Morgunblaðið - 05.07.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5: JÚLf 1985
21
Opið bréf til stjórnar Húss Jóns
Sigurðssonar í Kaupmannahöfn
— eftirSverri
Tómasson
Jón var stórkostlegur en
Konráð snyrtilegur og smá-
smuglegur. Konráð var mjög
gefinn fyrir að brúka menn og
borgaði ílla eða ekki, án þess
þó að vera ágjarn eða sjer-
plæginn; Jón var einnig gefinn
fyrir að brúka menn, en borg-
aði vel. Jón var góður búhöld-
ur, Konráð þar fráleitur ...
Benedikt Gröndal, Dægradvöl,
bls. 165.
Þessi mannjafnaður Benedikts
Gröndals kemur mér jafnan í hug
þegar ég heyri minnst á Jón Sig-
urðsson. Það vita of fáir að Jón
var afkastamikill og velvirkur
fræðimaður, honum féll aldrei
verk úr hendi og má sjá þess
merki bæði í handritasöfnunum
hér á landi og í Höfn. Það var þess
vegna vel til fundið að í „Jónshúsi"
í Kaupmannahöfn skyldi vera inn-
réttuð íbúð handa fræðimanni þar
sem hann gæti búið leigulaust og
sinnt rannsóknum sinum; þar með
hafði Jón einnig borgað vel eftir
dauða sinn.
Fyrir þann fræðimann sem
leggur stund á íslenskar bók-
menntir, sögu og kannar handrit
er naumast til betri staður en
Kaupmannahöfn. Kemur þar
tvennt til: í borginni er til úrval
íslenskra bóka og handrita, hið
mesta utan fslands og annar bók-
akostur stendur bestu söfnum
annars staðar i Evrópu lítt að
baki. En það vita allir sem fást við
íslensk fræði, hvort sem það eru
bókmenntir, saga, málfræði eða
handritarannsóknir að bókakostur
islenskra safna er svo ófullkominn
að til þess að geta sinnt rannsókn-
um sínum hér, þurfa allflestir ís-
lenskir fræðimenn að leita til er-
lendra safna, fá bækur og tíma-
ritsgreinar lánaðar til landsins og
getur slíkt lán oft tafið rannsókn-
imar í langan tíma. Þetta hamlar
mjög allri könnun á fornbók-
menntunum, enda er það svo að
flestar rannsóknir á þeim eru
gerðar af útlendingum og gefnar
út erlendis á framandi tungum.
Það er því eðlilegt að margir rann-
sóknarmenn í islenskum fræðum
freistist til að sækja um „not af
fræðimannsíbúð" i húsi Jóns Sig-
urðssonar og hugsi hlýtt til Jóns
„Fyrir þann fræðimann
sem leggur stund á ís-
lenskar bókmenntir,
sögu og kannar handrit
er naumast til betri
staður en Kaupmanna-
höfn.“
eins og hann birtist í minningum
Gröndals: Jón borgaði vel. En í
þessum hópi munu fáir eiga
brýnna erindi til Hafnar en
starfsmenn Árnastofnunar í
Reykjavík vegna margvíslegrar
skyldugrar samvinnu við systur-
stofnunina í Höfn.
En þeir eru teljandi á fingrum
annarrar handar þeir fræðimenn
þessarar greinar sem hafa fengið
afnot af íbúð Jóns Sigurðssonar.
Stjórn hússins hefur ekki gefið út
neina reglugerð, þar sem kvt-ðið er
á um hvernig skuli haga úthlutun
þessa óbeina „dvalarstyrks". Það
er og með öllu óverjandi að hús-
stjórnin svari umsækjendum á
þessa leið:
„Fyrir hönd stjórnar húss Jóns
Sigurðssonar leyfi ég mér hér með
að tilkynna yður að stjórn hússins
hefur því miður ekki getað veitt
yður not af fræðimannsíbúðinni á
næsta úthlutunartímabili frá 1.
september 1985 til 30. ágúst 1986.
Einungis er unnt að veita fjór-
um aðgang að íbúðinni, þrjá mán-
uði hverjum, en umsækjendur eru
nú 30.“
Ég vil því skora á hana að hún
svari opinberlega þessum fyrir-
spurnum:
1) hvaða fræði- og visindamenn
hafa fengið „not“ af íbúðinni
frá upphafi úthlutunar,
2) hvort fulltrúum allra greina
hug- og raunvísinda hafi verið
gert jafn hátt undir höfði,
3) hver hefur verið hlutur þeirra
fræðimanna sem lagt hafa
stund á þau vísindi sem Jóni
Sigurðssyni voru kærust.
Sverrir Tómasson
Svari hússtjórn ekki fyrirspurn-
um mínum og birti ekki um leið
þær starfsreglur sem hún fer eft-
ir, verður að líta svo á að annarleg
sjónarmið, og þau ekki í anda Jóns
Sigurðssonar, ráði því hverjir fá
að dveljast þar ár hvert.
Ilöíundur er séríræóingur í mid-
aldabókmenntum og rinnur í
Stoínun Árna Magnússonar.
•.\V.. \V**'
*,• • *. «*'..• •'*,••'.« • * • titfjl • ,
t .,•• .,»* ,•• , • ' , • * ..»• . . SB*. • .
m
Nh 36-41
iitlL Hvítir og Ijósblóir
verö: 1.160,-
Ni.= 35-41
litir: Svartir og hvítir
veröt B85,-
ife 36—43r
AMANDE
iitirrSvartir, rauöir og hvítir
Nr; 35-41
litii; SvortiL rauöii og hvítir
verö: 850,- _____________
Líttu'við um lelð og þú litur 1 bæmn.