Morgunblaðið - 31.08.1985, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.08.1985, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985 MITSUBISHI PAJERO Fjögurra farþega jeppi með þrennum dyrum, óskiptri afturhurð. Lengd 3,93 metrar, breidd 1,68 m hæð 1,85 m lágmarksveg- hæð 21 sm, eigin þungi 1475 kg hlassþungi 615 kg. Vél er fjögurra strokka rað- hreyfill með yfirliggjandi kambás og titringsdeyfum, annaðhvort með túrbó-dísli eða knúinn bensíni. Slag- rými bensínvélarinnar er 2555 sm3 en túrbódísils 2346 sm3. Dísillinn skilar 84 DIN hestöflum við 4200 snún- inga á mínútu, en bensín- hreyfillinn 103 við 4500 snúninga. Þvermál beygju- hrings er 10.4 metrar. Að framan er sjálfstæð sneril- fjöðrun, en að aftan eru blaðfjaðrir á heilum aftur- ás. Aflhemlar eru að fram- an diskar með loftkælingu en skálar að aftan. Pajero 3ra dyra kostar með bensínvél og vökva- stýri frá ca. kr. 760.000, en með túrbódísli og vökva- stýri ca. kr. 835.000. Umboð- ið fyrir Mitsubishi Pajero jeppana hefur Hekla hf., Laugavegi 170-12, Reykja- vík, sími (91)-21240. þessu í Pajerónum, og er fjöðrun- inni eflaust þar fyrir að þakka. Ef hratt er ekið í beygjur hallast bíllinn nokkuð en þó ekki svo að bagaiegt sé. Rásfastur er hann í besta lagi ef vel er gefið í út úr beygjum. Ekki hafði ég tækifæri til að aka bílnum i torfærum, en fjöðr- unin kemur sér vel á malarvegum og heggur bíllinn hvorki né hopp- ar ef skynsamlega er ekið. Að lokum er vert að geta þess, að miðstöðin er bæði hraðvirk og öflug. Það er kostur þegar vetur fer í hönd. í HNOTSKURN: Mitsubishi Pajero er mjög lipur jeppi og þægilegur í akstri. Fjöðrunin er sú besta sem ég hef kynnst í jeppa af þessari stærð. Dísilvélin með forþjöppu er hljóðlát og vinnslan er prýðileg. Bíllinn er vel búinn aukahlutum, smekk- lega hannaður, og frágangur er góður. fc dekkið er hengt utan á heila afturhurðina. Með því að leggja aftursætið fram má auka hleðslurýmið til muna. Mælaborðið er með stórum hraða- og snúningshraðamælum svo og mörgum gaumljósum, og nauðsynlegustu rofar eru á stýr- isstönginni þannig að ökumaður getur seilst til þeirra án þess að taka hönd af stýri sem er æski- legt nú þegar ökulagið hans Bjössa á mjólkurbílnum er fallið úr tísku. Ekki fer milli mála þegar vélin er ræst að dísill er undir vélarhlífinni. Ýmsum þyk- ir naglahljóðið í kaldri dísilvél hvimleitt, en það verður að segj- ast eins og er að þegar maður hefur ekið bílnum í nokkurn tíma gleymist að hann er með dísil - svo hljóðlátur er hann og vel einangraður. Vélin, sem skilar 84 DIN hestöflum við 2100 snún- inga á mínútu er einhver sú skemmtilegasta sem ég hef kynnst. Hún er með forþjöppu, en Mitsubishi hefur langa reynslu í framleiðslu þeirra, og gerir hún það að verkum að bíln- um er aldrei afls vant, ef þess er gætt að skipta nákvæmri og lipurri gírskiptingunni rétt. For- þjappan kemur inn á lágum snúningshraða jafnvel án þess að ökumaður verði hennar var, og tryggir vélinni strax nægilegt snúningsvægi. Sumar forþjöppur virka þannig að þær koma inn með miklum látum við háan snúningshraða, en þetta er tví- mælalaust fágaðasta lausnin sem ég hef komist f kast við. Þá spillir ekki að vökvastýrið er sérstaklega þægilegt, hvorki of létt né þungt og svörunin er bæði skjót og góð. Eitt mesta ánægjuefnið er þó hve vel bíllinn fjaðrar. Að framan er hann bú- inn sjálfstæðri snerilfjöðrun með tveimur þverspyrnum