæði í Bankastræti og Lækj-
argötu og tekur hún um eina klukkustund. Á ferð-
inni verða prins og prinsessa ásamt fylgdarliði og
öflugur dreki ásamt sínu hyski. Drekinn er um 32
metrar á lengd og tuttugu menn halda honum
uppi. Fullmannaður vegur hann rúmt tonn.
Allir sem við höfðum leitað til hafa verið okkur
mjög hjálplegir og gefið kynstrin öll af efnum,
hitavatnsrörum, akryldúkum og fleiru í þeim dúr
sem þarf til að búa drekann og annað tengt sýn-
ingunni."
Því miður var ekki leyfilegt að taka myndir af
drekanum svo að lesendur verða að láta sér nægja
svipmyndir af fylgdarliði hans ásamt fleira
skrýtnu fólki.
HALLA BRYNDÍS
JÓNSDÓTTIR
FEGURÐARDROTTNING
ISLANDS
Maður verður
að vera harður
við sjálfan sig
Fyrir skömmu var kosin ný
fegurðardrottning íslands
með pomp og pragt í veitingahús-
inu Broadway. Nokkrar umræður
spunnust vegna ummæla borgar-
stjóra við krýninguna, en hvað
sem þeim líður hafa íslendingar
eignast nýja fegurðardrottningu,
Höllu Bryndísi Jónsdóttur, tvítuga
Rey kj avíkurmær.
„Keppnin og allur undirbúning-
ur hennar var mikill annatími hjá
okkur öllum en hann var mjög
skemmtilegur, og ég kynntist
mörgu góðu fólki meðan á þessu
stóð.
Auðvitað stefndi ég að því að ná
sem hæst í keppninni, en ég var
síst af öllu örugg um að komast
eins langt og ég gerði. Ég vil snúa
mér að fyrirsætustörfum og að
vera kjörin fegurðardrottning
veitir mér greiðari aðgang að þeim
samböndum sem nauðsynleg eru.
Ég er ekki sammála þeim sem
segja að það reynist fegurðar-
Halla Bryndís ásamt yngri bróður á
góðri stund.
drottningum jafn erfitt og öðrum
að koma sér áfram í þeirri sam-
keppni sem ríkir á þessu sviði.
Erlendis eru þúsundir stúlkna sem
allar vilja verða fyrirsætur en þær
hafa ekki allar verið kjörnar feg-
urðardrottningar. Fegurðarsam-
keppnir eru vinna eins og hver
önnur, eflaust nokkuð skemmti-
legri en almennt gerist og gengur,
en umfram allt góð leið til að
koma sér á framfæri erlendis."
Sigur Höllu Bryndísar veitir
henni þátttökurétt í þremur feg-
urðarsamkeppnum. Fyrst í röð-
inni er Miss Universe sem fram
fer í Miami, Flórída, þann 15. júlí
Næsta keppni er Miss Scandinavia
sem haldin verður í haust og að
lokum er keppnin um titilinn
„Miss World“ sem fram fer í
október. Hvort Halla verður með í
öllum keppnunum er enn ekki ör-
uggt en verður ljóst innan tíðar.
„Ég hef tvisvar áður verið beðin
að taka þátt í keppninni um titil-
inn „Ungfrú ísland", en mér
fannst ég ekki reiðubúin til þess
fyrr en nú. Það er meira en orðin
tóm að taka þátt í keppni sem