Morgunblaðið - 05.07.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLl 1985
15
Biskup
íslands
vísiterar
Rangárvalla-
prófastsdæmi
BISKUP íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson, mun vísitera flesta söfnuði
og kirkjur Rangárvallaprófastsdæm-
is dagana 7.—17. júlí nk. Mun bisk-
up taka þátt í guðsþjónustum í kirkj-
unum og eiga fundi með sóknar-
nefnd og sóknarpresti i hverjum
söfnuói.
Dagskrá vísitasíu biskups
verður sem hér segir:
6. júlí, Stóra-Dalskirkja kl. 17.00.
Fundur með sóknarnefnd.
7. júli, Ásólfsskálakirkja kl.
10.30. Fundur með sóknarnefnd,
kl. 13.00 guðsþjónusta.
Kyvindarhólakirkja ki. 17.00.
Guðsþjónusta og síðan fundur
með sóknarnefnd.
8. júli, Krosskirkja kl. 10.30.
Fundur með sóknarnefnd, kl. 14.00
guðsþjónusta.
Voðmúlastaðakapella kl. 17.00.
Fundur með forstöðunefnd.
9. júlí, Akureyrarkirkja kl. 10.30.
Fundur með sóknarnefnd, kl. 14.00
guðsþjónusta.
12. júlí, Breiðabólstaðarkirkja kl.
14.00. Guðsþjónusta. Fundur með
sóknarnefnd á eftir.
13. júlí, Hlíðarendakirkja kl.
14.00. Guðsþjónusta og síðan fund-
ur með sóknarnefnd.
Stórólfshvolskirkja kl. 20.30.
Fundur með sóknarnefnd.
14. júlí, Stórólfshvolskirkja kl.
14.00. Guðsþjónusta.
Oddakirkja kl. 17.00. Guðsþjón-
usta og síðan fundur með sóknar-
nefnd.
15. júlí, Keldnakirkja kl. 14.00.
Guðsþjónusta og síðan fundur
með sóknarnefnd.
Elliheimilin að Lundi og Kirkju-
hvoli. Heimsókn síðdegis.
16. júií, Marteinstungukirkja kl.
10.30. Fundur með sóknarnefnd.
Kl. 14.00. Guðsþjónusta.
Hagakirkja kl. 17.00. Guðsþjón-
usta og síðan fundur með sóknar-
nefnd.
17. júlí, Skarðskirkja kl. 14.00.
Guðsþjónusta og fundur með
sóknarnefnd á eftir.
Biskupsfrúin, Sólveig Ásgeirs-
dóttir, prófastur Rangæinga, Sr.
Sváfnir Sveinbjarnarson á Breiða-
bólstað og Sr. Magnús Guðjónsson
biskupsritari verða í för með bisk-
upi á yfirreið hans.
Fréttatilkynning
Dóms- og kirkju-
málaraðimeytið:
Um vínveit-
ingaleyfi
Dómsmálaráðuneytið hefur heim-
ild til að veita veitingahúsum leyfi til
vínveitinga samkvæmt áfengis-
lögum. Þó getur ráðuneytið ekki gef-
ið út leyfi nema hlutaðeigandi bæj-
arstjórn eða sýslunefnd sé því með-
mælt.
í fréttatilkynningu frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu kemur
fram að ráðuneytið leggi áherslu á
samstarf þeirra aðila sem vinna
að vörnum gegn tjóni af völdum
áfengisneyslu þegar umsóknir um
vínveitingaleyfi eru teknar til
meðferðar.
Það sjónarmið hefur komið
fram að spyrna þurfi móti fjölgun
vínveitingahúsa, nú síðast á ráð-
stefnu Sambands ísienskra sveit-
arfélaga um áfengismál.
í öllum sveitarfélögum eru
starfandi lögmætar nefndir til
ráðuneytis um áfengismál. Er
formaður skipaður af heilbrigð-
ismálaráðherra en sveitarstjórn
velur aðra nefndarmenn. Hyggst
dóms- og kirkjumálaráðuneytið
taka fullt tillit til umsagna þess-
ara nefnda þegar fjallað verður
um vínveitingaleyfi í framtíðinni.
AXELOG BX-INN ERU ÁIEKNNNI
HL AKUREYRAR
og verda til sýnis
uð Óseyri 6,
um helgina
dögunum var Axel
kynntur fyrir sunnan.
Hann vakti stormandi
lukku, - enda er Axel al-
vöru Citroén, sem kostar að-
eins 270.000.- krónur. Á
þremur dögum voru 50 bílar rifnir
út. Nú höfum við hjá Glóbus tryggt okk-
ur fleiri bíla og ætlum að bruna norður!
Komdu og skoðaðu
bílinn sem kostar
aðeins 270.000.- kr.!
Bílasýning verður haldin hjá söluumboði
Citroén, Bifreiðaverkstæði Gunnars
Jóhannssonar, Óseyri 6, um helgina.
Opið verður laugardag og sunnudag
kl. 11-18 báða dagana. Að sjálfsögðu
verður hægt að reynsluaka
Axeli.
Mundu
eftir BX-inum!
Citroén BX 16 TRS verður einnig
til sýnis. BX-inn hefur hlotið verðskuldaða
athygli á íslandi. Hann er sannkallaður
glæsivagn og ríkulega búinn aukahlutum.
Við lánum
drjúgan skilding
Allt að 35% af verðinu í átta mánuði. Þú
getur sett þann gamla upp í BX-inn og
hugsanlega upp í Axel.
Nú er eftir litlu að bíða. Axel og BX-inn
staldra stutt við á Óseyrinni.
Globuse
LÁGMULI 5,
SÍMI81555