Morgunblaðið - 31.08.1985, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
23
Kosningabaráttan í Svíþjóð:
Landbúnaður og umhverf-
isvernd í brennidepli
Frá Pétri Péturssyni, fréturiur* MorgunblaAsiiu í NvíþjiA.
FRÁ því snemma í vor hafa ssnsk-
ir bsndur verið í baríttuhug.
Stefna ríkisstjórnar jafnaðar-
manna í landbúnaðarmálum er
þeim sérstakur þyrnir í augum.
Þeir mótmsla sífellt flóknara
skrifstofuveldi í landbúnaðinum,
auknum sköttum og ýmsum um-
hverfisverndarkröfum. Bsndur
hafa fjölmennt í mótmslagöngur
og ýmsar aðrar aðgerðir, Ld. stöðv-
að umferð með því að leggja drátt-
arvélum sínum á hraðbrautum.
Meðfram vegum getur að líta
stór auglýsingaspjöld frá sam-
tökum bænda þar sem spurt er
hvort virkilega eigi að leggja
sveitirnar í eyði, hvort sveitasæl-
an sé úr sögunni og þar fram
eftir götunum. Bændur halda því
fram að það borgi sig vart lengur
að vera bóndi. 1 sumum greinum
fá þeir vart fyrir framleiðslu-
kostnaði. Hér á Skáni kostar t.d.
eitt kíló af gulrótum 570 kr.
sænskar út úr búð, en bóndinn
fær ekki nema 17 aura, sem er
helmingi minna en sá aðili fær
sem flokkar og pakkar gulrótun-
um. Einn poki af þurrsteiktum
kartöfluflögum kostar 13 krónur
en bóndinn fær af því 16 aura.
Landbúnaðarafurðir eru alltaf
að hækka. Af verðhækkunum
síðasta árs fengu bændur sjálfir
ekki nema 18% í sinn hlut, en
ríkið sjálft tók 33% í söluskatt
og ýmis önnur gjöld.
Bændum fækkar en
framleiðslan eykst
Sænskur landbúnaður er mjög
tæknivæddur. Kjöt og egg eru
t.d. framleidd i eins konar „dýra-
verksmiðjum" þar sem dýrin
hafast við i þröngum búrum og
er þeim jafnvel gefin ýmis efni
sem fá þau til að vaxa örar á sem
minnstu fóðri, með sem minnstri
fyrirhöfn. Þrátt fyrir að bændum
fækkar stöðugt eykst framleiðsl-
an. 1965 voru í landinu 204 þús.
bændur, sem áttu yfir að ráða
hektara akurlendi eða meira.
1983 voru þeir 114 þúsund. 1965
voru 145 þús. kúabændur í
landinu, en 1983 aðeins 37 þús.
Þessir bændur sem margir hverj-
ir stunda aðra atvinnu auk bú-
starfanna, framleiða miklu meir
en það sem eftirspurn innan-
lands nemur, það eru bæði kjöt-
og smjörfjöll í landinu. Hækkun
á landbúnaðarvörum hefur
minnkað en eftirspurn innan-
lands. Almenningur hefur vart
efni á því að kaupa gæðakjötið
og smjörið. Það er þá s elt út úr
landinu undir kostnaðarverði og
útflutningurinn m.a. fjármagn-
aður með sérstöku álagi á land-
búnaðinn. Þessi offramleiðsla er
m.a. til komin vegna mikillar
notkunar tilbúins áburðar og
eiturefna sem koma í veg fyrir
sjúkdóma og eyða illgresi. Þessi
efni sem renna smám saman út
í vötn menga þau svo að fiskurinn
drepst og drykkjarvatn mengast
á sumum stöðum. Ríkisstjórnin
setti í fyrra nýtt gjald á tilbúinn
áburð til þess að reyna að
minnka offramleiðsluna og
mengunarhættuna um leið.