við hvort hjól svo og jafnvægisstöng. Aft- urásinn er heill með blaðfjöðrun og höggdeyfum sem hafa misvís- andi stöðu. Yfirleitt taka menn það með í reikninginn þegar þeir aka í jeppa að þurfa að hossast talsvert, jafnvel svo að óþægilegt verður. Þeir þurfa ekki að hafa áhyggjur af því í Pajero. Jeppinn er lungamjúkur og því afar þægilegur í akstri. Hjólhafið er lítið í stuttu jeppunum og því eiga þeir það til að vera með snöggar hreyfingar sem geta komið ökumanni á óvart og jafn- vel komið óvönum manni úr jafn- vægi. Furðu lítið finnst fyrir Pajero: Þægileg- ur, lipur, snar Bílar Guðbrandur Gislason Mitsubishi-verksmiðjurnar kynntu fyrst Pajero-jeppann sinn á bílasýningunni í Tókýó 1979, en hófu sölu á honum í júlí 1982. f mars ári síðar kom jepp- inn á markað í Evrópu. Framleið- endur settu sér það markmið að framleiða bifreið sem væri ásjá- leg jafnt að utan sem innan, dygði vel utan vega og byði upp á þægindi og aksturseiginleika sem ekki væru síðri en gerðist með fólksbíla. Svo notuð séu orð framleiðenda sjálfra átti það fyrir þessum jeppa að liggja að verða „besta alhliða frístunda— farartækið." Svo mörg voru þau orð. Og víst er það, að Pajero— jeppinn hefur getið sér gott orð víða um heim sem þægilegur bíll og skemmtilegt leikfang. Hann hefur sýnt getu sína með því að vinna fjölda kappakstra bifreiða með aldrifi, nú síðast snemma árs þegar hann vann maraþon- keppnina milli Parísar og Dakar í Senegal þriðja árið í röð, en það rall stendur yfir í þrjár vikur og eru eknir fjórtán þúsund kíló- metrar yfir eyðimerkur, gegnum frumskóga og um aðrar vegleys- ur á leiðinni. En auðvitað er Pajero annað og meira en leik- fang. Hann er líka vinnutæki, eins og fjölmargir eigendur hans hér á landi geta vitnað um. Paj- ero-inn hefur orðið vinsæll meðal bænda á Bretlandseyjum síðustu árin, og er þó ærin samkeppni fyrir á heimamarkaði Land- og Range Roveranna. í skoðana- könnun sem gerð var meðal bænda þarlendis í fyrra fundu þeir bílnum það helst til foráttu, að hann væri svo vel klæddur að innan, að þeir veigruðu sér við að hlaða hann ýmsum þeim óhreinu tækjum sem landbúnaði fylgja, hvað þá að þeir tímdu að skella í hann lömbum og nýfædd- um kálfum. Mitsubishi framleiðir nú tvær lengdir af Pajero, þann lengri, sem kallaður er lúxúsjeppi, enda búinn flestum þeim aukahlutum sem maður getur látið sér detta í hug, og þann styttri sem ég reynsluók, en sá var með túrbó- dísilhreyfli með 2346 sm3 slag- rými. Allir japönsku jepparnir sem fluttir eru til landsins eru mjög vel búnir af aukahlutum, og er Pajeróinn þar engin undan- tekning. Fyrir utan þann búnað sem kaupendur eiga yfirleitt að .venjast þegar þeir fá sér nýja bíla er { Pajerónum vökvastýri, bílstjórastóll með fjöðrun, hitan- leg framsæti, hituð afturrúða með þurrku og þvottasprautu, litaðar rúður, aukamiðstöð undir aftursæti, og útvarp og segul- bandstæki (hátalararnir aftur í bílnum eru góðir, en blikkdósa- hljóð í þeim fremri). Pajero er snotur jeppi að sjá og þótt hann sé ekki nema tæpir fjórir metrar að lengd samsvarar hann sér vel enda hallar aftur- hluta hans aðeins inn á við svo að ekki vaknar með manni sú hugsun að hann sé í raun og veru lengri jeppi sem hafi verið stífð- ur af aftan. Að innan er hann teppalagður í hólf og gólf og tauklæði á sætum þar sem snertiflöturinn er hvað mestur. Sætin eru frekar stíf, en eflaust þægileg þegar til lengdar