Morgunblaðið - 05.07.1985, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ1986
Hundadagahátíðin á Akureyri:
Útvarp Síríus
sendir út tónlist
UTVARP Síríus hefur útsendingar á Akureyri í dag. Útsendingar stödv-
arinnar eru i tengslum vid svokallaða Hundadagahátíð
verður þar í bæ frá 12. til 14-júlí.
Að sögn Ólafs H.Torfasonar út-
varpsstjóra Síríusar verður
dagskráin fyrst og fremst með
léttum blæ og í takt við hátíðina.
Þar verði sambatónlistin áberandi
en annars verði flutt tónlist frá
öllum tímum og heimshornum.
Flestir starfsmenn stöðvarinnar
eru núverandi eða fyrrverandi
starfsmenn Ríkisútvarpsins á Ak-
ureyri. Sent verður út á FM, 99,4
megariðum með 100 watta sendi
frá Pósti og síma. Útsendingar
hefjast í dag, sem fyrr segir,
kl.18.00.
Dagskrá stöðvarinnar yfir helgina
verður sem hér segir:
sem haldin
Föstudagur 5.júlí.
18.00 Fréttir og samba-ND
18.30 Smástirni nr.l: Erling
Ingvason háseti er gestaplötu-
snúður hjá Ólafi H. Torfasyni
19.00 Poppfréttir
19.30 Bæjarslúðrið
20.00 Útvarp Ríó - brasilísk tónlist
Húsbruni í
Grímsnesi
HcirOMÍ. 4. júlí.
UM KLUKKAN þrjú I dag
kom upp eldur í fbúðarhúsinu
Öndverðarnesi í Grímsnesi.
Skemmdir urðu talsverðar á
þvottahúsi og nokkrar vegna
reyks.
Eldurinn kom upp í
fvottavél í þvottahúsinu.
búum á staðnum tókst að
halda eldinum niðri með
handslökkvitækjum af
staðnum, frá nærliggjandi
sumarbústöðum og úr lög-
reglubíl, sem kom á staðinn.
Litlu munaði að eldurinn
næði að magnast.
Þegar slökkviliðið á Sel-
fossi kom á staðinn var tals-
verður reykur í íbúðarhús-
inu og þvottahúsið illa
brunnið. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn og að sögn
lögreglumanna var það
handslökkvitækjunum að
þakka, að ekki fór verr.
Sig. Jóns.
21.00 Nektarnýlendan
22.00 Mannbætandi
23.00 Mannbætandi
23.00 Á mörkunum
23.30 Smástirni nr. 2: Haraldur
Ingi Haraldsson framkvæmda-
stjóri Hundadagahátíðar er gesta-
plötusnúður hjá Margréti Blöndal
24.00 Draugagangur
24.15 Dagskrárlok
Laugardagur 6.júlí.
18.00 Fréttir og samba-ND
18.30 Smástirni nr.3: Valur Arn-
þórsson kaupfélagsstjóri er gesta-
plötusnúður hjá Margréti Blöndal
19.00 Poppfréttir
19.30 Bæjarslúðrið
20.00 Útvarp Dublin - létt írsk lög
21.00 Nektarnýlendan
22.00 Mannbætandi
23.00 Á mörkunum
23.30 Smástirni nr.4: Laufey
Jónsdóttir 15 ára póstburðarmað-
ur er gestaplötusnúður hjá Mel-
korku T. Ólafsdóttur
24.00 Draugagangur
24.15 Dagskrárlok
Sunnudagur 7.júli.
18.00 Fréttir og samba-ND
18.30 Smástirni nr.5: Freygerður
Magnúsdóttir búningameistari er
gestaplötusnúður hjá Hermanni
Sveinbjörnssyni og segir frá eynni
Rhodos
19.00 Poppfréttir
19.30 Kjaftagangur
20.00 Útvarp París - létt frönsk lög
21.00 Nektarnýlendan
21.00 Smástirni nr.6: Sigríður Pét-
ursdóttir fatahönnuður er gesta-
plötusnúður hjá Margréti Blöndal
22.00 Mannbætandi
23.00 Á mörkunum
24.00 Draugagangur
24.15 Dagskrárlok
14.JULI 1935
9S)4
MorgunblaðiA/Bjarni
Sendiherrahjón kveðja
Marshall Brement, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, og kona hans Pamela, eru nú á förum frá íslandi eftir
að hafa verið hér í fjögur ár. í ger, á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, var hóf í sendiherrabústaðnum við
Laufásveg og var það jafnframt kveðjuhóf fyrir sendiherrahjónin. Á myndinni ræða þau við Birgi ísleif
Gunnarsson alþingismann, en lengst til hægri má þekkja Sigurð G. Tómasson varaborgarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. __________________________
Hækkun á kolaverði:
Ákvörðun er á ábyrgð
fulltrúa fískvinnslunnar
- segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ
„Ég hef bara eina skýringu ó þessu og hún er sú, að fulltrúar fiskvinnslunn-
ar í verðlagsráði komu með tillögu um verð á kola, sem fulltrúar seljenda
samþykktu án nokkurs ágreinings þ. 5. júní sl.,“ sagði Kristján Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, er hann var inntur
eftir ástæðu fyrir 54% hækkun á kolaverði.
