Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 32
> 32 MORGUNBLADID, FÓSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1985 * Aðalbjörn Tryggvason i Ytra-Laugalnndi raðar böggum i Heyvagn. Börnin hjilpa við heyskapinn i Ytra-Laugalandi. Heyskapurinn orðinn leikur einn ef tíðarfarið er gott - segir Benjamín Baldursson á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði „HEYSKAPURINN hefur gengið Ijómandi vel undanfarna daga, grasið er slegið stöðugt til að nýta þurrkinn," sagði Benjamín Bald- ursson bóndi i Ytri-Tjörnum í Öngulsstaðahreppi í Eyjafirði þeg- ar blaðamenn Morgunblaðsins voru i ferð í Eyjafirði í fyrradag og litu við hji bændum í heyskap. Var sama hvert litið var í þessu þétt- býla og grösuga héraði sem talið er besta landbúnaðarhérað landsins, i öllum bsjum var heyskapurinn í fullum gangi. Kúabúin eru þarna hvert öðru stsrra og mikil tún, enda rsktunarskilyrði mjög góð. Benjamín er með stórt kúabú. Hann byrjaði að slá 20. júní, það er heldur seinna en í fyrravor, en svipað og mörg undanfarin vor. Benjamín sagði að sprettan væri þokkalega góð, og eitthvað gæti sprottið áfram. Hann kvaðst vera búinn að hirða um helming heyja sinna. „Vélvæðingin er orðin svo góð og almenn að heyskapurinn er leikur einn, ef tíðarfar er gott. Hægt er að heyja á 2—3 vikum ef góðir þurrkar eru,“ sagði Benjamín. Eyfirðingar þurrka svo til allt sitt hey og til algerra undan- tekninga telst ef bændur hirða í vothey. Benjamín hirðir allt hey laust með heyhleðsluvagni. Hann var einmitt að losa vagn- Benjamín Baldursson á Ytri- Tjörnum mokar í heyblásara. inn við hlöðuna þegar blaða- menn bar að garði. Þar er því mokað í blásara sem flytur það inn í hlöðuna og þar er heydreif- Hjörleifur Tryggvason á Ytra- Laugalandi situr „draum fátska bóndans". ikerfi sem jafnar því um hlöð- una. Sagði Benjamín að sig vant- aði aðeins matara við blásarann til að hafa hirðinguna alsjálf- Morgunbladid/Priðþjófur Vinnumaður á Ytri-Tjörnum mok- ar heyi. virka. Meirihluti bænda í Eyja- firði hefur svipaðan há tt á og Benjamín, þó eru margir sem binda heyið í bagga. Bræðurnir Hjörleifur og Aðal- björn Tryggvasynir búa félags- búi á Ytra-Laugalandi. Þeir voru búnir að vera viku í heyskapnum og binda um 2 þúsund bagga af 14 þúsund sem þeir áttu von á að fá af túnum sínum í sumar. Þeir sögðu að heyskapurinn hefði gengið vel, „smádropakast í gær, rétt til að maður gæti slappað af,“ sagði Hjörleifur, þegar við stoppuðum hann þar sem hann var á gamla Zetornum (sem hann sagði að gárungarnir í sveitinni kölluðu „draum fátæka bóndans") með heybindivélina í eftirdragi. Aðalbjörn var hins vegar að hirða baggana með góðri aðstoð barnanna á bænum og fleirum. Laugalandsbræður binda allt sitt hey, eru með tiltölulega litl- ar hlöður og koma heyinu ekki öðru vísi fyrir. „Þessi bagga- heyskapur er nú ljóta klepps- vinnan. Hann þarf að leggjast alveg af sem fyrst,“ sagði Hjör- leifur og stundi þungan. Hann sagði að þeir væru með þetta ágætlega vélvætt, heybindivél, baggatínu og