Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLl 1986
'jt; »' ; ■-*nv '
Á „Pólarhestumu í
eyðibyggðina Fjörður
PÓLARHE9TAR nefnist fyrirtcki sem nýverið var stofnað fyrir norðan.
Fyrirtækiö er fyrst og fremst hestaleiga en auk þess býöur það upp á
ýmiskonar þjónustu fyrír ferðafólk. Eigendur Pólarhesta eru tveir, Jó-
hannes Eiríksson úr Reykjavík og Stefán Kristjánsson, bóndi á Grýtu-
bakka II, í Höfðahverfi í Grýtubakkahreppi f Suður-Þingeyjarsýslu. En á
bóndabýlinu eru einmitt höfuðstöðvar fyrírtckisins, um 45 km frá Akur-
eyri, austan Eyjafjarðar.
Þriggja daga ferðir á
hestum í Fjörður
I sumar verður boðið upp á
þriggja daga hópferðir á hestum í
Fjörður, eyðibyggðina yst á skag-
anum austan Eyjafjarðar, þar
sem liggja Hvalvatnsfjörður og
Þorgeirsfjörður. Farið verður um
hverja helgi, lagt af stað frá
Grýtubakka um hádegisbilið á
föstudegi og komið til baka að
kveldi sunnudags. Gist verður i
húsum eða tjöldum og jeppabif-
reið verður i ferðunum ef einhver
treystir sér ekki til að ríða alla
leiðina.
Innifalið í verði er fullt fæði og
gisting og akstur til og frá Akur-
eyri. Þá hefur fyrirtækið gert
samning við Flugleiðir um 35%
afslátt á flugfargjaldi milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Fyrir-
hugað er að fara fyrstu ferðina i
Fjörður dagana 5. til 7. júli, og
verður haldið uppi ferðum út ág-
ústmánuð.
Dagsferðir um
Höfðahverfið
En „Pólarhestar" fara ekki ein-
göngu í Fjörður í sumar. Á þriðju-
dögum og miðvikudögum verður
boðið upp á dagsferðir á hestum
um Höfðahverfið og sveitina i
kringum Grýtubakka og stefnt er
að dagsferðum um helgar sem
auglýstar verða sérstaklega. Þá
verður ekið með einstaklinga og
ferðahópa á torfærubifreiðum f
Fjörður og á Flateyjardal og verð-
ur leiðsögumaður með í þeim ferð-
um. Að auki verða skipulagðar
bátsferðir frá Grenivfk og útveg-
uð svefnpokapláss í Grenivík og
herbergi á bæjunum i kring.
„Jómfrúrferðin“ í Fjörður
Undirritaðri var á dögunum
boðið með í Jómfrúrferð" Pólar-
hesta út i Fjörður. Við vorum alls
áttá talsins sem riðum úr hlaði á
Grýtubakka f bliðskaparveðri.
Eigendur fyrirtækisins voru báðir
með i ferðinni, Jóhannes Eiriks-
son reið með og Stefán Kristjáns-
son ók jeppabifreið hlaðinni vist-
um á eftir okkur.
Við riðum í rólegheitum um
Leirdalsheiði að heiðarbýlinu
Gili, fremst í Hvalvatnsfirði, þar
sem við áðum. í Hvalvatnsfirði
Eigendur PólarhesU á bæjarhlaðinu i Grýtubakka. F.v. Stefán Krist-
jánsson og Jóhannes Eirfkæon.
voru áður sjö bæir. Lögðust 1944. Otrúlegt er að fólk hafi
Tindriðastaðir síðastir f eyði árið nokkru sinni búið svo afskekkt, en
Gengið yfir Eyrarhálsinn, í baksýn
Hvalvatnsfjöröur.
gömlu bæjartóftirnar bera þvi
vitni svo að ekki verður um villst.
í þriggja daga ferðunum i
sumar verður gist á Gili fyrri
nóttina, en þar sem við ætluðum í
Fjörður á aðeins tveimur dögum
stöldruðum við aðeins stutt við á
Gili til að hvíla hestana og snæða.
Ekki fært bflum
síðasta spölinn
Áfram héldum við um kjarri-
vaxnar hliðar Hvalvatnsfjarðar
að Austurá undir Eyrarhálsi. Þar
var jeppinnn skilinn eftir enda
ekki fært bílum siðasta spölinn i
Þorgeirsfjörð. Urðum við því að
reyra svefnpokann okkar aftan
við hnakkinn og matföng sem
duga skyldu fram að hádegi dag-
inn eftir settum við í bakpoka og
hnakktöskur. Vatnið náði hestun-
um upp á miðja sfðu er við riðum
yfir ána, en öll komumst við þó
klakklaust yfir.
Gist á Þönglabakka
Og áfram riðum við, yfir Eyr-
arhálsinn að Þönglabakka i Þor-
geirsfjörð þar sem við gistum í
skála Slysavarnafélags íslands. 1
ferðunum í sumar verður riðið
þangað á öðrum degi, gist þar um
nóttina og riðið til baka þriðja
daginn.
Áður var búið á Þönglabakka,
einum þriggja bæja í Þorgeirs-
firði. Lögðust Þönglabakki og
Botn þar sfðastir í eyði árið 1944,
um leið og Tindriðastaðir i Hval-
vatnsfirði.
Ró kindanna raskað
Eftir að við höfðum komið hest-
unum í hús á Þönglabakka og
fengið okkur bita fórum við i
kvöldgöngu eftir ströndinni. Á
einum stað, rétt fyrir ofan fjöru-
borðið, mátti sjá greinileg um-
merki um bæinn Botn og i tóftum
hans mátti jafnvel finna heillegar
hurðir og fagurblátt þil. í sjávar-
málinu gat að líta leifar af rússn-
esku skipi sem strandaði f Þor-
geirsfirði 1941.
Það var sannarlega sérstök til-
finning að vera stödd f þessari
sérkennilegu og fögru eyðibyggð
og eiginlega ótrúlegt að fyrir
rúmum 40 árum hafi fólk búið
þar. Kyrrðin í Fjörðum var algjör
og ekki laust við að þeim kindum
sem urðu á vegi okkar, yrði bilt
við að fá svo óvænta gesti i heim-
sókn.
Lúið ferðafólk
Það var notalegt að skriða i
pokann um kvöldið, enda menn
orðnir lúnir eftir daginn, þó flest
værum við vön hestaferðum.
Morguninn eftir lögðum við af
stað heimleiðis. Stefán tók bílinn
við Áusturá og gátum við þá losað
okkur við pjönkur okkar. Ferðin
heim gekk vel og vorum við komin
að Grýtubakka um kvöldmatar-
leytið.
Það var þreyttur en sæll blaða-
maður sem steig upp i flugvélina
á Ákureyrarflugvelli siðar um
kvöldið, eftir ógleymanlega ferð á
„Pólarhestum", í Fjörður.
Texti og mvndir:
BERGLJÓT FRIÐRIKSDÓTTIR
Á áningarstað, f.v.: Gísli Sigurgeirsson og Frfmann Frfmannsson frá Degi, Sigurlang Krist- Þorgeirsfjörður. Fyrir miðri mynd er Hraunfjallið en lengst til hægrí sést f Háu Þóru og Lágu
jánsdóttir frá Grenivík, Jóhannes Harðarson frá Þjóðviljanum, Birgir Guðmundsson frá NT Þóru.
og Jóhannes Eiríksson.