Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 5
M,ORfiTOBlAÐip, FQgTUPAGUR þ,JÚLÍ 19$5
Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands 1985:
Fagnaö gildistöku
nýrra tóbaksvarnarlaga
SKÝRSLA stjórnar Krabbameinsfélags
íslands var í fyrsta sinn gefin út ( fjöl-
riti.
Aðalfundur Krabbameinsfélags ís-
lands var haldinn 31. maí sl. For-
maður félagsins, dr. Gunnlaugur
Snædal, flutti skýrslu stjðrnar, sem
nú var gefin út, í fjölriti, í fyrsta
sinn. Fram kom, að umsvif og starf-
semi félagsins aukast stöðugt og við
flutninginn í Skógarhlið 8, húsið sem
þjóðin gaf, hefur öll aðstaða ger-
breyst til hins betra. Helstu starfs-
þættirnir eru leit að krabbameinum,
frumurannsóknir, krabbameins-
skráning og útgáfu- og fræðslustarf.
Nýir starfsþættir bætast við. Á árinu
var komið á fót bókasafni þar sem
lærðir og leikir eiga í framtíðinni
möguleika á að nálgast upplýsingar
og heimildir um krabbamein. Röntg-
endeild var einnig tekin i notkun, þar
sem teknar eru röntgenmyndir af
brjóstum kvenna i því skyni að finna
krabbamein á byrjunarstigi
(mammography). Þá gat formaður
um framtíðarverkefni og er krabba-
meinsleit í neðri hluta meltingar-
vegar eitt þeirra. Annað eru lífsýna-
rannsóknir. Þykir ísland kjörið land
til að stunda slíkar rannsóknir.
Nefnd hefur verið stofnuð til að
vinna að þessu máli. Árið 1986 verður
„Norrænt átak“, þar sem öll krabba-
meinsfélögin á Norðurlöndum munu
safna fé til grunnrannsókna og er
forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, verndari söfnunarinnar hér-
lendis.
Ný lög voru samþykkt á fundinum
og felast breytingarnar aðallega í því
að auðvelda aðildarfélögum að tengj-
ast heildarsamtökunum, hafa skýrari
ákvæði um stjórnun og rekstur og
síðast en ekki sist að taka fjármálin
fastari tökum.
Gunnlaugur Snædal var endur-
kjörinn formaður, en aðrir í stjórn
eru: Erlendur Einarsson, Tómas Árni
Jónasson, Hjörtur Hjartarson, Vig-
dís Magnúsdóttir, Ólafur örn Arnar-
Átta af tólf
Eyjabátum
búnir með
humarkvótann
Vestmannaejjum, 4. júní.
ÁGÆTLEGA hefur gengið hjá humar-
bátum að veiða upp í kvóta sína, betur
en margar undanfarnar vertíðir. Aðeins
4 af 12 Eyjabátum eiga enn eftir sam-
tals 7,2 tonn af kvótanum og er þá átt
við slitinn humar. Þeir fyrstu kláruðu
að veiða upp í kvóta sína 10. júní sl.
Heildarkvóti Eyjabátanna 12 var
alls 73,7 tonn af slitnum humri og er
meðal humarveiðimanna ríkjandi
mikil óánægja með það hversu kvóti
þeirra er lítill.
Óvenjulíflegt hefur verið hér í allri
útgerð í sumar en vanalega er lítið
róið yfir sumarmánuðina og þeir þá
gjarnan notaðir til skveringa á bát-
unum.
Það er fyrst og fremst gámaút-
flutningurinn sem hefur lífgað upp á
ástandið enda hefur sá útflutningur
gefið góða raun og raunar bjargað
margri útgerðinni eftir slaka vetr-
arvertíð á trollinu. Aðeins er vitað
um einn bát sem hefur hætt veiðum
þar sem kvóti hans var uppurinn, en
allmargir bátar eru orðnir tæpir í
þorski. Aðrir hafa getað haldið
áfram veiðum með því að fá færðan
yfir til sín kvóta frá öðrum skipum.
Nokkrir bátar hafa hætt veiðum og
farið í skveringar, þar á meðal afla-
skipið Suðurey. Ekki er talið að kvót-
inn bindi marga báta við bryggju, þvi
margir munu fara á síldveiðar i
haust. Þá er talið víst að kvótinn end-
ist togurunum sjö fram til áramóta.
Mjög vel aflaðist hér í júnímánuði
og ánægjuleg aukning hefur orðið á
þorski í aflanum. í júní komu hér á
land 1.602 tonn af þorski frá togurum
og bátum, en 515 tonn sama mánuð í
fyrra.
Þess má geta að þetta er mesta
þorskmagn sem togarar hafa lagt á
land ( einum mánuði allt frá því í
apríl 1981.
son, Sigurður Björnsson, Almar
Grímsson, Gunnar Hansson, Sigur-
steinn Guðmundsson, Björgvin Lúth-
ersson, Matthías Johannessen og
Auður Guðjónsdóttir. Forstjóri fé-
lagsins er dr. G. Snorri Ingimarsson
og framkvæmdastjóri Halldóra
Thoroddsen.
Hjörtur Hjartarson, sem hefur
verið í stjórn Krabbameinsfélags Is-
lands síðan 1952, var heiðraður sér-
staklega í tilefni þess að hann varð
sjötugur í vor.
Krabbameinsfélaginu hafa borist
margar góðar gjafir, þar á meðal fé
til kaupa á ferðaröntgentæki, sem fé-
lagið hyggst kaupa til að sinna lands-
byggðinni.
Aðalfundur Krabbameinsfélags Is-
lands samþykkti eftirfarandi ályktun
um tóbaksmál:
„Aðalfundur Krabbameinsfélags
tslands 1985 fagnar samþykkt og
gildistöku nýrra tóbaksvarnarlaga og
telur að með þeim sé stigið mikilvægt
skref i heilbrigðismálum þjóðarinn-
ar.
Fundurinn heitir á landsmenn að
sameinast um að gera lögin að virku
tæki i baráttunni fyrir reyklausu
umhverfi og betra heilsufari almenn-
ings.
Jafnframt vill fundurinn taka und-
ir það sjónarmið að fyrirkomulag á
innflutningi, dreifingu og verðlagn-
ingu tóbaks eigi að miða að þvi að
halda tóbaksneyslu I lágmarki."
Elsa Guðbjörg fer með
eftir Laufeyju Jakobsdóttur
Ljóð flutt á táknmáli í Skonrokki
f SKONROKKI verður flutt ís-
lenskt lag í kvöld.
Það er lagið „Lífsbókin" af
nýrri plötu þeirra Bergþóru
Árnadóttur og Grahams Smith,
„Það vorar". Ljóðið er eftir Lauf-
eyju Jakobsdóttur en lagið eftir
Bergþóru.
Ellefu ára gömul heyrnarlaus
stúlka, Elsa Guðbjörg, mun flytja
ljóðið á táknmáli, við undirleik
þeirra Bergþóru og Grahams.