Morgunblaðið - 31.08.1985, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985
Spennan í algleymingi þegar þrjár umferðir eru eftir:
Hverjir verða
meistarar?
HVERJIR verða íslandsmeistarar í knattspyrnu er sú spurning sem
flestir knattspyrnuunnendur velta fyrir sér þessa dagana. Verða það
Framarar, Valsmenn, Skagamenn, Keflavík, Þór eða KR-ingar? Þessari
spurningu getur auðvitað enginn svarað en það skaðar lítið að velta
fyrir sér þeim leikjum sem hvert þessara liða eiga efftir í deildinni og
möguleikum út frá því. Baráttan á botni deildarinnar er einnig mjög
hörð. Víkingur er svo gott sem fallið, ekkert getur nú bjargað þeim frá
falli nema kraftaverk. Spurningin er: Hverjir fylgja þeim niður. Verða
það Þróttur eða Víðir eða jafnvel FH þó svo líklegt sé að þeir séu
komnir á nokkuð lygnan sjó.
• Fær Guðmundur Steinsson, fyrirliði Fram, enn eitt tækifssrið til að
taka á móti sigurverðlaunum? Framarar eru með forystu í 1. deildinni
eins og stendur og þeir eiga möguleika á aö vinna Islandsmótiö, þaö
yrði fjórði titill liðsins á þessu ári.
FRAM:
Fram er með forystu eins og
stendur í 1. deild, hafa hlotiö 30
stig og hafa veriö lengst af meö
forystu í sumar. Þeir eiga eftir aö
leika við Þrótt, FH og lA í þeim
þremur umferöum sem eftir eru.
FH-leikurinn er í Hafnarfirði, hinir
tveir í Reykjavík.
Fram ætti aö sigra FH og Þrótt
en leikurinn viö Akranes í síöustu
umferöinni er meira vafaatriöi. Sá
sem þetta skrifar telur aö ef Akra-
nes vinnur í Keflavík um helgina þá
séu þeir til alls líklegir í síöasta
leiknum gegn Fram því þá eru
möguleikar þeirra talsveröir.
VALUR:
Valsmenn byrjuðu illa en hafa
nú aö undanförnu veriö aö komast
á skriö, þeir eiga eftir aö leika viö
Viöi, Keflavík og KR. Víöir og KR
heima en ÍBK á útivelli. Erfiöir leikir
sem geta skipt ákaflega miklu máli
um hverjir standa uppi sem Is-
landsmeistarar aö keppnistímabil-
inu loknu.
Valsmenn gætu lent í basli meö
Víöi því þeir hafa barist vel í leikj-
um sínum í sumar og þeir þurfa
nauösynlega á öllum þeim stigum
aö halda sem þeir geta náö í. Leik-
irnir við Keflavík og KR verða erf-
iöir, á því leikur ekki nokkur vafi.
Valur var sleginn út í Keflavík í bik-
arkeppninni og hefur fullan hug á
aö hefna þeirra ófara. Leikurinn
viö KR í síöustu umferöinni getur
oröiö mjög þýöingarmikill fyrir
bæöi liöin en þaö gæti einnig fariö
svo aö hann skipti engu máli fyrir
fyrsta sætiö, en þaö er líka mikil-
vægt aö verða frekar í ööru sæti
en því sjötta.
KR:
KR leikur viö Þór á Akureyri um
helgina og veröur þar örugglega
um mikinn baráttuleik aö ræða.
Hvorugt liðið þolir aö tapa þeim
leik og í rauninni veröur annaö
hvort liöiö aö sigra til þess aö
standa reglulega vel aö vígi. Næsti
leikur KR er síöan viö Víöi á heima-
velli sínum og síöasti leikurinn er
viö Val á Hlíðarenda.
KR hefur fullan hug á aö sigra á
Akureyri nú um helgina, Þór hefur
ekki tapaö heimaleik í sumar og
Vesturbæingarnir eru ákveðnir í
því aö breyta þeirri staöreynd. Ef
þeim tekst þaö þá standa þeir
óneitanlega nokkuö vel aö vígi en
þeir eiga alls ekki létta leiki eftir þó
svo þeir vinni Þór.