„Litla gula hænan
fann fræ“
Bændur hafa einkum beint
spjótum sínum að forsætisráð-
herranum, Olof Palme, foringja
jafnaðarmanna. Nú nýlega kom
Palme inn á þessi mál i kosninga-
ræðu á þann hátt að ekki varð
til þess að blíðka bændur. Palme
beindi þeirri áskorun til sænskra
bænda, sem hann sagði að væru
duglegustu bændur í heimi, að
leggja nú fremur áherslu á gæði
en magn. Hann sagðist hafa séð
hænur kroppa í mold undir ber-
um himni nálægt sumarbústað
sínum og keypt undan þeim
eggin, sem hefðu verið hreinasta
lostæti. Kjöt af grfsum sem
fentríu að hrevfa sig væri einnig
mun betra og hollara en grisa-
kjötið úr svínaverksmiðjunum.
En blaðran sprakk hjá bændum
þegar Palme sagði að sænska
hveitið væri svo lélegt og eggja-
hvítuefnissnautt að það væri
vart hægt að baka úr því skapleg-
ar bollur.
Samtök bænda brugðust hart
við og sögðu Palme engan skiln-
ing hafa á þessu máli. Það væri
hans eigin stefna í landbúnaðar-
málum sem gerði að bændur
gætu ekki framleitt betra mjöl.
Til þess að auka eggjahvítuefnið
i hveitinu þyrfti að auka magnið
af tilbúnum áburði, sérstaklega
köfnunarefni. Til þess að plönt-
urnar gætu borið hin bústnu fræ
þyrfti síðan að dreifa sérstöku
efni sem dregur úr vexti stilk-
anna svo þeir geti staðið undir
korninu.
Hveitið í góðu bollunum hans
Palme kemur frá löndum þar
sem öll þessi efnasamsetning er
leyfð, en sænska rfkisstjórnin
setur aukaskatt á bændur fyrir
það að vilja framleiða sama
gæðamjölið. Ýmsir fleiri hafa
blandað sér inn i þetta bollustríð.
Bændur eru ekki líklegir til að
gefa Palme atkvæði sitt — en
það gerir honum e.t.v. ekki svo
mikið, þar sem þeim fækkar nú
stöðugt.
Frá mótmælaaðgerðum bænda í Svíþjóð gegn stjórninni.
Noregur:
Willoch
ósáttur við
blaðamenn
Osló, 30. áKúsL Frá Ju Krik L*ure,
TrétUriUra Morgunblaðsiiia.
SLEGIÐ hefur í brýnu með Káre
Willoch forsætisráðherra og norsk-
um fréttamönnum í kosningabar-
áttunni, sem nú er háð í Noregi.
Willoch er sakaður um að vilja
ekki tala við svokölluð „óvinsam-
leg“ blöð.
Fyrr í þessari viku efndi for-
sætisráðherrann til frétta-
mannafunda. Hann tók þann
kost að boða aðeins blaðamenn
frá borgaralegum blöðum, sem
styðja stjórnina. Blöð Verka-
mannaflokksins og Norska rík-
isútvarpið (NRK) voru höfð út-
undan.
Blaðamannafélagið í Noregi
hefur látið málið til sín taka og
telur þessa mismunun Willochs
stefna fjölmiðlafrelsi landsins i
hættu.
Willoch sakar NRK um að
hafa leitast við að mála stefnu
Hægriflokksins í sem dekkstum
litum og gert Verkamanna-
flokknum hærra undir höfði en
Hægriflokknum.
Þessari ásökun vísar ríkisút-
varpið á bug og bendir máli sínu
til stuðnings á útsendingar-
skýrslu, þar sem fram komi, að
Hægriflokkurinn hafi oftar haft
orðið í kosningadagskrá sjón-
varpsins, enda þótt flokkurinn sé
minni en Verkamannaflokkur-
inn.
Tökum velmeðfarna,
notaða Lada bfla upp
nýja.