Morgunblaðið - 31.08.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.08.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985 NATO-æfingar í Norðursjó Kaupmannahofn, 30. áffúfrt. AP. EFNT verður til flug- og flotaaTinga á vegum Atlantshafsbandalagsins í upphafi september á Norðursjó, dönsku sundunum og Eystrasalti. Talsmaður Atlantshafsbanda- lagsins í Danmörku sagði í dag að fyrst yrði æft að verja kaup- skipalestir í Norðursjó. Síðari hluti æfinganna, sem standa yfir dagana 2. til 18. september, mið- aði hins vegar að því að viðhalda yfirráðum yfir dönsku sundun- um og vesturhluta Eystrasalts. Alls taka um 45 þúsund manns frá Danmörku, Þýskalandi, Hol- landi og Bandaríkjunum þátt í æfingunum. Kína: Fjöldi ferst í Peking, 29. ágúst AP. FJÖGUR hundruð manns hafa lát- ið lífíð og sla.sa.st í flóðum í Liaon- inghéraði í norðausturhluta Kína, og eru nú um 1,5 milljónir her- manna og borgara að björgunar- störfum þar. Þetta eru mestu flóð í Kína í marga áratugi. Miklar rigningar hafa verið í héraðinu síðustu vikur, og auk þess hefur fellibylur geisað þar. Að sögn hins opinbera málgagns stjórnarinnar urðu 430 þúsund manns innlyksa í Liaoning vegna flóðanna, og hafa a.m.k. 180 farist og 220 slasast. Þá hafa stíflur brostið með þeim afleiðingum að meira en 1,3 manns flóðum milljónir hektarar lands hafa eyðilagst. Ekki hefur tjónið af völdum flóðanna verið metið en að sögn kínversks embættismanns er hér um geysilegar fjárhæðir að ræða. Mótorhjól- ið 100 ára Stuttgart, V-Þýskalaiidi, 29. ágúst. AP. í DAG eru 100 ár liðin frá því að mótorhjólið var fyrst tekið í notk- un og gekk það þá undir nafninu „hjólhestabiíl" og var knúið mót- or með einungis hálfu hestafli. Þjóðverjinn Gottlieb Daimler fann upp nýstárlega, smágerða bensínvél árið 1883 og tveimur árum síðar kom hann vélinni fyrir á hjóli með tréhjólum og leiðursæti. Hann hagræddi síð- an vélinni, öðrum útbúnaði hjólsins og 29. ágúst 1885 var „hjólhestabíllinn" kynntur fyrir heiminum. í fyrstu var mótorinn aðeins hálft hestafl og snúningshrað- inn 600 snúningar á mínútu og var hámarkshraði hjólsins á milli 10 og 15 km á klukku- stund. Gottlieb Daimler hélt áfram á sömu braut og síðar stofnaði hann verksmiðjurnar sem nú framleiða Mercedes Benz-bílana. Fyrsta mótorhjólið er til sýn- is almenningi í Daimler-Benz- safninu í Stuttgart í V-Þýska- landi. Ap-mynd Risaávísun Joseph Moore, tölvuráðgjafi frá New York, heldur hér á risastórri ávísun með fyrstu útborgun af happdrættisvinning sem hann hlaut í „Lotto“ happdrættinu í New York-ríki í síðustu viku. Heildarverðmæti vinningsins var 41 milljón Bandaríkjadala, en hann kom upp á þrjá miða og deilist því í þrennt. Hina miðana áttu Debbied Turcotte frá Albany og hópur verkamanna í verksmiðju í Mount Vernon. Stjórnarandstaðan í Grikklandi: Mitsotakis endur- kjörinn formaður Aþenu, 29. á(wL AP. FYRRVERANDI utanríkisráðherra Grikklands, Konstantín Mitsotakis, var endurkjörinn formaður Nýja demókrataflokksins án mótatkvæða, en hann var einn í framboði. Þrátt fyrir að Mitsotakis hafi hlotið embættið án mikillar fyrir- hafnar, var mikið um að fulltrúar miðstjórnar flokksins skiluðu auð- um seðlum í atkvæðagreiðslunni og telja fréttaskýrendur það benda til þess að vinsældir hins 67 ára gamla leiðtoga fari þverrandi. Hann hlaut 82 af 120 atkvæðum, en 37 skiluðu auðu og einn seðill var ógildur. Nýi demókrataflokk- urinn er íhaldsflokkur sem nú er í stjórnarandstöðu. Helsti keppinautur