Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ, F03TUQAQUR 5. J&U 1986
34
Njósnir
samlyndra vina
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Háskólabío: Filkinn og Snjómað-
urinn — The Faicon and the
Snowman ☆☆☆
Bandarísk. Árgerð 1985. Handrit:
Steven Zaillan, byggt i bók eftir
Robert Lindsay. Leikstjóri: John
Schlesinger. Aðalhlutverk: Tim-
othy Hutton, Sean Penn, David
SucheL
Þetta er sönn saga um það
hvernig tveir al-amerískir kór-
drengir gerast landráðamenn, —
njósnarar fyrir Sovétríkin:
Christopher Boyce, traustur og
vandaður að upplagi, fyrrum
guðfræðinemi með dálæti á fálk-
um, og ekki róttækari en meðal
demókrati, og Daulton Lee, rót-
lausari, háður fíkniefnum og
fikniefnasölu en sannfærður
repúblíkani. Báðir vel stæðir og
af grandvöru foreldri. Skýringin
á njósnastarfsemi þeirra félaga
liggur því síður en svo i augum
uppi.
Og hin endanlega skýring er
heldur ekki í þessari bíómynd.
En þegar Boyce ræðst til starfa
hjá bandarísku leyniþjónustunni
ákveður hann engu að siður að
selja gögn sem hann kemst yfir
til sovéska sendiráðsins í Mexico
City fyrir milligöngu Lees. Hon-
um kann að hafa blöskrað ihlut-
un CIA í innanrikismál annarra
landa, ótrúlegt eftirlitsleysi og
sukk á vinnustað sinum og báða
langaði þá félaga í það frelsi og
sjálfstæði sem greiðslur Sovétm-
anna fyrir njósnir áttu að færa
þeim. Samt er eitthvað sem van-
tar í þá orsakakeðju sem myndin
um Fálkann og Snjómanninn
rekur sig eftir af mikilli vand-
virkni.
Þessi nýjasta mynd breska
ieikstjórans John Schlesingers
er þrátt fyrir það hið forvitni-
legasta verk, og trúlega besta
mynd hans frá Midnight Cowboy
árið 1969. Eins og í þeirri góðu
mynd er viðfangsefnið hér sérk-
ennileg vinátta tveggja manna
sem eru utanveltu við þjóðfélag-
ið. Fálkinn og Snjómaðurinn er
þannig ekki njósnaþriller f ven-
julegum skilningi. Viðfangsefn-
inu gerir hún skil með nákvæmri
persónusköpun og umhverfislýs-
ingu frekar en hraðri og flókinni
atburðarás. Hún er þéttingsfull
af smáatriðum sem stundum
jaðra við hreina smámunasemi;
bygging myndarinnar hefði
þurft talsverða heflun og ein-
földun og aukaatriðin drepa
söguefninu stundum á dreif. En
þrátt fyrir 131 minútu sýn-
ingartima er Fálkinn og
Snjómaðurinn ævinlega áhuga-
verð, ekki síst fyrir frammistööu
ungu stjarnanna tveggja f tit-
ilhlutverkunum, Timothy Hutt-
on og Sean Penn. Upplýsingar
myndarinnar í lokin um örlög
Fálkans og Snjómannsins eru
aftur á móti ekki nákvæmar. Ég
veit ekki betur en Fálkanum hafi
tekist að fljúga burt úr prfsund-
inni.
Timothy Hutton og Sean Penn sýna afburða samleik sem Fálkinn og
Snjómaöurinn.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Grundarfjörður
Umboösmaöur óskst til aö annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaöið.
Upplýsingar hjá umboösmanni í síma 8864 og
hjá afgreiöslunni í Reykjavík í sima 83033.
Skrifstofustarf
ein af stærstu heildverslunum landsins þarf
aö ráöa í starf aðstoöargjaldkera.
