Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 44

Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNl 1985 fclk í fréttum Nokkrir af aðstandendum Sultuleikhússins fri vinstri: GuAbjörg Þórisdóttir, Agúst Pétursson, Sóri, Abdou, Hans Gústafsson. Á þjóðhátíðardaginn 32 metra langur dreki að verður mikið um dýrðir í Reykjavík á þjóð- hátíðardaginn 17. júní. Meðal skemmtiatriða verður skrautleg sýning sem Sultuleikhúsið stend- ur að. Forsprakkar þess eru Hans Gústafsson og Sigurþór Heimisson (Sóri), en alls taka um 60 manns þátt í sýningunni. „Reykjavíkurborg kom að máli við okkur og bað um að við staeðum fyrir svipaðri uppákomu og var í fyrra, og undirbúningur hefur staðið á annan mánuð. Sýningin verður bæði í Bankastræti og Lækj- argötu og tekur hún um eina klukkustund. Á ferð- inni verða prins og prinsessa ásamt fylgdarliði og öflugur dreki ásamt sínu hyski. Drekinn er um 32 metrar á lengd og tuttugu menn halda honum uppi. Fullmannaður vegur hann rúmt tonn. Allir sem við höfðum leitað til hafa verið okkur mjög hjálplegir og gefið kynstrin öll af efnum, hitavatnsrörum, akryldúkum og fleiru í þeim dúr sem þarf til að búa drekann og annað tengt sýn- ingunni." Því miður var ekki leyfilegt að taka myndir af drekanum svo að lesendur verða að láta sér nægja svipmyndir af fylgdarliði hans ásamt fleira skrýtnu fólki. HALLA BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR FEGURÐARDROTTNING ISLANDS Maður verður að vera harður við sjálfan sig Fyrir skömmu var kosin ný fegurðardrottning íslands með pomp og pragt í veitingahús- inu Broadway. Nokkrar umræður spunnust vegna ummæla borgar- stjóra við krýninguna, en hvað sem þeim líður hafa íslendingar eignast nýja fegurðardrottningu, Höllu Bryndísi Jónsdóttur, tvítuga Rey kj avíkurmær. „Keppnin og allur undirbúning- ur hennar var mikill annatími hjá okkur öllum en hann var mjög skemmtilegur, og ég kynntist mörgu góðu fólki meðan á þessu stóð. Auðvitað stefndi ég að því að ná sem hæst í keppninni, en ég var síst af öllu örugg um að komast eins langt og ég gerði. Ég vil snúa mér að fyrirsætustörfum og að vera kjörin fegurðardrottning veitir mér greiðari aðgang að þeim samböndum sem nauðsynleg eru. Ég er ekki sammála þeim sem segja að það reynist fegurðar- Halla Bryndís ásamt yngri bróður á góðri stund. drottningum jafn erfitt og öðrum að koma sér áfram í þeirri sam- keppni sem ríkir á þessu sviði. Erlendis eru þúsundir stúlkna sem allar vilja verða fyrirsætur en þær hafa ekki allar verið kjörnar feg- urðardrottningar. Fegurðarsam- keppnir eru vinna eins og hver önnur, eflaust nokkuð skemmti- legri en almennt gerist og gengur, en umfram allt góð leið til að koma sér á framfæri erlendis." Sigur Höllu Bryndísar veitir henni þátttökurétt í þremur feg- urðarsamkeppnum. Fyrst í röð- inni er Miss Universe sem fram fer í Miami, Flórída, þann 15. júlí Næsta keppni er Miss Scandinavia sem haldin verður í haust og að lokum er keppnin um titilinn „Miss World“ sem fram fer í október. Hvort Halla verður með í öllum keppnunum er enn ekki ör- uggt en verður ljóst innan tíðar. „Ég hef tvisvar áður verið beðin að taka þátt í keppninni um titil- inn „Ungfrú ísland", en mér fannst ég ekki reiðubúin til þess fyrr en nú. Það er meira en orðin tóm að taka þátt í keppni sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.