færiband inn í hlöðu. Sagði hann að mesta puð- ið væri að raða böggunum inni í hlöðunni. Þeir bræður sögðu að haldið yrði stíft áfram með heyskapinn á meðan veður leyfði þangað til allt væri komið í hlöðu og stans- laust slegið til að nýta þurrkinn. Sögðu þeir þetta ekki lengi gert ef vel viðraði, eins og í fyrra. Þá hefðu þeir byrjað heyskapinn 19. júní og lokið honum 9. júlí. Það verður að teljast vel af sér vikið á búi með 90 hausa í fjósi, og þar af hátt í 50 mjólkandi kýr. — HBj. Selfoss: Sýning Ólafs Th. og Jónínu Bjargar í Safnahúsinu SelfoHHÍ, 3. jill. ÞESSA dagana stendur yfir í Safnahúsinu á Selfossi málverkasýning Olafs Th. Ólafssonar og Jónínu Bjargar Gísladóttur. Sýningin stendur yfir til 7. júlí og er opin kl. 16—22 og 14—22 um helgar. 350 til 400 manns í Varðarferð um Borgarfjörð HIN ÁRLEGA sumarferð Landsmálafélagsins Varðar var farin sl. laug- ardag. Að þessu sinni var farið um byggðir Borgarfjarðar. Á sýningunni eru olíu- og vatns- litamyndir og er óhætt að segja að þær sýni miklar andstæður sem hver og einn verður að upplifa á sýningunni sjálfri. ólafur Th. ólafsson hefur haldið fjórar einkasýningar auk nokkurra samsýninga. Jónfna hefur einu sinni sýnt áður og þá með Ólafi 1981, þessi sýning þeirra nú er sölusýning. Þau Olafur og Jónfna eru systkini og vildu að fram kæmi hversu sýningarsalurinn í Safna- húsinu er hentugur til sýninga og nágrennið býður upp á aðra mögu- leika. Á eftir hæðinni er úrvals listasafn og á neðri hæðinni er fs- lenska dýrasafnið auk sýningarsal- ar . Þá er stutt í sundlaugina með öllu tilheyrandi. Sig. Jóns. Lagt var af stað frá Reykjavík um kl. 8 um morguninn og ekið upp í Skorradal. Þar var áð á bökkum Skorradalsvatns og drukkið morgunkaffi. Þar fluttu ávörp Jónas Bjarnason formaður Varðar og Guðmundur Jónsson formaður ferðanefndar félags- ins. Síðan var ekið um Andakíl og Lundarreykjadal og upp að Grá- brók. Hádegisverður var snæ- ddur á svonefndum Brekkuár- eyrum. Þar fluttu ávörp Þor- steinn Pálsson formaður Sjálf- stæðisflokksins og Valdimar Indriðason alþingismaður. Á heimleiðinni var stansað í Hótel Borgarnesi, þar sem Sumargleðin skemmti ferðafólk- inu með sérstakri dagskrá. Kom- ið var til Reykjavíkur um kl. 20. Aðfararstjóri í ferðinni var Einar Guðjohnsen, en hann hef- ur verið fararstjóri í Varðarferð- um mörg undanfarin ár. Á skrifstofu Varðar fengust þær upplýsingar að þátttakendur I ferðinni hafi verið á bilinu 350 til 400 talsins og hafi hún heppn- ast vel í alla staði enda veður hið besta mestan part dagsins. Vesturgata 3: Hátíð í Hlað- varpanum HÚSIN þrjú á Vesturgötu 3, sem konur hafa sameinast um að kaupa, verða afhent nýju eigendunum fostudaginn 5. júlí. Af því tilefni verður haldið upp á daginn í „Hlaðvarpanum" við Vesturgötu milli klukkan 16.00 og 18.00 og eru konur hvattar til að taka þátt í hátíðahöldunum og taka með sér menn og börn. Boðið verður upp á óvæntar uppákomur og veitingar á staðnum. (Úr fréttatilkynningu.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.