Mitsotakis um formannssætið var Konstant- ín Stephanopoulos en hann lét ekki sjá sig á kjördag og telja menn líklegt að hann stofni nýjan flokk og hrífi með sér nokkuð af fylgi Nýja demókrataflokksins. Ef svo færi, lamast stjórnarand- staðan og yrði það til að auðvelda Andreas Papandreou, forsætis- ráðherra, að fá sínu framgengt. Nicohíu, Kýpur, 30. ágúst AP. HIN vinstrisinnaða andspyrnuhreyf- ing í íran, Mujahedeen, sendi í dag út áskorun um „að lífi 140.000 póli- tískra fanga í íran verði bjargað". í tilkynningu hreyfíngarinnar sagði, að a.m.k. 5.000 manns hefðu verið teknir af lífí í landinu síðastliðna tólf mánuði. Þrátt fyrir ofsóknir yfirvalda Bandaríkin: Hundruð flugvéla í hreyfla- skoðun Washington, 28. ágúst. AP. BANDARÍSKA flugmálastofnunin hefur fyrirskipað að hundruð fíug- véla, sem eru búnar Pratt & Whit- ney-hreyfíum, skuli skoðaðar sér- staklega í framhaldi af flugslysinu í Manchester sl. fímmtudag. Ástæðan er sú að sprungur hafa fundist í hreyflum sex Boeing 737-þota, en flugvélin, sem fórst í Manchester, var með sams konar hreyfíl. í gær lögðu bresk flugfélög þot- um sem búnar eru Pratt & Whit- ney hreyflum, þangað til ýtarleg skoðun hefur verið gerð á þeim. Ekki er þó gert ráð fyrir að ákvörðun bandarísku flugmála- stofnunarinnar hafi veruleg áhrif á flugáætlanir flugfélaga. E1 Salvador: Þrír skærulið- ar handteknir Su Salvmdor. 29. ágnst. AP. ÞRÍR vinstrisinnaðir skæruliðar, sem grunaðir eru um að hafa átt aðild að morðura á bandarískum sjó- liðum og fleira fólki á veitingahúsi í San Salvador fyrr í sumar, hafa ver- ið handteknir, að sögn Jose Napo- leon Duarte forseta. Á þriðjudag las Duarte frétta- mönnum bréf, sem hann hafði sent Ronald Reagan Bandaríkja- forseta til að tilkynna honum handtökurnar. Duarte sagði, að vitað væri, hverjir fleiri en hinir handteknu hefðu áttu hlut að morðárásinni 19. júní, og væri þeirra nú leitað. í árásinni voru 13 manns skotn- ir til bana á tveimur útiveitinga- stöðum. jókst styrkur hreyfingarinnar að miklum mun á árinu, sagði í til- kynningunni, sem gefin var út í aðalstöðvum Mujahedeen í París. Frá 1. september í fyrra hafa liðsmenn hreyfingarinnar fellt a.m.k. 1.500 byltingarverði Khom- eini-stjórnarinnar í yfir 320 árás- um, sagði í tilkynningunni. Mujahedeen-samtökin í íran: Bjargið lífi 14.000 fanga Það eru betri kaup í nýjum ódýrum LADALUX en í notuðum dýrum bíl af annarri gerð. Hér eru sjö punktar, sem styðja það: 1. Verðið á LADA LUX er aðeins 284 þúsund krónur. Greiðsluskilmálar eru hagstæðir. 2. Ársábyrgð er á öllum hlutum LADA LLIX bifreiðarinnar. 3. Sex ára ryðvarnarábyrgð er innifalin í verð- inu, sé öllum skilmáfum ryðvarnar framfylgt af hálfu eiganda. 4. Ábyrgðarskoðun fer fram á LADA LUX, kaupendum að kostnaðarlausu eftir 2000 og 5000 km akstur. 5. Varahlutaþjónusta við LADA eigendur er af opinberum aðilum talin ein su besta hér- lendis. Mikið úrval alls konar aukaihluta fáanlegt á hagstæðu verði. 6. LADA LUX er afhentur kaupendum með sólarhrings fyrirvara. 7. Eldri gerðir LADA bifreiða eru teknar á sanngjórnu verði sem greiðsla upp í verð nýja bílsins. Verðskrá 21. ágúst 1985 LADA 209.000.- LADA 1300 station 254.600.- LADA 1500 station 269.000.- LADA station 1500 5 gíra 288.800.- LADA Safir 240.000,- LADA Sport frá 362.000.- iCr BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF. 11 On'If*ntmimi *■monn i tt»r + m c . aaaaa c cái impn n. o % noc SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.