Morgunblaðið - 05.07.1985, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ1985
Hhiti þáttUkenda í riðstefnunni i Hótel Loftleiðum.
Norræn ráðstefna um rann-
sókn stórslysa haldin hér
UM MIÐJAN síðasta mánuð var haldinn í Reykjavík fundur hinna
norrænu ID-nefnda, en þnð eru samstarfsnefndir rannsóknaraðila, sem
vinna að ýmsum sérverkefnum í sambandi við rannsóknir stórslysa, til að
mynda flugslysa.
Nefndir þessar eru skipaðar
mönnum með ýmiss konar sér-
þekkingu og þjálfun á sérgreind-
um rannsóknarsviðum, sem við
sögu koma i rannsókn stórslysa.
Þar koma viö sögu rannsóknar-
lögreglumenn, sérfræðingar
flugslysarannsókna, réttarlækn-
ar, réttartannlæknar og fleiri.
Þeir inna af höndum verkefni i
rannsókn stórslysa, orsakir og
afleiðingar og bera kennsl á lik i
slíkum slysum.
„Þessar norrænu ID-nefndir,
eða Identifiseringsgrupper, sem
svo eru nefndar á norrænum
málum, koma árlega saman til
að bera saman bækur sínar. Þá
eru til umræðu ýmis viðfangs-
efni, sem upp hafa komið, rann-
sóknaraðferðir og nýjungar.
Margt athyglisvert kom fram á
þessum fundi,“ sagði Hallvarður
Einvarðsson, rannsóknarlög-
reglustjóri rfkisins, I samtali við
Morgunblaðið.
„Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur tekið þátt í þessu sam-
starfi á liðnum árum og var
fundur þessi nú í fyrsta sinn
haldinn á íslandi. Það féll i hlut
RLR að sjá um skipulagningu.
Við skýrðum frá ýmsum málum,
til að mynda þyrluslysinu i
Jökulfjörðum í nóvember 1983
og björgunarstarfi sem innt var
af hendi.
ID-fundirnir eru tföum haldn-
ir i tengslum við ráðstefnur
norrænna réttarlækna og var
svo að þessu sinni. Margir hinir
sömu sóttu báða þessa fundi og
gafst okkur hjá RLR tækifæri til
þess að fylgjast nokkuð með
ýmsum þeim athyglisverðu mál-
um, sem norrænir réttarlæknar
fjalla um, og raunar vfðar að.
Forseti ráðstefnu réttarlækn-
anna var dr. med. ólafur
Bjarnason, prófessor, og nutum
við mikilsverðs framlags af hans
hálfu i sambandi við þessa fundi.
Rannsóknarlögregla rfkisins
Itauð til þessara funda dr. Ray
Williams, forstöðumanni rann-
sóknarstofu New Scotland Yard.
Margir minnast eflaust athyglis-
verðrar fræðslumyndar, sem ís-
lenzka sjónvarpið sýndi nýlega
um starfsemi þessarar stofnun-
ar. Dr. Williams flutti mjög
fróðleg erindi um nýjar aðferðir
við fingrafararannsóknir og um
réttarlæknisfræðilegar rann-
sóknir með sérstöku tilliti til
líffræðilegra athugunarefna. Dr.
J.K. Mason, prófessor i réttar-
læknisfræði við háskólann i
Edinborg, ræddi um slysarann-
sóknir og dr. Patrick Lincoln, frá
The London Hospital Medical
College, fjallaði um blóðrann-
sóknir og hvernig bera megi
kennsl á blóðbletti. Hann gat
meðal annars um blóðrannsókn,
sem hann vann fyrir RLR. Fyrir
milligöngu prófessors ólafs
Bjarnasonar hefur dr. Lincoln
innt af hendi mikilsverðar rann-
sóknir á slikum efnum. Þeir
Williams og Lincoln áttu viö-
ræður við yfirmenn RLR og
kynntu' sér starfsemi, sem þar
fer fram. Þar á meðal starfsemi
tæknideildar RLR.
Mikill ávinningur var tví-
mælalaust af heimsókn þeirra og
annarra, sem fundina sóttu, og
hafa þessi tengsl ómetanlega
þýðingu fyrir RLR,“ sagði Hall-
varður Einvarðsson.
„Ég éttast að glæpum
eigi eftir að fjölga hér“
— segir dr. Ray Williams, yfirmaður rannsóknarstofu New Scotland Yard
RKTTARVÍSINDI eru vaxandi þáttur í rannsókn sakamála, bæði hér á
landi og erlendis. Um 200 manns starfa hjá The New Scotland Yard
Laboratory, hinni nýju rannsóknarstofu Scotland Yard. Þar er unnið við
að upplýsa sakamál með aðferðum vísindanna — morðmál, íkveikjur,
rán, innbrot og nauðganir, svo eitthvað sé nefnt. Stofnunin starfar I
tengslum við Lundúnalögrcgluna og er yfirmaður rannsóknarstofunnar
ábyrgur gagnvart lögreglustjóra Lúndúnalögreglunnar. Rannsóknarstof-
an leikur æ stærra hlutverk I að upplýsa sakamál. Ray Williams er
yHrmaður rannsóknarstofunnar frá 1968. Hann flutti fyrirlestra á ráð-
stefnunni á Hótel Loftleiðum.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi stuttlega við hann á með-
an ráðstefnan stóð yfir og spurði
hvernig hann teldi Rannsóknar-
lögreglu ríkisins I stakk búna að
fást við vandleyst sakamál. „Þið
eigið hæfa menn til að fást við
flókin og alvarleg sakamál. Mun-
urinn á Lundúnum og Reykjavík
er sá, að við erum stöðugt að fást
við flókin og alvarleg sakamál, á
meðan þau koma tiltölulega
sjaldan upp hér á landi, sem bet-
ur fer vil ég segja. Ykkar menn
fá ekki sambærilega æfingu og
starfslið New Scotland Yard
Laboratory og auðvitað kemur
það fram í starfi þeirra. Ég vil
þó taka skýrt fram, að lögreglu-
menn RLR eru aö mínu mati
hæfir I starfi og skapa grundvöll
til þess að takast á við vandleyst
og alvarleg sakarefni.
