Morgunblaðið - 27.07.1985, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1965
AP-sfmamynd
Nýir franskir hermannabúningar
Breytingar verða gerðar í einkennisbúningi franskra hermanna, karla jafnt sem kvenna, frá og með árinu 1989.
Búningamir verða í bláum lit og útlit þeirra er eins og myndin ber með sér.
Átakanlegt
þyrlurán
í Brisbane
^ Brisbane, Aatralíu, 26. júlí. AI*.
ÁSTRALSKUR maður sem rændi
þyrlu og skipaði að sér yrði flogið til
Japans var yfirbugaður og handtek-
inn eftir fimm klukkustunda þref
við yfirvöld og hélt maðurinn tveim-
ur börnum sínum í gíslingu, átta ára
syni og fjögurra ára dóttur. Hann
hótaði að sprengja upp bensíngeyma
þyrlunnar ef ekki yrði orðið við
Blikur á lofti í kanadískum stjórnmálum:
Ríkisstjórn Mulroney’s stendur nú
frammi fyrir erfiðum ákvörðunum
BRIAN MIJLRONEY, forsætisráð-
herra Kanada, stendur á tímamót-
um. Tæpu ári eftir að hann vann
stærsta kosningasigur í sögu Kan-
ada fara vinsældir hans þverrandi.
Stjórn Mulroney’s varð fyrir áfalli
þegar afgreiða átti fjárlög í maí.
Halli ríkissjóðs er mikill og mikil-
vægasta atriði fjárlaganna til að
minnka hann var að draga úr ellilíf-
eyrisgreiðslum á þann veg að ellilíf-
eyrir hækkaði þremur prósentum
minna en verðbólga magnaðist.
„Með þessum aðgerðum sparast
margar miljónir dollara," rök-
studdi Michael Wilson, fjármála-
ráðherra, niðurskurðinn. Almenn-
ingur brást ókvæða við, enda hafði
Mulroney lofað í kosningabaráttu
sinni að hrófla ekki við vísitölu-
tryggingu ellilífeyris, og skömmu
síðar lýsti fjármálaráðherra þvi
yfir að fallið yrði frá skerðingu
ellilífeyris.
Einnig hrikti í burðarásum
stjórnarinnar þegar Robert Coat-
es, varnarmálaráðherra, neyddist
til að segja af sér eftir að til hans
sást í vestur-þýskum næturklúbbi.
Um þessar mundir þarf Mulron-
ey að taka tvær mikilvægar
ákvarðanir: Á hann að þekkjast
boð Ronalds Reagan um að taka
þátt í geimvarnarannsóknum og á
hann ganga til samningsviðræðna
við Bandaríkjamenn um frjáls
viðskipti af einhverju tagi milli
rikjanna.
Mulroney samþykkti að senda
þingnefnd um landið til þess að
kanna viðbrögð almennings og fá
álit hans á báðum þessum mála-
flokkum á almennum fundum og
mun nefndin skila skýrslu í sept-
ember.
Mulroney hefur gengið vel að
hlúa að sambandi sínu við Ronald
Reagan og líklegt talið að hann
vilji þóknast starfsbróður sínum
með þátttöku í geimvarnarann-
sóknum. En hann þarf að gefa
gaum að efasemdaröddum, sem
heyrst hafa úr röðum almennings
á ofangreindum fundum, ætli
hann að halda vinsældum sínum.
Mulroney fer einnig með gát í
viðskiptamálum. Ýmsir hagfræð-
ingar og iðjuhöldar halda því fram
að Kanada verði að gera við-
skiptasamning við Bandaríkin til
þess að heltast ekki úr lestinni í
iðnaði. Máli sínu til stuðnings
stærsta fylki Kanada, og fulltrúar
úr fataiðnaði og bjórbruggun eru
á móti slíkum samningum.