Umsóknir er greini frá menntun, starfs--
reynslu, fyrri vinnustööum, aldri og ööru sem
máli skiptir sendist augl.deild. Mbl. sem allra
fyrst merkt „Aðstoðargjaldkeri-2982“.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Sjúkrahúsiö Patreksfiröi óskar aö ráða
hjúkrunarfræöing og sjúkraliöa til starfa sem
fyrst eöa eftir samkomulagi. Einnig vantar
hjúkrunarfræöinga og Ijósmóöur til sumaraf-
leysinga. Gott húsnæði fyrir hendi.
Nánari upplýsingar veitir Sigríöur Karlsdóttir
hjúkrunarforstjóri í síma 94-1110 eöa
94-1386.
Sjúkrahúsiö Patreksfiröi.
ÍSAFJARÐARKAUPSTAÐUR
Lausar stöður
Staða forstöðumanns tæknideildar ísa-
fjaröarkaupstaöar er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.
Staöa fjármálafulltrúa ísafjaröarkaupstaöar
er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til
20. júlí nk.
Nánari upplýsingar gefur undirritaöur í síma
94-3722 eöa á bæjarskrifstofunum.
Bæjarstjórinn á ísafiröi.
Þórshöfn
Umboösmaöur óskast til aö annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunbiaöiö.
Uppl. hjá umboösmanni í síma 81281 og hjá
afgreiöslunni í Reykjavík í síma 83033.
fttngtiiiMfifrifr
Hellissandur
Umboösmaður óskst til aö annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaöið. Upplýsingar
hjá afgreiöslunni í Reykjavík í síma 83033.
Grunnskólinn
Ólafsvík
Kennara vantar í eftirtaldar stööur:
íþróttakennslu, raungreinar — stæröfræöi,
kennslu yngri bekkja, handmennt drengja.
Umsóknarfrestur er til 8. júlí. Nánari upplýs-
ingar veita Gunnar Hjartarson skólastjóri í
síma 93—6293 og Ólafur Arnfjörö form.
skólanefndar í síma 93—6444.
Frá menntamála-
ráðuneytinu
Lausar stööur viö framhaldsskóla. Umsókn-
arfrestur til 20. júlí.
Menntaskólinn í Kópavogi, staöa efnafræöi-
kennara.
Flensborgarskólinn í Hafnarfiröi, staöa
íþróttakennara stúlkna, % staöa.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi, staöa íþrótta-
kennara.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykavík.
Menntamálaráöuneytiö,
28. júii 1985.
Laus staða
Staöa fiskmatsstjóra viö Ríkismat sjávaraf-
uröa er laus til umsóknar. Staöan veröur veitt
frá 1. ágúst nk.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist Sjávar-
útvegsráöuneytinu fyrir 20. júlí 1985.
Sjávarútvegsráöuneytiö.
Aðstoðarverk-
smiðjustjóri
Sláturfélag Suöurlands vill ráöa til starfa
starfsmann í stööu aöstoöarverksmiöjustjóra
í kjötvinnsludeild.
Starfiö er aðallega fólgiö í eftirfarandi:
— Skipuleggja framleiöslu.
— Sjá um áætlanagerö.
— Vera staögengill verksmiöjustjóra.
Viö mat á umsækjendum veröur lögö áhersla
á reynslu og/eöa menntun í skipulagningu og
stjórnun.
Viökomandi aöili þarf aö vera ákveðinn og
eiga gott meö aö umgangast fólk, hafa vilja
til aö berjast meö einu stærsta matvælafyrir-
tæki iandsins á síbreytilegum markaöi.
Gerö er krafa um háskólamenntun, helst á
sviöi matvæla — iönaöar — eöa vélaverk-
fræöi.
í boöi eru:
— Góö laun.
— Góö vinnuaöstaöa.
— Spennandi verkefni.
Skrifleg umsókn — þar sem fram koma upp-
lýsingar um aldur, menntun og fyrri störf,
sendist starfsmannastjóra SS fyrir 29. júlí nk.
Fariö veröur meö allar upplýsingar sem trún-
aöarmál.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri á skrifstofu félagsins aö Frakkastíg 1.
Sláturfélag Suöurlands.
Starfsmannahald.