Ég óttast, að glæpum eigi eftir
að fjölga hér á landi — tel það
nánast óumflýjanlegt I tengslum
við vaxandi fíkniefnaneyslu.
Ekki eru mörg ár síðan Bretar
töldu sig ekki eiga við ffkniefna-
vanda að stríða. Fíkniefni hafa
streymt inn I landið og með þeim
hefur afbrotum fjölgað og of-
beldi vaxið. Ég óttast að sama
verði upp á tengingnum hér.
Tæknilega er RLR ekki nægi-
lega vel búin. Þið eigið við sama
vanda að stríða og við — fjár-
skort en menn verða að gera sitt
besta við rikjandi aðstæður. I
Ástralíu nýta háskólar, iðnaður
og réttarvísindamenn sameigin-
lega tæki, sem eru mjög dýr og
það hefur gefið góða raun,“ sagði
dr. Williams.
„Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur átt góð samskipti við
rannsóknarstofnanir Háskóla
íslands, þar á meðal rannsókn-
arstofu þá er Ólafur Bjarnason,
prófessor, stýrir, rannsóknar-
stofu I lyfjafræði sem Þorkell
Jóhannesson, prófessor, veitir
forstöðu og reyndar höfum við
leitað til ýmissa annarra rann-
sóknarstofnana. Mikil áherzla er
lögð á gildi traustra vísindalegra
rannsókna þegar efni standa til
slíks í þágu rannsókna opinberra
mála,“ sagði Hallvarður Ein-
varðsson, rannsóknarlögreglu-
stjóri ríkisins.
„Raunar höfum við leitað til
The New Scotland Yard Labora-
tory. Þannig tókst fyrir skömmu
að upplýsa íkveikju I Ármúla
með aðstoð breskra vlsinda-
manna,“ bætti Hallvarður við.
— Réttarvísindi verða stöðugt
j Mortfunblaöiö/JúlíuB
A ráðstefnunni — dr. Ray Williams, Helgi Daníelsson yfirlögregluþjónn
RLR og Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri.
mikilvægari við rannsókn saka-
mála, dr. Williams.
„Já, það er rétt og á mörgum
sviðum rannsókna sakamála
verður ekki komist hjá aðstoð
vísindamanna. Svo er oft í erfið-
um morömálum, við rannsókn
fikniefnamála, nauðgana, rána
og innbrota. Raunar hefur lög-
reglustjóri Lundúnaborgar haft
vaxandi áhyggjur af þvi hve
erfiðlega hefur gengið að upp-
lýsa rán og þjófnaði. Hann hefur
farið þess á leit að tengsl vís-
indamanna og lögreglu i þessum
málaflokki verið aukin.“
— Er lögreglan á Bretlandi
nægilega vel búin tækjum og
mönnum?
„Meginatriði er góður og hæf-
ur mannskapur. Við eigum á að
skipa góðum mönnum á Eng-
landi en eigum undir högg að
sækja með tækjakost, rétt eins
og íslenzk lögregla. Við verðum
að gera það besta við rikjandi
aðstæður, rétt eins og þið. Fjár-
veitingar til hinna ýmsu þátta
ríkisrekstrar eru breytilegar —
á einum tima leggja menn
áherzlu á að byggja upp félags-
lega þætti samfélagsins, aðra
stundina eru varnir landsins i
brennidepli og enn aðra stund-
ina löggæzla. Við verðum að
leggja áherslu á að upplýsa al-
menning og umfram allt verður
fólk að bera traust til lögreglu.
Lögregla verður að vera hafin
yfir grun um misferli. Fólk verð-
ur að geta treyst lögreglunni,"
sagði Ray Williams.
Nýtt tímarit um
garðyrkju
NÝTT tímarit er komið á markaðinn og ber nafnið „Á grænni grein“.
Útgefandi er félagið Þrfblað í Hafnarfirði og eru eigendur Steinþór Einars-
son og Magnús Jónaason, skrúðgarðyrkjumeistarar, og Magnús Jónsson,
landslagsark itek t.
„Meginmarkmið útgáfunnar er
að gefa út garðyrkjurit, sem ritað
er af garðyrkjufólki. Við teljum
okkur geta boðið öllu áhugafólki
um garðyrkju vandað rit og er
ætlunin að ritið komi út fjórum
sinnum á ári,“ sagði Steinþór Ein-
arsson í samtali við Morgunblaðið.
Fyrsta tölublaðið er 48 síður að
staerð, fjölbreytt að efni. Þekkt
garðyrkjufólk skrifar í blaðið;
Hólmfríður Sigurðardóttir, garð-
yrkjusérfræðingur á Akrueyri,
Ólafur Njálsson, garðyrkjusér-
fræðingur í Reykjavík og Haf-
QRBN
GRÆNNI
GREW
Jtgefendur hins nýja tímarits. Frá vinstri: Pétur Jónsson, Steinþór Einare-
son og Magnús Jónasson.
steinn Hafliðason, garðyrkju- grein um gerð gangstétta svo og
maður í Reykjavík. f blaðinu er fjölmargar myndir.