Íhaldsflokkur Mulroney’s hlaut
211 þingsæti af 282 í kosningasigr-
inum í september á síðasta ári, 40
fulltrúar frjálslyndra komust á
þing, 30 fulltrúar Nýja sósíalíska
demókrataflokksins og einn óbáð-
ur.
í skoðanakönnunum eftir kosn-
ingarnar kvaðst meirihluti kjós-
enda mundu kjósa íhaldsflokkinn
aftur. En vandræði Mulroney’s
hafa aukist og fylgi hans minnkað.
í nýjustu könnun Gallup-stofnun-
arinnar segir að einungis 44 pró-
sent kjósenda fylgi Mulroney að
málum, fylgi frjálslyndra er 33
prósent og demókrataflokksins 21
prósent.
En íhaldsflokkurinn hefur yfir-
gnæfandi meirihluta á þingi og er
sýnu vinsælli en flokkur frjáls-
lyndra, sem setið hafði við völd í
20 ár þegar Mulroney komst að.
Og nú er að sjá hvort Mulroney
tekst að sigla beitivind milli skers
og báru og koma fleyi sínu ólösk-
uðu í höfn.
kröfu hans. Maöurinn er sagður
vera bandarískur sjóliði, sem hefði
nýlega fengið dæmt forræði barna
sinna eftir langan og erfiðan mála-
rekstur.
Maðurinn tók á leigu þyrlu af
gerðinni Bell 206 síðdegis í gær og
fór í útsýnisflug. Þegar hann kom
og skilaði þyrlunni sagðist hann
vilja fara í aðra flugferð og nú
með börn sín. Þegar þyrlan var
komin á loft dró maðurinn upp
byssu og hótaði flugmanninum.
Hann sagði að sprengja væri í
þyrlunni og krafðist þess að hann
flygi til Japan með sig og börnin.
Þyrluflugmaðurinn útskýrði að
bensínbirgðir vélarinnar myndu
fjarri hrökkva til og tókst flug-
manninum svo að lenda á flugvell-
inum í Brisbane. Næstu fimm
klukkustundirnar neitaði maður-
inn að láta sig, hann hellti flugvél-
arbensíni í kringum vélina og hót-
aði að sprengja hana í loft upp ef
hann fengi ekki flugmann til að
fara með sig til Japans. Börnin
virtust hin rólegustu og tók dreng-
urinn myndir af föður sínum hvar
hann skaut af byssu upp í loftið til
að leggja áherzlu á kröfu sína.
Lögreglan fékk síðan talið mann-
inn á að falla frá fyrirætlan sinni
og tók hann í sína vörzlu. Bris-
bane-flugvelli var lokaður allri
umferð meðan þessu fór fram.
Brian Mulroney
benda þeir á að flest iðnaðarríki
heims eigi óhindraðan aðgang að
stórum neytendamörkuðum.
En frjáls viðskipti hafa ætíð
verið hitamál í Kanada. Tvisvar
hafa ríkisstjórnir í Kanada þurft
að segja af sér fyrir að bollaleggja
slíka samninga. Enda reynir
Mulroney að forðast hugtakið
frjáls verslun og talar fremur um
„aukningu verslunarfrelsis" eða
„aðgang að mörkuðum“.
En einu gildir um nafngiftir:
Verkamannasamtök, stjórn frjáls-
lyndra demókrata í Ontario,
Sovétríkin:
í fangelsi fyrir að
minna á mannréttindi
„SOS kyn-
þáttahatur
U
Lundúnum, 26. júlí. AP.
FJÖRUTtU af þeim 75 Sovétborgur-
um, sem reynt hafa að fá stjórnvöld
til að virða mannréttindaákvæði
Helsinki-sáttmálans, hafa verið
handteknir og ýmist sendir í vinnu-
búðir eða á geðveikrahæli.
Þetta kom fram í ræðu, sem
Young barónessa, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bretlands, flutti í
Lávarðadeild breska þingsins í
gær. Hún kvað fólk þetta búa við
skelfilegar aðstæður í Sovétríkj-
unum.
