Morgunblaðið - 20.07.1985, Blaðsíða 19
38fti hlOl .OS fl’JOAOHAQijAJ ,QIO AJ?IWJDflOW
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚLl 1985
Gallerí
Borg
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Nú yfir hásumartímann hefur
Gallerí Borg sett upp sumar-
markað á myndlist og kennir þar
margra grasa. Aðallega kynnir
galleríið úrval sitt af fjölbreyti-
legustu gerð grafík-mynda en
einnig eru á boðstólum pastel-
og klippimyndir, teikningar, ker-
amik, skúlptúr og fleira. Á neðri
hæð er svo úrval af olíumálverk-
um og vatnslitamyndum eftir
marga af kunnustu málurum
þjóðarinnar.
Þetta framtak er mjög til
fyrirmyndar og því rétt og skylt
að vekja athygli á því. Þetta er
eiginlega hið eina rétta sem sýn-
ingarsalir höfuðborgarinnar
geta gert á þessum árstíma og
hef ég þráfaldlega bent á það á
undanförnum árum. Þetta er
einmitt það sem erlendir sýn-
ingarsalir gera ailflestir og
margir kjósa jafnvel að hafa lok-
að a.m.k. í mánaðartíma. Svo
opna þeir allir með vönduðum
sýningum á svipuðum tíma á
haustin og er þá mikið um dýrð-
ir, — listamenn hittast og gera
sér glaðan dag.
Mér sýnist einnig sem fólk
kunni vel að meta þetta framtak
og hér mættu fjölmiðlar vera
með á nótunum um góða kynn-
ingu. Það tekur mörg ár að þróa
listsýningarsali og vinna þá upp
og verður ekki gert án þessa
sjálfsagða stuðnings.
Á einu furðar mig og það er
áhugaleysi erlendra á að festa
sér myndir íslendinga og hefur
áhuginn ekki aukist um árabil
þótt eitthvað seljist á listsýning-
um erlendis. Hin miklu átök til
kynningar íslenzkrar myndlistar
og listar almennt, sem eiga sér
stað núna gætu breytt hlutunum
mikið og víst er að íslenzkur
myndlistarmarkaður er of lítill
fyrir allt þetta flóð myndlist-
armanna, sem hefur komið fram
á undanförnum árum. Gera þarf
átak til að kynna íslenzka
myndlist enn frekar á erlendum
vettvangi með skipulegum sýn-
ingum. Áð öðrum kosti má búast
við að listamenn flytji unnvörp-
um úr landi á næstu árum sem
væri mikill skaði.
Framtak Gallerí Borg er mjög
til fyrirmyndar og nefna má að
stöðug hreyfing er á uppheng-
ingu mynda.
íslendingar mættu gjarnan
gera meira af því að fara með
erlenda gesti sína á slíka lista-
markaði því þeir kynna þver-
skurð af ýmsu því sem er að ger-
ast í islenzkri myndlist í dag.
tölvur laöast aó
y*THí
prenturum
FACIT 4509 / 4510 / 4511 prentarar ganga við flestar gerðir af tölvum. Þeir eru
áreiðanlegir, mjög fljótvirkir og prentun er í háum gæðum.
Þið getið sjálf skipt um leturhaus ef þið viljið, annars endist hver haus til þess. að
prenta meira en 100.000.000 stafi og það er sama sagan með borðann, hann endist
fyrir meira en 4.000.000 stafa.
En þið getið afskrifað milljónirnar með öllu þegar þið kaupið einn þessara þriggja
FACIT prentara, því verðið er vægast sagt ótrúlega lágt eða frá rúmum 16.000
krónum.
Látið sérhæfða sölumenn með langa reynslu að baki leiðbeina ykkur við val á
réttum FACIT prentara. ■
GÍSLI J. JOHNSEN I M1 P 1 J
TOLVUBUNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBUNAÐUR SF
SMIÐJUVEGI 8 P O BOX 397 202 KÖPAVOGI SlMI 73111 S1
SUNNUHLÍÐ, AKUREYRI, SÍIVII 96-25004