Um þessa verðákvörðun sagði
Sigurður Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtæk-
isins Voga hf. í Vogum, m.a. í frétt
i Morgunblaðinu 3. júlí sl. að hún
myndi „kippa íslenskri framleiðslu
út af bandaríska markaðnum".
Fyrirtækið hafði fjárfest í tækja-
kosti og ráðið skólafólk i vinnu
vegna fyrirhugaðrar framleiðslu á
kolaflökum á Bandaríkjamarkað.
Kristján Ragnarsson sagði i
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins að miða yrði hækkun á
kolaverði við sama tímabil og gert
væri við hækkanir á öðrum fiskteg-
undum, en þessi verðákvörðun væri
hins vegar alfarið á ábyrgð fisk-
vinnslunnar og fulltrúa hennar í
verðlagsráði.
„Niðurstaða okkar var sú að við
myndum geta borgað þetta verð, en
að sjálfsögðu var þetta samkomu-
lagsatriði og hinir vildu fá meira,"
sagði Árni Benediktsson, fulltrúi
sjávarafurðadeildar SlS í verð-
lagsráði, um hækkunina. „Það skal
að vísu tekið fram, að fyrir tveimur
árum síðan var það tekið upp að
borga sérstakt verð fyrir dragnót-
arkolann, mun hærra en fyrir ann-
an kola. Sá koli fékk síðan sömu
hækkun núna og má segja að það
hafi verið óþarflega hátt miðað við
getu. Að öðru leyti er kolaverðið
núna ekki hærra en það, að það á
að vera alveg vandræðalaust fyrir
hvern sem er. Það sama má reynd-
ar segja um verulegan hluta af
dragnótarkolanum. Sjálfur sé ég
samt ekki ástæðu til vera að gera
upp á milli veiðarfæra og hafa
hærra verð á honum en öðrum
kola,“ sagði Árni Benediktsson.
Bensínverðið:
Borgum 30 % meira en
Norðmenn og Danir
BIFREIÐAEIGANDI á íslandi
greiðir 30% hærra verð fyrir bensín-
lítrann, en bifreiðaeigendur á hinum
Norðurlöndunum og munurinn er
ennþá meiri ef tekin eru sum önnur
lönd í Evrópu, að undanskilinni ítal-
íu, þar sem bensínlítrinn er ekki
nema hálfri þriðju krónu ódýrari en
hér á landi.
Þessar tölur eru fengnar sam-
kvæmt útreikningum FÍB, sem
gerðir voru samkvæmt gengis-
Forsendur Hæstaréttardómsins í Skaftamálinu:
Skafti hlaut meiðslin meðan
hann var í vörslu hins dæmda
- en átti sjálfur nokkurn þátt í hyernig fór
HÆSTIRÉTTUR telur sannað, að Skafti Jónsson blaðamaður hafi hlotið
meiðsli sín eftir að hann var færður inn í lögreglubifreiðina við Þjóðleik-
húsið 27. nóvember 1983 og áður en hann var færður úr henni við
lögreglustöðina við Hverfisgötu. Meiðslin hlaut Skafti á meðan hans var
gætt af einum lögreglumanni, hinum sama og Hæstiréttur sakfelldi í
fyrradag þegar kveðinn var upp dómur í svokölluðu Skaftamáli. Segir í
forsendum dómsins, sem birtar voru í gær, að áverkar Skafta verði raktir
til gáleysis lögreglumannsins við flutninginn á lögreglustöðina við Hverf-
isgötu en vafasamt að telja sannað að lögreglumaðurinn hafi valdið
áverkum Skafta á þann hátt, sem Skafti heldur fram.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær voru tveir lög-
reglumannanna þriggja, sem
handtóku Skafta Jónsson þetta
kvöld, sýknaðir af öllum ákæru-
liðum ríkissaksóknara en sá
þriðji var dæmdur fyrir lík-
amsmeiðingar af gáleysi og
dæmdur til að borga m.a. 15 þús-
und króna sekt í ríkissjóð og 25
þúsund króna skaðabætur til
Skafta. Skaðabótakrafa hans var
upphaflega 48.850 krónur en
Hæstiréttur lækkaði þær bætur
125 þúsund krónur „með hliðsjón
af því, að Skafti átti sjálfur
nokkra sök á átðkunum og því
tjóni, er af þeim leiddi", eins og
segií í forsendunum.