Fram kom í ræðunni að auk
þeirra fjörutíu, sem sitja inni
fyrir að minna Sovétstjórnina á
fyrirheit þau sem hún gaf með
undirskrift sinni undir Helsinki-
sáttmálann fyrir tíu árum, hefðu
fimmtán farið úr landi.
Brumel. AP.
FLOKKUR fimmtíu manna fer nú
kröfuferð um Evrópu gegn kynþátta-
hatri og er hópurinn staddur I
Belgíu.
Flokkurinn, sem hóf ferð sína í
Frakklandi og er að mestu leyti af
frönskum uppruna, ekur um í
hvítum langferðabil skreyttum
höndum af ýmsu litarafti og kall-
ar sig „SOS — kynþáttafordóm-
ar.“
Leið hópsins liggur frá Belgíu
til Hollands, Vestur-Þýskalands,
Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar.
Margaret Thatcher á fundi Alþjóðasambands lýðræðisflokka:
Sovétstjórnin undirbýr mikla
áróðursherferð á Vesturlöndum
„Beitir yfirvegaðri sölutækni til að skapa sér breytta ímynd“
ERLENT
Washington, 26. júlí. AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði i gær að
Sovétstjórnin væri að undirbúa
mikla áróðursherferð á Vesturlönd-
um fyrir fund leiðtoga Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna í Genf í nóveraber
nk. Thatcher sagði að markmið Sov-
étmanna væri að fá Ronald Reagan,
forseta Bandaríkjanna, til að fallast
á afvopnunartillögur, sem væru
þeim hagstæðar.
Thatcher sagði að hin nýja
kynslóð Kremlverja myndi beita
yfirvegaðri sölutækni til að skapa
sér breytta ímynd í augum Vest-
urlandabúa. Hún sagði, að Sovét-
stjórnin myndi halda því fram, að
geimvarnaráætlun Bandaríkja-
manna væri hið eina sem kæmi í
veg fyrir samkomulag um stór-
fellda afvopnun og frið um langan
aldur. Sovétmenn ætluðu að halda
kjarnorkuvopnayfirburðum sín-
um, en veikja varnir Vesturlanda.
„Eðli kommúnismans hefur ekki
breyst þótt hann sýni nú á sér nýj-
an svip,“ sagði ráðherrann.
Thatcher lét þessi ummæli falla
í ræðu, sem hún hélt á þingi
Alþjóðasambands lýðræðisflokka
í Washington, sem lauk í dag. í
ályktunum þingsins, sem margir
helstu stjórnmálaforingjar hægri
flokka í heiminum sóttu, er m.a.
hvatt til þess að litið verði á
hryðjuverkamenn sem hverja aðra
glæpamenn; að fallið verði frá
verndarstefnu á sviði verslunar og
viðskipta og skorað á stjórnvöld í
Suður-Afríku að hefja viðræður
við alla hópa stjórnarandstæðinga
í því augnamiði að koma á póli-
tísku jafnvægi í landinu.
í ályktun þingsins er því einnig
lýst yfir, að það sé lífsnauðsynlegt
að rannsóknarstarfsemi á Vestur-
löndum standi ekki að baki rann-
sóknum í Sovétríkjunum. Litið er
svo á að með þessum orðum sé
verið að lýsa stuðningi við geim-
varnarrannsóknir Bandaríkja-
manna. Þingfulltrúar hrósuðu
stjórn Jose Napoleons Duarte í E1
Salvador fyrir að koma á lýðræði í
landinu, en fordæmdu stjórnvöld í
Nicaragua fyrir að traðka á mann-
réttindum. Hvöttu þeir vinstri
stjórnina þar til að hefja viðræður
við stjórnarandstæðinga og
endurreisa fjölflokkakerfið í land-
inu.
Margaret Thatcher