Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1985
FOHTtMOUTH/NONFOLK
Bakkafoss 15. júk
Ctty of Perth 23. júlf
Bakkafoss 5. ágúst
Laxfoss NEW YORK 7. ágúst
Bakkafoss 17. júli
City of Perth 22. júlí
Laxfoss 5. ágúst
Bakkafoss HALIFAX 7. ágúst
Bakkafoss 19. júli
Bakkafoss 9. ágúst
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 7. júli
Alafoss 14. Júlí
Eyrarfoss 21. júli
Álafoss FEUXSTOWE 28. júlí
Eyrarfoss 8. júlí
Álafoss 15. júlí
Eyrarfoss 22. júli
Álafoss ANTWERPEN 29. júli
Eyrarfoss 9. júlí
Alafoss 16. júlí
Eyrarfoss 23. júli
Alafoss ROTTERDAM 30. júlí
Eyrarfoss 10. júlí
Alafoss 17. júli
Eyrarfoss 24. júlí
Alafoss HAMBORG 31. júlí
Eyrarfoss 11. júlí
Álafoss 18. júlí
Eyrarfoss 25. júlí
Álafoss 1. ágúst
GARSTON Fjallfoss NORÐURLÖND/- EYSTRASALT BERGEN 15. júlí
Reykjafoss 5. júlí
Skógafoss 13. júli
Reykjafoss 19. júli
Skógafoss KRISTIANSAND 27. júlí
Reykjafoss 8. júlí
Skógafoss 15. júlí
Reykjafoss 22. júlí
Skógafoss MOSS 29. júli
Skógafoss 16. júli
Skógafoss HORSENS 30. júlí
Reykjafoss 12. júli
Reykjafoss GAUTABORG 26. júlí
Reykjafoss 10. júlí
Skógafoss 17. júlí
Reykjafoss 24. júli
Skógafoss A KAUPMANNAHOFN 31. júlí
Reykjafoss 11. júll
Skógafoss 18. júli
Reykjafoss 25. júlí
Skógafoss HELSINGBORG 1. ágúst
Reykjafoss 12. júlí
Skógafoss 19. júli
Reykjafoss 26. júli
Skógafoss ÞÓRSHÖFN 2. ágúst
Skógafoss 13. júlí
Skógafoss 27. júlí
EIMSKIP
Pósthússtræti 2.
Sími: 27100
18 sinnum umhverfis jörðina
SUNDMENN úr sundfélaginu í Viborg I Danmörku
náðu settu marki í maraþonsundi, sem þeir háðu þar í
borg. Á einni viku syntu ungmennin samtals 717.447
kflómetra, sem jafngildir því að þau hafi synt 18
sinnum umhverfls jörðina við miðbaug. Syntu þau
boðsund i sjö sólarhringa, hvert þeirra tvo kflómetra í
senn. Hver maður synti á um fjögurra stunda fresti og
var tíminn á milli notaður til hvfldar. Tíu ungmenni
hófu boðsundið, en á flmmta degi heltist eitt þeirra úr
lestinni. Sundvegalengdin er nýtt heimsmet, gamla
metið var 200 kflómetrum lakara. Hinir nýju methafar
komast i heimsmetabók Guinness eins og til stóð.
Eindrægni og vinátta á
fundi Gorbachevs og Planic
Moskvti 4. júlí. AP.
MIKHAIL Gorbachev, flokksleið-
togi Sovétríkjanna, fagnaði í dag for-
sætisráðherra Júgóslavíu, Milka
Planic, sem er í heimsókn í Sovét-
ríkjunum. Tass-fréttastofan sagði að
fundur Gorbachevs og Planic hafði
einkennzt af vináttu og velvilja og
Gorbachev hefði farið lofsamlegum
orðum um hagkvæmt samstarf milli
Júgóslava og Sovétmanna á sviði vís-
inda og tækni. Hann bætti við að
útlit væri fyrir að þessa samvinnu
mætti auka á ýmsum sviðum.
Tikhonov forsætisráðherra
hafði áður rætt við júgóslavneska
forsætisráðherrann, en ekki var
skýrt frá því í orðsendingu Tass
hvort Shevadnadze utanríkisráð-
herra hefði verið á fundinum.
Gorbachev fór einnig vinsam-
legum orðum um „áþreifanlegt
framlag" sósíalískra þjóða í þágu
friðar og sagði að ástand heims-
mála beinlínis krefðist þess að
menn samstilltu krafta sína til að
komast hjá ógnun kjarnorku-
styrjaldar, sem væri til komin
vegna stefna heimsvaldasinna.
Tekið er fram í fréttaskeyti AP að
sovéski leiðtoginn hafi ekki
minnzt á væntanlegan fund þeirra
Regans Bandaríkjaforseta í Genf í
nóvember.
Milka Planic skýrði Gorbachev
ítarlega frá ýmsum vandamálum
varðandi sósíalísks stjórnkerfi
lands síns en ekki var nánar farið
út í það. Gorbachev hefur þegið
boð um að koma í opinbera heim-
sókn til Júgóslavíu, en ekki er
ákveðið hvernær hún verður farin.
Flugvallar-
verkfall
í Sydney
Ástralfu 4. júlf. AP.
ÞUSUNDIR erlendra ferða-
manna hafa ekki enn komizt á
brott frá Sydney í Ástralíu vegna
þess að slökkvilið flugvallarins
hefur verið í verkfalli síðustu
þrjá daga. Þeir krefjast styttri
vinnutíma og aukins mannafla í
slökkviliðið.
