Morgunblaðið - 31.08.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.08.1985, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985 fclk í fréttum HJÓNIN HALLDÓR OG SIGRÚN, MIÐHÚSUM „Blessuð kallaðu mig ekki listamann“ Halldór og Sigrún, Miðhúsum Við bæjardyrnar á Egilsstaða- kauptúni búa þau hjónin Sig- rún Einarsdóttir ættuð úr Loð- mundarfirði og Halldór Sigurðs- son, sem á rætur að rekja vestur á Snæfjallaströnd. Býlið þeirra heitir Miðhús, fjárbýli á fögrum stað, umvafið björk og ösp og fleiri trjátegundum, sem húsráðendur hafa plantað og hlúð að. Þó er ekki þessi staður ýmsum kunnur vítt um land aðeins sökum búskapar- hátta og umhverfisfegurðar, þó hvorttveggja sé með ágætum, heldur fyrir fágætlega góða gripi, sem þaðan hafa borist frá heimil- inu. Ef vanda skal til gjafa fyrir háa sem lága þá er gjarnan leitað til Halldórs í Miðhúsum. Kristján heitinn Eldjárn fékk úr höndum hans eftirmynd Valþjófs- staðahurðar og núverandi forseta var færður kistill þegar hún var þar á ferð fyrir skömmu, svo dæmi séu tekin. Smíðisgripir Halldórs eru orðnir óteljandi, smáir sem stórir. Reyndar er Hlynur sonur þeirra hjóna, búinn að nema handbragðið og eru feðgarnir bún- ir að gefa fyrirtæki sínu nafn: Listmuna- og minjagripagerðin Eik. Halldór var kennari um fjölda ára við Egilsstaðaskóla, síð- an starfsmaður hjá Fasteignamati ríkisins, en er nú hættur slíkum föstum störfum og meining þeirra feðga að snúa sér alfarið að trjáskurðinum. En hvar lærði Halldór þessa kúnst? „Ég hefi hvergi íært þetta. Hinsvegar er nokkur handlagni í ættinni. Móðir mín til að mynda átti fimmtán börn og saumaði sjálf á hópinn sinn allan og þótti svo liðtæk við slíkt að leitað var til hennar víða að um saumaskap. Já, líklega hefur hún ekki þurft að auglýsa eftir verkefnum á sinni tíð. Ekki frekar en sonur hennar. Orðsporið nægir til þess að hafa nóg að gera. Fólk hringir og pant- ar kistla og skip, lampa og skildi, skímarfonta og prédikunarstóla svo eitthvað sé nefnt. Sem höndin hög laðar fram og myndsker í ýmsum tilbrigðum, gjarnan rúna- letri skreytt og allt unnið úr þeim trjám, sem úr íslenskum jarðvegi eru sprottin. En hvenær hefur Halldór bóndi og löngum einnig opinber embættismaður, haft tíma til að sinna útskurðinum? Hann gefur lítið út á slíka spurn- ingu, en getur þess að nú sem standi sé hann aðallega að fást við ólaunuð störf af ýmsu tagi, sem enginn vilji gera en einhver verði þó að vinna. Rýmið í „Fólkinu" gefur ekki tilefni til að fara ítar- lega út í þessi hugðarefni Ha- lldórs, en svo sem tíðum gerist með glögga menn og áhugasama hefur honum verið treyst fyrir mörgu nytjamáli í almannaþágu. Minjasafn Austurlands er honum hugleikið og þar á hann ótaldar stundir við uppbyggingu og grunnlagningu að menningar- miðstöð, sem rísa skal á Egilsstöð- um og er reyndar verkið hafið. Það skal verða lifandi vettvangur er hýsi forna muni og dýran arf, en einnig sýningar samtímaverka. Áhuginn leynir sér ekki þegar Halldór ræðir um þetta „barn“ Það má með sanni segja að Halldór aé meistari þegar smiðsgripir eru annarsvegar. Þetta er kistill sem Halldór smíðaði og gaf konu sinni ekki alls fyrir löngu. Frúin sýndi okkur fyrir þrábeiðni failega hluti sem hún segist hafa byrjað að fást við úr afsögum frá alvörusmiðunum. ÞÓRA STEFFENSEN r I sól og hebresku í Jerúsalem r Ifréttabréfi hebreska háskólans í Jerúsalem er viðtal við íslenska stúlku, Þóru Steffensen, háskólanema, sem hefur verið á sumar- námskeiði i hebresku við skólann. Þóra lætur vel af landi og þjóð og getur þess að notalegt sé til þess að hugsa að sólin muni ævinlega skína að morgni. Þóra, sem er dóttir Björns og Agnesar Steffensen, segist vel geta hugsað sér að flytja til ísrael svo vel líki sér við fólkið og landið og langt umfram lönd í Evrópu, sem hún hefur kynnst. En áður en hún íhugar í alvöru að flytjast til landsins ætlar hún að læra hebreskuna betur og ljúka læknanáminu á Fróni. Þóra Steffensen sitt. En hann kemur víðar við. Hann er formaður Slysavarna- deildarinnar Gró á Héraði og má segja að félagið hafi vaknað til nýs lífs með komu Halldórs í formannssætið árið 1979. Þá er ógetið skógræktarstarfa Halldórs og margs annars, sem hann leggur gjörva hönd að, en sem stendur er hann einn þeirra sem kvaddur er til þess að huga að vatnasvæði Fljótsdalshéraðs að fá megi frek- ari nytjar af silungsveiðinni. Sem við sporðrenndum góðgerð- unum sem Sigrún hefur freistað okkar með, þá kemur í ljós að feðgarnir eru ekki einir um smíðar á bænum. Og þó að Sigrún sé hógvær og skapi næst að neita, þá sýnir hún okkur fyrir þrábeiðni fallega hluti, sem hún segist hafa byrjað að fást við úr afsögum frá alvörusmiðunum. Sannast að segja eru þetta hinir fegurstu gripir, bakkar, bretti, spaðar og sitthvað fleira, sem hún hefur mótað og suma brennt í mynstur, enda segist hún nota sína aðferð og ætli sér ekki að keppa við mann sinn í útskurði. Það er áliðið þegar blaðamaður kveður þessi elskulegu hjón. Það er yfir þeim fágun og eitthvað vandað eins og því sem þau búa til. Á hlaðinu er djúp kyrrð í kvöld- rökkrinu, aðeins árniðurinn og heimalningarnir bera hljóma inn í stilluna. Síðustu orðin sem Hall- dór segir þegar við kveðjum og þökkum fyrir okkur eru: „Blessuð kallaðu mig ekki listamann. í besta falli hagleiksmann." Og þó að mér sé á annan veg innan- brjósts kem ég orðum hans til skila. Dýrt hárið hans George Michael George Michael í hljómsveit- inni Wham! hefur löngum þótt hárprúður og dýrt virðist það vera að eignast lokk úr hári hans. Þegar þessi poppari hefur skundað til rakarans til að láta snyrta hárið streyma aðdáendurn- ir að dyrunum og bjóða hársker- anum allt upp í átta þúsundir fyrir lokkinn. Hingað til hefur rakarinn neitað að selja, hver svo sem ástæðan er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.