lætur. Sætisbökin frammí henta vel meðalvöxnu fólki, en heldur eru þau bjó fyrir þá sem gildari eru. Aftursætið er einungis ætlað tveimur enda eru armpúðar beggja vegna sem um leið eru handhægar hirzlur undir smá- muni. Farangursrými á jeppum af þessari stærð er aldrei ýkja- mikið, en i Pajero er það síst lakara en í öðrum jafningjum hans og jafnvel betra því vara- Ur fundargerðum Cannonfélagsins Kvikmyndlr Ámi Þórarinsson Austurbæjarbíó: Breakdans 2 — Breakdance 2 (Electric Boogaloo) Bandarísk. Árgerð 1984. Handrit: Jan Ventura, Julia Reihert. Leik- stjóri: Sam Firstenberg. Aðalhlut- verk: Lucinda Dickey, Adolfo „Shabbadoo" Quinones, Michael „Boogaloo Shrimp" Chambers. Stjórnarfundur haldinn í aðal- stöðvum Cannon-kvikmyndaveld- isins. Viðstaddir: Yoram Globus, Menahem Golan. — Heyrðu, Menahem. Ég sé hér að samkvæmt bókhaldinu eigum við nokkra þúsundkalla afgangs úr þessari hasarmynd þarna ... hvað heitir hún aftur ... Big Shot IX ... og hér sé ég að við erum með heilt tökugengi verkefnalaust í nokkra daga. Mér dettur í hug ... eigum við ekki að snara fram Breakdance 2? — Bíddu nú við Yoram, Break- dance? Er það þessi gangstéttar- dans, þar sem krakkarnir eru eins og með krampaflog? — Já, stemmir, Menahem, alveg eins og rafstraumur í mannsmynd. Við gerðum í fyrra Breakdance I fyrir skíðogíngentíng og mokuðum inn seðlum. — En er ekki breakdance að fara úr tísku Yoram? — Hvaða máli skiptir það, Menahem. Það eru alltaf einhverj- ir krakkaasnar sem ekkert fylgjast með. Við gerum þetta bara fyrir skíðogíngentíng? — Bíddu nú við Yoram, skíðog- íngentíng, — er það ekki danska? — Hvaða máli skiptir það, Menahem, ef við græðum á því? Ég hitti ungan mann hérna útí sjoppu áðan, mig minnir hann heiti Sam Firstenberg, einkar geðugur piltur og vel greiddur. Hann sagðist hafa mikinn áhuga á bíómyndum og fannst Breakdance I vera besta mynd sem hann hafði séð. Ég skrepp bara út og læt hann leik- stýra. — En kann hann eitthvað að leikstýrn, Yoram? I' — Hvaða máli skiptir það, Menahem? Einhvern tíma verður allt Fyrst-enberg. Haha. Snotur orðaleikur hjá mér. Setjum hann i næsta handrit. — En hvað um handrit að þess- ari breakdance-mynd, Yoram? Er hægt að búa til einhverja sögu kringum svona dans? — Hvaða máli skiptir saga, Menahem? Það er glás af krökkum hérna úti á horni sem eru tilbúnir að leika í svona mynd fyrir skíðog- íngentíng. Ég er með þráöinn alveg á hreinu: Við höfum glás af svona krökkum. Þau dansa breakdance daginn út og inn í félagsmiðstöð- inni sinni. Svo höfum við nokkra miðaldra leikara af atvinnuleysis- skránni í Holliwood. Þeir leika vonda kapítalista sem ætla að ryðja félagsmiðstöðinni burt og byggja verslunarmiðstöð í staðinn. Þarna erum við strax komnir með þjóðfélagslegt ívaf. Svo höfum við tvo af þessum krökkum óskaplega skotin hvort í öðru, þótt annað sé sonur götusópara en hitt dóttir milla. Þarna höfum við tilfinn- ingadrama í svona minni stíl fyrir krakkana. Við látum lemja svona handrit saman á nó tæm. — En hefur þessi saga ekki verið filmuð áður, Yoram? — Hvaða máli skiptir það, Menahem? Það eru alltaf að fæð- ast nýir og nýir krakkar sem koma svo í bíóin til okkar. — En verður svona mynd ekki bara vatn á myllu þeirra sem segja að við gerum meira af vondum biómyndum en nokkrir framleið- endur í kvikmyndasögunni, Yor- am? — Give me a break, Menahem.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.