Sjö erlend flugfélög hafa
beint flugi til Melbourne og sú
umferð sem fer um völlinn í
Sydney er nánast einvörðungu
innanlandsflug. Þau félög sem
hafa að svo stöddu stöðvað ferð-
ir til Sydney eru Lufthansa,
Garuda, Air France, Alitalia,
PanAm og Japan Airlines. Tals-
menn flugfélaganna segja að
þessi háttur verði hafður á með-
an verkfallið stendur yfir, ella
kunni farþegum að vera í voða
stefnt.
Jarðskjálfti
á Papu
Nýju Guineu
Sydney, Ástrnlíu 4. júlf. AP.
EYJARSKEGGJAR á Papua
Nýju Guineu voru gripnir skelf-
ingu í morgun, þegar þeir töldu
að eldgos væri hafið á Kyrra-
hafseyjunum Nýja-Bretlandi og
Nýja írlandi í eyjaklasanum.
Fólk þusti út úr híbýlum sínum
og kveinaöi hástöfum. í Ijós
kom að þarna var ekki um eld-
gos að ræða, heldur snarpan
jarðskjálfta.
Töluverðar skemmdir og mik-
il skriðuföll urðu í kjölfar
skjálftans. Þegar kyrrð var
komin á tókst að sannreyna að
slys hefðu ekki orðið á fólki.
Jarðskjálftinn var um 7.1 stig á
Richterkvarða og voru upptök
hans um 80 km austsuðaustur
af Rabaul, 25 þúsund íbúa bæ,
sem er í grennd við eldfjall sem
einatt gýs.
Fundur Gorbachevs og Reagans f Genf:
Ellefti fundur leiðtoga stór-
veldanna frá styrjaldarlokum
FYRIRHUGADUR fundur Mikhails S. Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna,
og Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta, í Genf 19.—21. nóvember nk. verður
hinn ellefti sem leiðtogar stórveldanna tveggja eiga með sér frá lokum síðari
heimsstyrjaldar. Hér birtist listi yflr fyrri fundi:
18.—23. júlí 1955. Fundur
Dwights Eisenhower, forseta
Bandaríkjanna, og leiðtoga Bret-
lands og Frakklands, með Nikita
Khrushchev, leiðtoga sovéska
kommúnistaflokksins, og Nikolai
Bulganin, forsætisráðherra. Til
umræðu var takmörkun kjarn-
orkuvígbúnaðar og hugmyndir um
gagnkvæmt eftirlit með vígbún-
aði.
25.-27. september 1959.
Tveggja vikna heimsókn
Khrushchev, sem þá var orðinn
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
til Bandaríkjanna. Hann átti
fundi með Dwight Eisenhower í
forsetabústaðnum að Camp David
í Maryland þar sem samkomulag
varð um að hefja viðræður um
Berlínarmálið. Jafnframt var gef-
in út sameiginleg yfirlýsing um
nauðsyn afvopnunar. Ennfremur
var hvatt til leiðtogafundar stór-
veldanna árið 1960.
Leiðtogafundurinn átti að hefj-
ast í París 16. maí 1960, en honum
var aflýst vegna kröfu Khrushch-
ev um að Bandaríkjastjórn bæðist
afsökunar á njósnaflugi banda-
rískrar þotu af gerðinni U-2 yfir
sovésku landsvæði. Þotan var
skotin niður og flugmaðurinn
handtekinn. Jafnframt dró
Khrushchev til baka boð til Eis-
enhower um að koma í opinbera
heimsókn til Sovétríkjanna í júní
sama ár.
3.-4. júní 1961. Fundur Johns
F. Kennedy, Bandaríkjaforseta, og
Khrushchev í Vín. Rætt um bann
við tilraunum með kjarnorkuvopn
o.fl., en ekkert samkomulag tókst.
23.-25. júní 1967. Lyndon John-
son, forseti Bandríkjanna, hitti
Alexi Kosygin, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, á tveimur fundum
í Glassborg í New Jersey, en ekk-
ert samkomulag tókst um ágrein-
ingsefni. Til umræðu var stríðið í
AP/Símamynd
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, á blaðamannafundi
í Washington í gær þegar greint var
frá fyrirhuguðum viðræðum Reag-
ans forseta og Gorbachevs leiðtoga
Sovétríkjanna.
Víetnam, deilurnar fyrir botni
Miðjarðarhafs og kjarnorkuvíg-
búnaður. Kosygin hafði komið til
Bandaríkjanna til að ávarpa alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna í
New York.
22. -24. maí 1972. Richard Nix-
on, Bandaríkjaforseti, og Leonid
Brezhnev, forseti Sovétríkjanna,
áttu með sér fund í Moskvu. Það
var fyrsta sinn sem Bandaríkja-
forseti kom til borgarinnar. Und-
irritað var samkomulag um sam-
vinnu á sviði heilsuverndar, um-
hverfismála og geimrannsókna.
18.—25. júní 1973. Brezhnev
kom á fund Nixon í Washington.
Þeir undirrituðu yfirlýsingu um
vilja til að ná samkomulagi, sem
bindi enda á vígbúnaðarkapp-
hlaupið, og komi í veg fyrir átök
ríkja i millum. Brezhnev dvaldi
tvo daga í Camp David til að und-
irbúa sig fyrir fundinn.
27. júní—3. júlí 1974. Fundur
Nixon og Brezhnev í Moskvu I
skugga Watergate-málsins, sem
leiddi til afsagnar Bandaríkjafor-
seta. Þeir undirrituðu nokkra
samninga um takmörkun kjarn-
orkuvígbúnaðar.
23. -24. nóvember 1974. Gerald
Ford, forseti Bandaríkjanna, og