Morgunblaðið - 05.07.1985, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLl 1985
Sumardvöl fyrir
börn í Sveinatungu
í SUMAK verftur rekið sumardvalarheimiii fyrir börn í Sveinatungu,
Borgarfirði. Reksturinn annast þær Elín Magnúsdóttir og Vilborg
Hannesdóttir.
Námskeiðin hófust 30. júní og
standa í 10 daga. Að sögn Elínar
Magnúsdóttur byggjast námskeið
þessi aðallega á útivist. „Við för-
um með krakkana í veiðiferðir upp
í Króksvatn á Holtavörðuheiði,
kennum þeim á áttavita og förum
í gönguferðir um nágrennið. Há-
marksfjöldi er 10 í hvert skipti.
Sem stendur eru hér 8 bðrn. Við
byrjuðum of seint að auglýsa svo
að aðeins hefur verið bókað fyrir 5
börn í næsta skipti. Veðrið hér
hefur verið ótrúlega gott, þurr-
viðri og stilla. Börnin eru ánægð
með dvölina hér, þau eru að visu
hinir mestu fjörkálfar en þetta er
skemmtilegt starf," sagði Elín
Magnúsdóttir að lokum.
Vilborg Hannesdóttir og Elín Magnúsdóttir ásamt nokkrum dvalargestum.
Doktor í fiskifræði
ÞANN 15. maí síðastliðinn varði
Björn Björnsson doktorsritgerð við
Dalhousie-háskóla í Halifax í
Kanada. Ritgerðin nefnist: „Bioen-
ergetics of cod (Gadus morhua L.): a
response to food intake with possi-
ble implications for fisheries man-
agement.“ Ritgerðin fjallar um
hvernig ýmsir þættir í líffræði
þorsks, svo sem vaxtarhraði og vaxt-
arnýtni, breytast með fæðuframboði,
og um hugsanlega þýðingu þess við
fiskvciðastjórnun.
Niðurstöður eldistilrauna með
þorsk voru notaðar við gerð
reiknilíkans af sambandi fæðu-
framboðs, vaxtarhraða, stofn-
stærðar og framleiðslu fiskistofns.
Samkvæmt líkaninu ræðst sú
stofnstærð, sem gefur hámarks-
afrakstur, af því fæðumagni sem
er til staðar fyrir fiskistofn. Ef
aðstæður í sjónum breytast þann-
ig, að meiri fæða fellur til árlega,
þá segir líkanið að draga eigi úr
veiðum til að fiskistofn verði
nægilega stór til að nýta aukið
fæðumagn. Hins vegar ef fæðu-
framboð helst lítið um árabil þá
getur mikil samkeppni um fæðu
orsakað lítinn vaxtarhraða og lé-
lega vaxtarnýtni. Við þær aðstæð-
ur bendir líkanið til að rétt sé að
auka veiðar til grisjunar á stofni.
Samkvæmt reiknilíkaninu virð-
ist mega nota vaxtarhraða fiska
sem mælikvarða á fæðuframboð
og afrakstursgetu. Þannig má tltð
á hámarksvaxtarhraða sem m«rl({
um að of fáir fiskar séu í stofni tfi
að nýta alla tiltæka fæðu, en mjög
lítinn vaxtarhraða hins vegar sem
merki um að of margir fiskar séu í
stofni til að fæðan nýtist vel til
vaxtar. Líkanið bendir til þess að
hámarksafrakstur af þorskstofni
náist þegar vaxtarhraði er u.þ.b.
70% af hámarksvaxtarhraða. Með
hámarksvaxtarhraða er átt við
þann vaxtarhraða sem næst þegar
meira en nóg er af fæðu fyrir
hvern fisk.
í ritgerðinni voru kannaðar
breytingar á vaxtarhraða hjá
kanadískum þorkstofni. Góð sam-
Dr. Björn Björnsson
svörun reyndist milli niðurstaðna
stofnmælinga og niðurstaðna
reiknilíkans. Samanburðurinn
benti til þess að árlegt fæðufram-
boð fyrir þennan stofn hafi breyst
verulega á því 30 ára tímabili sem
athugun náði til. Stærð þessa
stofns og vaxtarhraði hafa einnig
breyst verulega síðan mælingar
hófust og benda niðurstöðurnar til
þess að vaxtarhraðinn hafi oft
takmarkast af fæðuframboði.