ÞÓR:
Akureyrarliöiö hefur komið mik-
iö á óvart í sumar. Þeir hafa unniö
alla heimaleiki sína nema einn,
geröu jafntefli viö Víöi í 6. umferð.
Þór á eftir aö leika viö KR og verö-
ur sá leikur á Akureyri á morgun.
Því næst koma þeir hingaö suöur
og leika viö Þrótt og ætti þaö ekki
aö veröa svo erfítt fyrir þá ef Þrótt-
ur leikur eins og þeir hafa gert, en
þaö ber þó aö hafa í huga aö ef
Þróttur ætlar ekki aó falla þá verö-
ur liöið aö fara aö berjast fyrir stig-
unum — þau koma ekki af sjálfu
sér.
Síöasti leikur Þórs veröur síöan
viö FH á Akureyri og ef aö líkum
lætur þá ættu heimamenn aö sigra
í þeim leik, sérstaklega ef þeim
tekst aö sigra í hinum leikjunum
tveimur.
ÍA:
Skagamenn hafa ekki stungiö af
í deildinni eins og undanfarin ár,
sem betur fer segja eflaust margir,
þeir eru nú í fimmta sæti og eru
þremur stigum á eftir Fram. Þeir
eiga eftir aö leika viö Keflavík núna
á sunnudaginn í Keflavík, Vikinga á
Akranesi og síöasti leikurinn verö-
ur á Laugardalsvelli gegn Fram.
Talsvert erfiðir leikir.
Keflvíkingar eru alltaf erfiöir
heim aö sækja og í fyrri leik liö-
anna á Akranesi sigraöi Keflavík
2:1. Ekki auöunnin stig í Keflavík á
morgun hjá Skagamönnum. Leik-
urinn á heimavelli viö neösta liöiö
ætti aö vera auöunninn en,
knattspyrnan er óútreikanleg. Vík-
ingar eru fallnir og viö þaö ætti aö
losna um þá spennu og örvænt-
ingu sem viröist hafa hrjáö liöiö.
Þeir gætu náö saman og margir
leikmenn þeirra eru snjallir og því
getur allt gerst, ef Víkingarnir ná
aö sýna góöan leik. Þess ber þó aö
gæta aö Akurnesingar leggja þaö
ekki í vana sinn aö tapa fyrir liðum
sem eru neöarlega i deildinni.
Um leikinn viö Fram hefur veriö
rætt þegar verið var aö fjalla um
möguleika Fram á íslandsmeist-
aratitlinum og veröur ekki fjölyrt
frekar um þaö hér.
ÍBK:
Þeir geröu jafntefli viö FH í vik-
unni og voru þaö mjög óhagstæö
úrslit fyrir liðið og líklega hafa þeir
þar meö misst af lestinni þó svo
allt geti gerst, eins og svo oft hefur
verið tönglast á í þessari samant-
ekt. ÍBK er fjórum stigum á eftir
efsta liöinu og eiga því litla mögu-
leika ef svo heldur fram sem horfir.
Skaginn heimsækir þá á morg-
un og þar getur allt gerst. Síöan
taka þeir á móti Valsmönnum og
loks leika þeir viö Víkinga á Laug-
ardalsvellinum og er þaö jafnframt
síðasti leikur mótsins, fer fram
þann 15. september, sem er
sunnudagur. Ef Keflvíkingar vinna
alla þessa leiki, sem alls ekki er
útlokaö þar sem tveir þeirra eru á
heimavelli, þá eiga þeir enn mögu-
leika en aöeins ef Fram og eitthv-
ert af þeim liöum sem fyrir ofan þá
eru í deildinni tapi leikjum, eöa
stigum.
FH:
Hafnfirðingarnar viröast hafa
bjargaö sér fyrir horn nú í síöustu
leikjum og þeir eru varla í mikilli
fallhættu úr því sem komiö er. Þeir
eru meö 17 stig, fimm stigum
meira en næsta liö fyrir neöan þá í
töflunni og þaó þarf eitthvaö mikiö
aó ganga á ef þeir missa niöur þaö
forskot.
