Morgunblaðið - 21.07.1985, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLl 1985
Nýjasta mynd gamla jaxlsins
John Hustons, Heidur Prizzis
(Prizzi’s Honor), var frumsýnd í
Bandaríkjunum síðustu dagana í
júní síðastliðnum. Það er skemmst
frá því að segja, að myndin hefur
fengið hreint ótrúlega góðar mót-
tökur, gagnrýnendur á blöðum og
tímaritum eins og Newsweek, Vili-
age Voice og The Wall Street
Journal, hafa allir hrósað gamla
manninum eins og hann sé eini
snillingurinn ofan moldu.
Vafasamur heiöur
„Heiður Prizzis” er mikils-
háttar fjölskyldudrama hvernig
sem litið er á myndina. Hún er
mafíumynd hlaðin alvarlegu
gríni. Hinn tæplega áttræði
Huston er leikstjóri, en aðalhlut-
verkið er í höndum Jack Nichol-
son, sem er óopinber tengdason-
ur Hustons, en Jack og Anjelica,
sem er dóttir leikstjórans og
leikur stórt hlutverk í myndinni,
hafa verið saman í tíu ár. En
stærsta kvenhlutverkið hefur
Kathleen Turnar, sem undan-
farnar vikur hefur skemmt bíó-
gestum í Romancing The Stone.
Jack Nicholson leikur Charley
Paranna, sem er sauðtrygg og
harðskeytt undirtylla hjá
Prizzi-fjölskyldunni, einni
stærstu innan Mafíunnar. Hann
er vel metinn hjá forsprökkum
fjölskyldunnar, því gott þykir að
hringja til hans hvenær sem er
sólarhringsins þegar fram-
kvæma þarf eitthvert skítverkið.
Eins og nærri má geta þá nýt-
ur Jack Nicholson sín vel í þessu
gervi, en Charley Partanna er
bara mannlegur og fellur kylli-
flatur fyrir fögru kvenfólki.
Hann hefur undanfarið gert sér
dælt við Maerose (sem Anjelica
Huston leikur af stakri prýði),
en ekki Iíður langur tími þar til
Charley fer að hugsa sér til
hreyfings og rekur glyrnurnar í
hina ægifögru Irene Walker
(Kathleen Turner). Eftir þann
dag verður líf mafíugarpsins
ekki hið sama.
Því þótt hann ætli sér Irene þá
hefur Maerose ekki sagt sitt síð-
asta — en það sem vegur þyngst
er að hún er eldri dóttir Donsins,
sem hefur líf smápeða eins og
Charleys í hendi sér.
Þessi er bakgrunnurinn að
nýju mynd John Hustons, og er
ekki ástæða til að rekja sögu-
þráðinn í smáatriðum, þvi
myndin verður sýnd í reykvísku
kvikmyndahúsi í haust, ef allar
áætlanir standast.
Bókarhöfund-
urinn Condon
Það var Huston sjálfur sem
kom myndinni í kring. Hann
uppgötvaði bókina snemma árs
1984, sem þá var orðin tveggja
ára gömul. Hann hafði samband
við höfundinn þegar í stað og
hann samþykkti að skrifa kvik-
myndahandrit.
John Huston hafði lengi verið
mikill aðdáandi bókarhöfundar-
ins Richard Condons, en þeir
höfðu þekkst í meira en þrjátíu
ár. Richard Condon hefur skrif-
að fjölmargar bækur um dagana,
og má nefna hina umtöluðu
„Winter Kills“.
JACK NICHOLSON, JOHN OG ANJELICA HUSTON
LEIÐA SAMAN HESTA SINA:
HEIÐUR
PRIZZIS
Irene og
Charley á
góðri stund
áður en
mafíublóðið
í þeim renn-
ur til skyld-
unnar.
Jack Nicholson í blutverki mafíu-
garpsins Charley Partanna.
John Huston, enn f fullu fjöri þótt hann sé að
verða áttræður.
Fjölskyldan saman komin, Jack, John og Anjelica (lengst til hægri) ásamt
Kathleen Turner.
Richard Condon tilheyrir þeim
rithöfundum í Bandaríkjunum
sem oft eru kallaðir „neðanjarð-
ar“. Bækur þeirra eru gefnar út í
litlum upplögum, en tryggir að-
dáendur lesa þær í tætlur. Hann
hefur verið borinn saman við
William Burroughs og Thomas
Pynchon, einnig höfundana Jos-
eph Heller og Thomas Berger,
sem ná til stærri. lesendahóps.
Það sem einkennir skrif Condons
er hve mikið hann fjallar um
hinar dökku hliðar draumsins
ameríska. Ein hans þekktasta
bók nefnist „The Manchurian
Candidaté" (1962).
Gagnkvæm virðing
Jack Nicholson samþykkti að
leika í þessari mynd einungis
vegna þess að John Huston átti
að stjórna henni. Jack fær þús-
undir kvikmyndatilboða á hverj-
um degi, og hann hefur ekki við
að segja nei því hann er orðinn
vandlátari en á yngri árum. Gef-
um Jack orðið.
„John Huston hefur verið
átrúnaðargoð mitt síðan ég var
smágutti, og við höfum þekkst
allvel undanfarin fimmtán ár.
Ég veit ekki hvað þér finnst, en
mér finnst það frábært, hann
var goðsögn í lifanda lífi þegar
ég var í barnaskóla. Ég ber
óhemjumikla virðingu fyrir hon-
um, ég hef lært meira af honum
en nokkrum öðrum listamanni
sem ég hef unnið með.“
„Heiður Prizzis" var frumsýnd
með viðhöfn seint í júní og hlaut
lofsamlega dóma. David Ansen
hjá Newsweek sagði að John
Huston hefði sjaldan verið í
betra formi; Peter Travers hjá
People sagði að hún væri kær-
komin tilbreyting, vönduð mynd
innan um allar ódýru krakka-
myndirnar; Vincent Canby hjá
The New York Times segir að
myndin geri það sama við Guð-
föðurinn sem Shamela eftir
Henry Fielding gerði við Pamela
eftir Samuel Richardson, og
Richard Schickel hjá Time segir
að hlutverk Jacks Nicholson sé
hans djarfasta og áhættumesta
frá upphafi leikferils hans.
HJÓ
Jack Nicholson og Kathleen Turner losa sig við lík.