Morgunblaðið - 31.08.1985, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
m/w
„Ég cr búinn oÁ biÍja þig þúsund
s'innum oub kauppi rúm&ýmo.."
... að vita ad hún
fór í þennan kjól
HÖGNI HREKKVÍSI
r/þcft> er rusLghcuigahundur Pyr\r
Hlustanda fínnst ekki allt slæmt í útvarpinu þótt margt sé þar afleitt
Ekki allt slæmt í útvarpinu
Hlustandi skrifar:
Ég ætla eiginlega bæði að
kvarta og þakka fyrir mig. Kvart-
anirnar eru aðallega í sambandi
við rás 2, sem mér finnst alveg
hræðilega einhæf. Hún er ná-
kvæmlega eins og þegar hún byrj-
aði og sömu mennirnir tuðandi í
eyrunum á manni og þá. Mér
finnst vera kominn tími til að
leyfa þessum sjálfumglöðu morg-
unmönnum að hvíla sig. Ég trúi
ekki að ég sé ein um að vera orðin
þreytt á Ásgeiri Tómassyni, Jóni
Ólafssyni, Páli Þorsteinssyni og
hvað þeir heita þessir menn. Að
mínu mati er kominn tími til að
skipta og fá nýja menn og líka sjá
til þess að þeir geti ekki leyft sér
að segja hvaða vitleysu sem er í
útvarpið.
Svo finnst mér eins og rás 1 geti
núna að eigin áliti boðið fólki upp
á hvað sem er þegar rás 2 er kom-
in. Ef manni þykir efnið á rás 2
leiðinlegt þá er ómögulegt að
skipta yfir á rás 1 fyrir miðdegis-
tónleikum, morguntónleikum og
kvöldtónleikum, að ekki sé talað
um alla þessa málglöðu nöldur-
seggi sem fá að vaða uppi. En það
er ekki allt slæmt á rás 1 enda
væri ég þá orðin ein af þessum
málglöðu nöldurseggjum. Mig
langar að þakka fyrir frábær
framhaldsleikrit, eins og til dæm-
is Raddir sem drepa, og eins er
Daglegt mál alveg ómissandi þátt-
ur.
Ég vona að einhver taki mark á
því sem ég er að segja, þó það sé
kannski ekkert sérlega jákvætt að
vera að gagnrýna útvarpið alltaf
hreint, en ég er jú einu sinni ein af
þessum tvöhundruð þúsund hræð-
um sem eiga útvarpið og finnst ég
eiga heimtingu á almennilegu
efni.
Þessir hrlngdu ..
Þakkir til for-
stöðumanna
Ölduselsskóla
Móðir úr Stuðlaseli hringdi:
Mig langaði að koma á fram-
færi innilegu þakklæti til for-
stöðumanna Ölduselsskóla í
Breiðholti. Þar var haldið upp á
tíu ára afmæli skólans í vor og
tókst framúrskarandi vel.
Börnin voru látin útbúa ým-
iskonar sýningar og héldu auk
þess skemmtun fyrir aðstand-
endur sína.
Æskulýðsráð hélt líka nám-
skeið fyrir krakkana, þar sem
farið var með þau á söfn og sýn-
ingar víðsvegar um borgina. Á
það og þakkir skildar fyrir.
1
íslenskt kaffi
er ódrekkandi
Kaffímaður hringdi:
Ég hef lengi furðað mig á því
hversvegna íslenskt kaffi er
svona miklu verra heldur en það
kaffi sem maður fær í öðrum
löndum. Strangt tekið er kaffi
rangnefni á þessum islenska
drykk. Kaffilíki væri betra nafn.
Enda má segja að munurinn á
íslensku kaffi og alvöru-kaffi sé
svipaður og á smjöri og smjör-
líki.
Einhverntímann var því logið
að mér að gæði þess kaffis sem
flutt er hingað inn væru miklu
minni en þess sem almenningur
drekkur til dæmis á meginlandi
Evrópu. Einnig var mér sagt að
brennslan hér væri miklu lélegri
og minni en þar. Ekki ætla ég að
leggja neinn sérstakan trúnað á
þessar skýringar, en leikmanni
finnast þær vissulega hljóma
vel.
Ég krefst skýringa. Hér er sí-
fellt verið að klifa á hversu ágæt
innlend framieiðsla og vinnsla á
neysluvörum sé. Þetta er ekki
eina dæmið um að við stöndum
öðrum siðuðum þjóðum að baki.
Hvernig stendur á því?
Afleitt að loka
kjallaranum
Fríðleikspiltur hringdi:
Ég vildi endilega ná sambandi
við þessar sjö niðurbrotnu sem
greindu frá óhamingjusemi sinni
og dapurleika hér á síðum Vel-
vakanda fyrir skemmstu.
Þannig er að við hittumst
nokkuð oft félagarnir, sjö tals-
ins, á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Okkur finnst einmitt
líka afleitt að Kjallarinn skuli
vera lokaður, því þangað venjum
við komur okkar.
Það merkilega er hins vegar
að lokun Kjallarans hefur orðið
til þess að við höfum þurft að
reyna miklu meira á okkur til að
halda uppi samræðum, og erum
nú orðnir þjálfaðir samræðu-
garpar.
Við myndum því verða því
allshugar fegnir ef þessar sjö
niðurbrotnu vildu slást í hópinn
með okkur. Við gætum örugg-
lega bryddað upp á skemmtileg-
um og greindarlegum, jafnvel
andríkum umræðum, svo þær
þyrftu ekki að kvíða helgunum
sem eftir eru þar til Þjóðleik-
húskjallarinn verður opnaður
aftur. Auk þess gætum við kennt
þeim málfræði í leiðinni.
Semsé, ef þær hringja í síma
10607 verður allt í himnalagi.
Ölduselsskóli. Móðir úr Stuðlaseli er þakklát forstöðumönnum skólans.