Morgunblaðið - 27.07.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1985
7
Stjóm Búseta í Reykjavík:
Um þúsund félags-
menn uppfylla skil-
yrði um félagslega
forgangshópa
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn hús-
næóissamvinnufélagsins Búseta f
Reykjavík:
„Vegna sérkennilegra fullyrð-
inga þingmannsins Halldórs
Blöndals í Mbl. í gær, þess efnis að
ekki séu nú þegar fyrir hendi
heimildir f húsnæðislöggjöf til
lánveitinga til húsnæðissam-
vinnufélaga, vill stjórn Búseta í
Reykjavík taka eftirfarandi fram:
Réttindi húsnæðissamvinnufé-
laga til lána eru eftir úrskurð fé-
lagsmálaráðherra frá 8. janúar á
þessu ári algerlega ótvíræð. Niður-
staða þessa ráðuneytisúrskurðar,
sem hefur fullkomið lagagildi, var
þessi:
„Samkvæmt framansögðu telur
ráðuneytið Húsnæðisstofnun ríkis-
ins vera heimilt að veita lán úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna til félaga-
samtaka, og þar á meðal Húsnæðis-
samvinnufélagsins Búseta, svo fremi
að þau hafi það að markmiði að
byggja eða kaupa leiguíbúðir til út-
leigu fyrir námsmenn, aldraða og ör-
yrkja með hóflegum kjörum.“
Þess má geta, að um 1000 fé-
lagsmenn Búsetafélaganna upp-
fylla ofangreind skilyrði laganna
um félagslega forgangshópa. Sam-
kvæmt c-lið 33. gr. laganna er
heimilt að veita lán til félaga-
samtaka sem hafa innan sinna vé-
banda þessa hópa fólks. Á grund-
velli þeirrar íagagreinar felldi
ráðuneytið úrskurð sinn í janúar
sl. Á þessum úrskurði byggist rétt-
ur Búseta sem félagasamtaka til
80% lána úr byggingarsjóði verka-
manna.
Þetta hefur verið staðfest af
formanni Húsnæðismálastjórnar,
Þráni Valdimarssyni, i viðtali við
Morgunblaðið þann 24. janúar sl.
Fyrir síðasta löggjafarþingi
lágu lagafrumvörp er njóta stuðn-
ings % hluta Alþingis, þess efnis
að húsnæðissamvinnufélögum
verði tryggð full lánsréttindi til
viðbótar við þau sem þegar eru
fyrir hendi í lögum. Fastlega má
vænta þess, að þessi vilji Alþingis
verði staðfestur með löggjöf á
næsta Alþingi. Stjórn Búseta
Neytendasamtökin:
Seljið ekki
kælivöru
utan dyra
í sólskini
KARTÖFLUR, sem geymdar eru
tímunum sarnan í glampandi sól-
skini og 20—30 stiga hita, gctur
myndað eiturefnið solanum og
vegna þess hve algengt er að kaup-
menn færi vörur sínar út á gang-
stéttir þegar sólin skín hafa
Neytendasamtökin farið þess á leit
við Hollustuvernd ríkisins og heil-
brigðiseftirlitsnefndir á öllu landinu,
að fylgst verði með sölu á grænmeti
og fleiru á götum úti, að því er segir
í fréttatilkynningu frá samtökunum.
í tilkynningunni segir að Neyt-
endasamtökin telji að mörgu leyti
jákvætt að varningur sé seldur
utandyra á góðviðrisdögum en
„Neytendasamtökin telja það frá-
leitt að vörur þessar séu með-
höndlaðar á þennan hátt og
harma það ef kaupmenn í hugsun-
ar- eða kæruleysi eyðileggi þann
árangur í vöruvöndun sem náðst
hefur eftir mikla baráttu Neyt-
endasamtakanna og vegna
breyttra og jákvæðra viðhorfa
framleiðenda."
væntir þess einnig, að sá meiri-
hlutavilji, sem komið hefur fram á
þingi um réttindaveitingu til hús-
næðissamvinnufélaga, setji svip
sinn á störf þeirrar milliþinga-
nefndar um húsnæðismál er nú
starfar, þrátt fyrir setu Halldórs
Blöndals alþingismanns í nefnd-
inni.“
Árbæjarstífla:
Göngubrúin
lokuð um sinn
GÖNGUBRÚIN yfir Árbæjarstíflu er nú lokuð
vegna viðgerða á stíflunni.
Björn Haraldsson, kerfisstjóri hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, sagði að nú stæðu
yfir lagfæringar á stíflunni og göngubrúin
hefði verið tekin í burtu og aðvörunarskilti
sett upp svo að fólk hætti sér ekki út á hana.
„Verið er að steypa styrktar- og þéttivegg inn-
an í stífluna. Við hófum verkið seinnipartinn
í maí og gerum ráð fyrir að opna göngubrúna
um miðjan september.
Brúin var sett upp á sínum tíma til að auð-
velda fólki að komast á milli Breiðholts og
Árbæjarhverfis. en nú er orðið auðveldara að
komast á milli eftir tilkomu Höfðabakkabrú-
arinnar," sagði Björn að lokum.
Opiö laugardag frá kl. 10-4
Aldrei höfum viö getað boðið eins gott úrval af notuðum MAZDA bílum og núna. Allir
bílarnir eru gaumgæfilega yfirfarnir og þeim fylgir 6 mánaöa ábyrgð frá söludegi.
Langar þig í nýrri bíl í sumar? Komdu þá til okkar með þann gamla og skiptu honum
upp í nýrri MAZDA.
Sýnishorn úr söluskrá:
Gerð Árg. Ekinn Verð
929 Station '84 30.000 540 þús.
626 2000 Hatchb. vökvast. '84 48.000 470 þús.
929 SDX 4 dyra '83 32.000 430 þús.
323 1300 3 dyra '83 20.000 310 þús.
929 SDX 4 dyra vökvast. ’81 48.000 360 þús.
626 1600 4 dyra '82 56.000 270 þús.
Gerð Árg. Ekinn Verð
323 1300 3 dyr sj.sk. '82 39.000 280 þús.
929 HT 4 dyra m.öllu '81 44.000 300 þús.
626 2000 4 dyra '81 46.000 270 þús.
323 1300 5 dyra '81 73.000 220 þús.
626 2000 4 dyra sj.sk. '80 56.000 240 þús.
Bif reiðakau pendur:
Nú er ein mesta ferðahelgi sumarsins framundan. Stuðlið þvi að ánægjulegri ferð
með því að kaupa notaðan MAZDA með 6 mánaða ábyrgð hjá okkur.
6 mánaða ábyrgð
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23, sími 812 99