Morgunblaðið - 31.08.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
19
MorgunbladiÖ/Emilía
Morgunblaöið/Þorkell
Elín G. Ólafsdóttir, deildarstjóri, í ræóustóli, en hún hélt erindi undir yfirskriftinni „Frjó hugsun — skapandi
skóIastarT*.
Gerð leikbrúða var kennd á einu námskeiðinu og eins og sjá má skemmtu börnin sér vel.
Rebecca De Mornay sem popp-
stelpan - lét kylfu ráða kasti...
framleiðandanum Ray Stark.
Svar Simons við pöntuninni er
kvikmyndin The Slugger’s Wife.
Og því miður, - það er engu líkara
en hann hafi skrifað þetta hand-
rit með öðrum eyrnasneplinum,
svo furðulega slök er útkoman.
Beisbolstrákur hittir popp-
stelpu. Beisbolstrákur verður
yfir sig skotinn í poppstelpu.
Poppstelpa verður smám saman
skotin í beisbolstrák. Beisbol-
strákur og poppstelpa gifta sig
Beisbolstrákur og poppstelpa lifa
saman í lukku um hríð. Popp-
stelpa vill verða poppstelpa
áfram en beisbolstrákur vill hafa
hana fyrir sig. Beisbolstrákur og
poppstelpa skilja, og hafa sitt
beisbol og sitt popp, hvort fyrir
sig.
Ef menn halda að eitthvað
fleira hljóti að hanga á spýtunni,
þá er það rangt. Þessa fátæklegu
sögu segir Simon með enn fátæk-
legri samtölum, persónum og
atburðum. Allt er fyrirfram bók-
að. Allt eftir hráu forriti. Frum-
legasta hugmyndin í handritinu
er þó að líkja ástarleikjum pars-
ins við hin ýmsu tilbrigði beis-
bols. Á hádramatískum augna-
blikum hefur Símon svona texta
til að leggja í munn aðalpersón-
unum:
- En ég hélt við elskuðum hvort
annað;
-Og ég elska þig líka. En þessi
ást krefst þess að ég hætti að
vera til sem einstaklingur.
Þessi orðaskipti fara fram á
veitingahúsi. Undir þeim situr
leikstjórinn, Hal Ashby, sem
statisti að snæðingi. Hann veit
greinilega ekki sitt rjúkandi ráð
og þótt hann hafi gert nokkrar
þokkalegar myndir um ævina,
eins og Coming Home, og eina
stórgóða, Being There, getur
hann ekki gert annað úr stein-
geldu handriti en steingelda
mynd. Það er annar reyndur leik-
stjóri sem á eina framlagið af
viti í The Slugger’s Wife, - Mart-
in Ritt sem leikur gamla beisbol-
þjálfarann eins og engill. Ritt
hlýtur að hafa prísað sig sælann
að hafa ekki þurft að leikstýra
þessu þunnildi.
l—löfóar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
hann kominn
^RAKOKKURINN
FRÁ PEKING í KÍNA
Sun Hui mun matreiða fyrir ykkur öll kvöld
vikunnar nema mánudagskvöld frá kl.
17.00—22.00.
Einnig er alltaf til staöar hinn góði matseðill
Ning de Jesus.
Veislurnar
okkar
eru orönar frægar um allan bæ. Litlar, stórar
og góðar veislur með austurlenskum mat og
skreytingum.
Mcmdörin
Nýbýlavegi 20
Sími 46212
GKSÍfsiZJ
Siöumúla32 Simi 38000