FH leikur um helgina viö Víkinga
á Laugardalsvelli og þar veröur ör-
ugglega hart barist, þaö er þó spá
mín aó FH vinni í þeim leik og
gulltryggi þar meö sæti sitt í deild-
inni á næsta ári. Framararnir
skreppa síöan i heimsókn í Kapla-
krika næsta laugardag og leika þar
viö FH og þar tel óg FH-inga ekki
eiga mikla möguleika á sigri, þó
svo Fram hafi átt í strögli meö þau
liö sem flestir hafa þó taliö eiga aó
vinna léttilega. Síöasti leikur FH er
síöan viö Þór á Akureyri og þann
leik vinnur Þór örugglega ef þeir
vinna næstu tvo leiki og trúlega
skiptir sá leikur engu máli fyrir FH,
þeir veröa búnir aö tryggja sig í
deíldinni.
VÍÐIR:
Erfiöir dagar framundan hjá
Garöbúum. Leikur viö Val í dag, og
síöan viö KR, einnig á útivelli, en í
síöustu umferöinni fá þeir Þrótt í
heimsókn og þaö veröur trúlega sá
leikurinn sem ræöur úrslitum um
hvort liðið fylgir Víkingum niöur.
Ef liöin leika eins, eöa svipaö og
þau hafa gert í sumar, þá er ekki
spurning um að Víöir vinnur í viö-
ureign sinni viö Þrótt. Víðismenn
hafa barist af miklum drengskap í
öllum sínum leikjum og þaö er trú
mín aö þeir uppskeri þaö erfiöi
meö því aó halda sér í deildinni.
ÞRÓTTUR:
Dökkt útlit hjá liöinu og slæmt
gengi í sumar ef frá eru taldir
fyrstu leikir liösins. Skiptu um
þjálfara á miöju sumri en því miður
fyrir liöið þá viröist ekki hafa tekist
aö rífa þá upp úr þeim doöa og
leikleiöa sem einkennt hefur liöiö.
Þaö eru margir snjallir einstakl-
ingar í iiöinu en þaö vantar bar-
áttuviljann og kraftinn til þess aö
þeir geti sigraö leik. Þróttur á eftir
aö leika viö Fram, Þór og Víöi.
Fram og Þór hér i Reykjavík en
Víöi á heimavelli. Litlir möguleikar í
leikjunum viö Fram og Þór en leik-
urinn í Garöinum í síöustu umferö-
inni gæti skipt sköpum, síöast
geröu liðin jafntefli, 2:2.
VÍKINGUR:
Ótrúlega slæmt gengi liösins í
sumar og þaö hlýtur eitthvaö
meira en lítiö aó vera aö hjá
knatktspyrnudeildinni, eöa aó
minnsta kosti hjá meistaraflokkn-
um. Víkingur vann fyrsta leikinn í
mótinu, gegn Val, og síöan komu
13 tapleikir í röö í 1. deildarkeppn-
inni auk eins tapleiks í bikarkeppn-
inni, áöur en liöið náói stigi í síö-
ustu umferð gegn Þrótti.
Víkingur leikur við FH á mánu-
daginn, Skagamenn næsta laug-
ardag á Akranesi og loks ÍBK á
Laugadalsvellinum þann 14. sept-
ember. Ekkert viröist geta komiö í
veg fyrir aö þeir falli en þeir geta
engu aö síður sett strik í reikning-
inn, bæöi á toppbaráttuna og ekki
síöur á botnbaráttuna.
Eins og sést á þessari upptal-
ingu og umfjöllun þá er alls ekki
auövelt aö spá fyrir um hverjir
veröa islandsmeistarar á þessu
keppnistímabili. Ég læt lesendum
eftir aö spá fyrir um þaö en ætla
mér ekki þá dul aö reyna aó spá
um þá 15 leiki sem eftir eru á is-
landsmótinu aö þessu sinni.
• Úr leik ÍBK og FH ( vikunni. Ragnar Margeirsson, aðalmarkaskorari Keflvíkinga sækir hér aö Magnúsi
Pálssyni í FH-liðinu. FH-ingar sigla nú lygnan sjó í deildinni en Keflvíkingar eygja ef til vill enn möguleika á
sigri.