Lögreglumennirnir voru allir
sýknaðir af ákæru fyrir ólöglega
handtöku enda þótti ekki sannað
að þeir hafi beitt hann „harð-
ræði umfram það, sem nauðsyn-
legt var er hann var færður út úr
húsinu, en Skafti sýndi þá mót-
spyrnu", segir í forsendum
Hæstaréttar.
í forsendum dómsins segir: „Á
það er sérstaklega að lita, að
Skafti var handjárnaður fyrir
aftan bak og þvi alfarið á valdi
ákærðu, sem auk þess höfðu
hendur á honum, fyrst báðir, en
síðan annar alla leiðina frá Þjóð-
leikhúskjallara að lögreglustöð.
Þrátt fyrir þetta hafa þeir engar
viðhlítandi skýringar gefið á því
hvenær eða með hvaða hætti
Skafti hlaut áverkana. Verður
ekki á það fallist, að það hafi
getað farið fram hjá þeim báð-
um. Hvorugur ákærða getur bor-
ið um það af eigin reynd, að
Skafti hafi rekið andlitið í við að
detta inn á gólf bifreiðarinnar
við upphaf fararinnar. Sjálfur
kveðst Skafti hafa lent á bring-
unni „en hlíft andlitinu með því
að sveigja höfuðið aftur". Telja
verður frásögn Skafta um þetta
atriði trúverðuga. Þykir því eiga
að leggja hana til grundvallar."
í sératkvæði hæstaréttardóm-
aranna Björns Sveinbjörnssonar
og Halldórs Þorbjörnssonar í
málinu segir að varhugavert sé
að telja sannað, að lögreglumað-
urinn, sem dæmdur var, „hafi
valdið áverkum Skafta i lög-
reglubílnum á þann hátt, sem
Skafti heldur fram“. Segir að
hugsanlegt sé að Skafti hafi
hlotiö áverkana í þeim svipting-
um, sem urðu milli hans og
tveggja lögregluþjónanna er þeir
færðu hann inn i lögreglubilinn,
en þá hafi Skafti veitt mikla
mótspyrnu.
skráningu 2. júlí. Miðað er við 93
oktan bifreiðabensin með blýinni-
haldi og verðið miðast við verð frá
dælu.
Fram kemur að mestur verð-
munurinn í þeim löndum sem tek-
in eru, er á milli Vestur-Þýskal-
ands og íslands, en bensínlítrinn
er 68% dýrari hér á landi en þar,
kostar 31.40 kr. á móti 18.70.
Minnstur er munurinn á íslandi
og Ítalíu, eins og fyrr sagði, en
bensínverðið er hér 9% hærra. Ef
tekið er mið af Norðurlöndunum
einungis, er munurinn mestur á
Svíþjóð og Islandi eða 43%.
Verð á lítra í þessum löndum er
eftirfarandi: ísland, 31.40 kr.,
Danmörk, 24.14 kr. (meðalverð),
Noregur, 24.18 kr. (meðalverð),
Svíþjóð 21.92 kr., Belgía, 23.15 kr„
Vestur-Þýskaland 18.70 kr. (með-
alverð), Italía 28.81 kr„ Holland,
22.68 kr. (meðalverð), Sviss 20.48
kr. (meðalverð), Stóra-Bretland,
23.98 kr.
I löndum þar sem meðalverð eru
gefin, er mismunandi verð á út-
sölustöðum. Munar þar allt frá
rúmum 50 aurum uppí næstum
eina kronu á hvern lítra.
Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
VINSÆLDALISTI Rásar 2 var val-
inn í gær, fimmtudag, eins og sið-
venjur bjóða. Leit hann þannig út:
1. (1) Icing on the cake
2. (2) A View to a Kill
3. (5) Get It On
4. (6) Celebrate Youth
5. (3) Rasberry Beret
6. (22) Frankie
7. (4) Axel F
8. (8) Left Right
9. (10) Kittí
10. (7) Móðurást