Morgunblaðið - 31.08.1985, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
194. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
AP/Símamynd
Blökkumaður sést bér með krepptan hnefann á lofti, á meðan lögreghimaður skýst yfir götuna í Mitchells Plain í
Höfðaborg, en þar geisuðu mikil átök í gær. Unglingar í hverfinu komu víða fyrir brennandi rusli og hjólbörðum, til
að varna lögreglumönnum umferðar um svæðið.
Indland:
Aftur gasleki í
efnaverksmiðju
Borahay, Indlandi. 30. ágósL AP.
EINN maður lést og 149 voru lagðir
inn í sjúkrahús eftir að hafa orðið
fyrir eituráhrifum vegna gasleka í
stórri efnaverksmiðju í úthverfi
Bombay í dag.
Fyrst varð vart við gaslekann
um kl. 9.30 að staðartíma og er
talið að klórgas hafi lekið frá
verksmiðjunni í tvær klukku-
stundir. Þúsundir manna flúðu frá
heimilum sínum þegar fréttist um
lekann, sem varð í verksmiðju
Calico, einu stærsta efnafram-
leiðslufyrirtæki á Indlandi. Lög-
reglan sagði síðdegis aö komist
hefði verið fyrir lekann og taldi
hún ekki ástæðu til að lýsa yfir
hættuástandi á svæðinu. Flestir
þeirra sem lagðir voru inn i
sjúkrahús áttu i öndunarörðug-
leikum og var þeim gefið súrefni.
Hundruð manna sem búa í ná-
grenni verksmiðjunnar kvörtuðu
undan flökurleika og bruna i aug-
um. í hverfinu búa um 300.000
manns og hefur það fengið viður-
nefnið „gasklefinn" vegna þeirra
mörgu efnaverksmiðja sem þar
eru.
Ekki er enn vitað hvað olli lek-
anum, en talið er sennilegt að
leiðsla úr stórum tanki hafi gefið
sig. Þetta var í fjórða skipti sem
leki verður í efnaverksmiðju á
Indlandi síðan í mars og á þeim
tíma hafa 320 manns hlotið alvar-
legt heilsutjón vegna eitrunar.
Nígeriustjóm:
Stendur við
skuldbindingar
fyrri stjórnar
Átök harðna í hverfum
svartra í Höfðaborg
Þrír evrópskir utanríkisráðherrar
komnir til Jóhannesarborgar
JóhaDDesarborj;, 30. kgúsL AP.
ÓEIRÐIR héldu áfram í hverfum
biökkumanna og fólks af blönduð-
um kynþætti í Höfðaborg í dag og að
sögn lögreglunnar hefur 31 látið lífið
í átökunum þar sl. þrjá daga. Þrír
utanríkisráðherrar frá aðildarríkjum
Evrópubandalagsins komu til Suð-
ur-Afríku í dag.
und Tutu, biskup, og sagði hann að
efnahagslegar þvinganir væru
eina friðsamlega vopnið sem hægt
væri að beita gegn stefnu stjórn-
arinnar. Hins vegar sagði leiðtogi
Zulu-ættflokksins, Gatsha Buthel-
ezi, í yfirlýsingu í dag, að slíkar
þvinganir kæmu verr niður á
svörtum en hvítum í landinu og
væru því ekki til góðs.
Ráðgert er að ráðherrarnir eigi
fund með P.W. Botha, forseta, á
morgun. R.F. Botha hefur áður
lýst því yfir að utanríkisráðherr-
arnir þyrftu ekki að láta sjá sig
þar í landi, ef þeir hygðust lesa
yfir stjórninni vegna stefnu henn-
ar, en þeim væri velkomið að
koma í heimsókn til að glöggva sig
á ástandinu.
Seðlabankastjóri S-Afríku hélt
áleiðis frá London til New York í
dag til að ræða við aðila þar um
slæmt efnahagsástand landsins.
Hann vildi ekkert láta uppi um
árangur viðræðanna í London.
Eins og kunnugt er hefur gjald-
miðill S-Afríku fallið mikið í verði
vegna kynþáttaóeirðanna undan-
farið og hafa öll gjaldeyrisvið-
skipti í landinu verið stöðvuð um
stundarsakir.
Lagos, Nígeríu, 30. ágúst. AP.
FORSETI Nígeríu, Ibrahim Bab-
angida, fullvissaði í dag erlenda lán-
ardrottna um að hin nýja herstjórn í
landinu myndi standa við allar
skuldbindingar fyrri stjórnar og á
sama tíma reyna að minnka verð-
bólguna i landinu og bæta lífskjör
þegnanna. *
Vegatálmar sem komið hafði
verið fyrir í kringum Lagos, höf-
uðborgina, þegar Babangida og
menn hans steyptu stjórn Mu-
hammadu Buhari af stóli, voru
fjarlægðir í dag og útgöngubanni
að næturlagi aflétt.
Babangida sagði í ávarpi sínu til
undan flökurleika og sviða í aug-
að hann mundi gripa til harðra
aðgerða sem myndu á stuttum
tíma bæta Iífskjör meirihluta
þegna sinna. Hann fjölyrti ekki
nánar um aðgerðirnar, nema hvað
þær fælu í sér endurmat á viðræð-
um stjórnarinnar við alþjóðlega
gjaldeyrissjóðinn.