Björn er fæddur á Stöðvarfirði
27. janúar 1952. Hann er sonur
þjónanna Þorbjargar Einarsdótt-
UT og Björns Stefánssonar fyrr-
terandi kaupfélagsstjóra. Björn
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1972.
Hann nam líffræði við Háskóla Is-
lands og Iauk þaðan BS-prófi árið
1975. Næstu tvö árin stundaði
hann rannsóknir á fæðunámi
urriða og bleikju í Elliðavatni.
Björn hóf nám við haffræðideild
Dalhousie-háskóla haustið 1977 og
vann þar með doktorsverkefni
sínu. Hann starfar nú á Hafrann-
sóknastofnuninni sem sérfræðing-
ur í eldi sjávardýra. Björn er
kvæntur Láru G. Hansdóttur lög-
fræðingi og eiga þau tvö börn.
Ríkisstjórnin skipar nefnd:
Á að stuðla að
samstarfi við
Grænlendinga
í því skyni að stuðla að auknu sam-
starfi milli íslands og Grænlands á
sviði fiskveiðimála, fiskvinnslumála,
hafrannsókna, viðskipta- og sam-
göngumála og landbúnaðarmála hef-
ir ríkisstjórnin skipað þessa menn í
nefnd:
Árna Kolbeinsson ráðuneytis-
stjóra, Þórhall Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóra, Ólaf S. Valdimarsson
ráðuneytisstjóra, Sveinbjörn Dag-
finsson ráðuneytisstjóra, Pál
Flygenring ráðuneytisstjóra og
Pétur Thorsteinsson sendiherra,
sem er formaður nefndarinnar.
Landstjórn Grænlands hefir til
athugunar að skipa samskonar
samstarfsnefnd, en fyrst um sinn
mun gagnaðilinn i Grænlandi,
John E. Jensen, verða fram-
kvæmdastjóri heimastjórnar
Grænlands.
Meðal þeirra mála sem munu
sérstaklega koma til athugunar i
samstarfi íslands og Grænlands
eru ráðstafanir til verndar og nýt-
ingar sameiginlegra fiskistofna,
hafrannsóknir og önnur mál sem
lúta að fiskveiðum, svo sem vís-
indalegar rannsóknir á fiskistofn-
um, markaðsmál sjávarafurða og
tæknileg atriði er snerta fiskveið-
ar og fiskvinnslu.
FARANGUR SEM
UMFERÐARRÁÐ
OGFÍBMÆLA
Umferðarráð og FIB
óska þér góðrar ferðar
- með beltið spennt.
ESSOPOKINN OG
VARAHLUTIRNIR TÍU
Við fengum upplýsingarhjá vegaþjónustu
FÍB um algengustu bilanatilfellin í bílum
á vegum úti og settum síðan saman skrá
yfir þá tíu hluti sem skynsamlegt er að
hafa í farangrinum:
1. Viftureim 7. L
2. Kveikjulok 8.
3. Hamar/þéttir 9. Einangrunan
4. Platínur band
5. Límogbætur 10. Rafgeyma-
6. Kerti skór.
Þetta eru litlir hlutir en samt nógu
mikilvægir til þess, að ef þá vantar
geta þeir sett stórt strik í ferða
áætlunina. Sýndu fyrirhyggju
og vertu þér úti um þessa vara-
hluti í bílinn þinn. Þú færð
marga þeirra á bensínstöðv-
um ESSO og þar færðu líka
sérsniðinn og sterkan poka
utan um þá alla:
VARAHLUTAPOKA ESSO.
<&) Olíufelagið hf
NÁÐU ÞÉR í VARAHLUTAPOKA Á NÆSTU ESSOSTÖÐ
AUK hf 15.130