Unglingar í hverfum svartra
héldu uppi átökum við lögreglu i
dag og fleygðu ungmennin öllu
lauslegu að löggæslumönnunum,
s.s. múrsteinum og grjóti. Einnig
hindruðu þau umferð um margar
helstu göturnar í hverfunum með
því að kveikja í hjólbörðum og
rusli. Óeirðirnar hófust í blökku-
mannahverfinu Guguletu á mið-
vikudag og hafa þau nú breiðst út
til annarra blökkumannahverfa
og hverfa þeirra sem eru af blönd-
uðum kynstofni. í morgun höfðu
20 látið lífið i átökunum i Höfða-
borg, en síðdegis var talan komin
upp í 31.
Utanríkisráðherrar Lúxem-
borgar, Hollands og Ítalíu komu
til Jóhannesarborgar í dag i
þriggja daga opinbera heimsókn.
Tilgangur farar þeirra er að reyna
að gera stjórn S-Afríku ljóst hve
andvígar ríkisstjórnir aðildarríkja
Evrópubandalagsins eru aðskiln-
aðarstefnunni. Ráðherrarnir
gengu á fund aðstoðarutanríkis-
ráðherra og fjármálaráðherra
S-Afríku í dag og var fundur með
R.F. Botha, utanríkisráðherra
landsins fyrirhugaður síðar i dag.
Einnig hittu ráðherrarnir Desm-
Kosningabaráttan í Noregi:
Mótaði Treholt stefnu Verka-
mannaflokksins í varnarmálum?
Ósló, 30. igúsL Frá Jan Erik Lnuré
ARNE Treholt, sem dæmdur hefur
verið fyrir njósnir í þágu Sovét-
manna, er nú kominn inn í kosn-
ingabaráttuna í Noregi og er það
vegna skjals eða bréfs frá honum,
sem á einhvern hátt hefur rekið á
fjörur eins dagblaðsins. Frammá-
menn í Verkamannaflokknum
saka raunar leyniþjónustuna sjálfa
um að hafa komið bréfinu á fram-
færi til að hafa áhrif á kosningarn-
ar 9. september nk. og víst er, að
þeir hafa nokkrar áhyggjur af því.
Þar kemur nefnilega fram að Tre-
holt átti á sínum tíma einn megin-
þátt í því vinstrastökki, sem Verka-
mannaflokkurinn tók í öryggismál-
unum.
Það var dagblaðið Verdens
Gang sem fyrst skýrði frá skjal-
inu frá Treholt, en þar kemur
frétUriUra Morgunbladsins.
fram, að meðan Treholt var í
sendinefnd Norðmanna hjá
Sameinuðu þjóðunum í New
York hafi hann kippt í spottana
og mótað að mestu stefnu Verka-
mannaflokksins í kjarnorkumál-
um. í bréfi sem hann sendi 20.
apríl árið 1981 til Jens Evensens,
fyrrum hafréttarráðherra, og
annarra, leggur Treholt á ráðin
um hvernig best sé að vekja aftur
upp umræðuna um kjarnorku-
málin, sem hafði hafist haustið
áður með þeirri hugmynd Even-
sens, að rétt væri að taka ekkert
tillit til bandalagsþjóða Norð-
manna í NATO og lýsa einhliða
yfir kjarnorkuvopnalausu svæði
á Norðurlöndum.
Af lestri skjalsins má ljóst
vera að margar af tillögum Tre-
holts hafa verið samþykktar í
Verkamannaflokknum. Á lands-
þingi flokksins var t.d. samþykkt
með naumum meirihluta tillaga
frá honum í kjarnorkumálum,
sem gekk miklu lengra en fyrri
stefna flokksins hafði verið.
Hefur þessi samþykkt valdið
forystumönnum flokksins mikl-
um erfiðleikum og fylgt þeim æ
siðan eins og vofa, sem hrópar,
að ekki sé ekki hægt að treysta
á Verkamannaflokkinn í öryggis-
og varnarmálum.
Einmitt þetta mál, stefnan f
öryggis- og varnarmálum, hefir
verið stærsta tromp Hægri-
flokksins í kosningabaráttunni
og hafa mörg önnur mátt víkja
fyrir því. Það er líka eftirtektar-
vert hve Gro Harlem Brundt-
land, formaður Verkamanna-
flokksins, verður óörugg með sig
þegar hún er spurð um stefnu
flokksins í þessum málum.
Það var blaðamaður á Verdens
Gang, Michael Grundt Spang,
sem komst yfir skjölin frá Tre-
holt, en þau voru í skjalasafninu,
sem lögreglan lagði hald á eftir
að Treholt var handtekinn.
Spang hefur góð sambönd við
leyniþjónustuna og þykir mönn-
um ekki ólíklegt, að einhver þar
hafi látið þau leka til hans.
Samþykkt Verkamannaflokks-
ins hafði ekki þær afleiðingar,
sem Treholt vildi, því að Verka-
mannaflokkurinn tapaði í kosn-
ingunum haustið 1981 og ríkis-
stjórn borgaraflokkanna tók við.