Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SBPTEMBER 1986
3 4
Þjórsárdalur;
kerfið hér á landi er vanþróað og
staðnað, en það er þó að skána.
Það hefur hægt og sígandi færst í
rétta átt, sérstaklega á sl. þremur
árum.
En það vantar töluvert á enn að
við höfum náð að komast á svipað-
an grundvöll og er í helstu sam-
keppnislöndum okkar. Fjármagn
og fjármagnskostnaður eru tvö af
mörgum samkeppnisráðum ís-
lenskra fyrirtækja. En þau eiga í
samkeppni bæði við innflutta vöru
og á erlendum mörkuðum. Þess
vegna er mikilvægt að íslensk
fyrirtæki búi við sömu aðstöðu og
samkeppnisaðilarnir. Ef ekki
munum við standa okkur verr og
lífskjörin verða verri hér á landi.
Það sem mér finnst að enn þurfi
að koma til eru rýmkaðar heimild-
ir fyrirtækja til þess að afla sér
langvinns fjár, lánsfjár og
áhættufjár, á erlendum fjár-
magnsmörkuðum. Við aukið
frjálsræði I þeim efnum munu
vextir hér á landi lækka, þar með
talið á verðbréfamarkaðnum. For-
senda þess er þó sú að stjórnmála-
mennirnir okkar sýni meiri sjálfs-
aga við ákvörðun ríkisútgjalda og
þar með við öflun lánsfjár þess
opinbera því annars verða vextir
óeðlilega háir þar sem vextir af
ríkisskuldabréfum hljóta ávallt að
vera þeir lægstu sem í boði eru á
hverjum tíma að öðru jöfnu,"
sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson
að lokum.
Enn fjölgar
gæsluvarö-
haldsföngum
KARL og kona á þrítugsaldri voru
úrskurðuð í gæsluvaröhald um helg-
ina vegna aðildar að þjófnaðarmál-
unum í Reykjavík um verslunar-
mannahelgina, sem rannóknarlög-
regla ríkisins hefur hefur haft til
rannsóknar undanfarnar vikur.
Maðurinn var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 18. september, en konan
til 11. september.
Alls hafa nú þrettán manns set-
ið inni vegna þessara mála, en sem
stendur eru níu manns i gæslu-
varðhaldi.
koma í veg fyrir steypuskemmdir eða
lagfæra þær með réttri meðhöndlun
Sprungur geta myndast í heilbrigðri stemsteypu pegar
ytraborð hennar mettast af vatm sem síðan frýs og piðnar
á víxl í hinm umhleypingasömu veðráttu okkar.
Alkalivirk steinsteypa mettast af vatm og springur síðan
vegna efnafræðilegra hvata
Því þarf að hmdra að vatn smjúgi inn í steypuna svo
sem kostur er en hún verður pó að geta andað.
DYIMASYLAN BSM 40 er monosílan vatnsfæla sem
hlotið hefur meðmaeli Rannsóknarstofnunar bygglng-
arlðnaflarlns.
DYNASYLAN BSM 40 er efm sem bonð er jafnt á nýjan,
ómálaöan stem og sprungmn málaðan stein og hindrar
vatnsdrægm steypunnar,
VITRETEX plastmálning er copolymer (akryl) máln-
Ing með mjög gott PAM gildl og andar því vel.
VITRETEX plastmálnmg hefur verið á íslenskum markaði
í áratugi og sannað ágæti sitt. p.á m. í ströngustu veðurpols-
tilraunum.
Tvær yflrferölr með DYNASYLAN BSM 40 og síðan tvær
yfirferðlr með VITRETEX plastmálnlngu trygglr
margra ára endlngu.
Umboðsmenn um fand alltl
1 S/ippfé/agið i Reykjavík hf
Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi
Sími 84255
Alvarlegt
umferðarslys
ALVARLEGT umferðarslys varð um
miðjan dag í gær i Þjórsárdal, er
pallbfll frá varnarliðinu og vörubfll
rákust saman. Ökumaður pallbflsins
slasaðist alvarlega og var fluttur
með þyrlu varnarliðsins á slysadeild
Borgarspítalans í Reykjavík. Hann
er í lífshættu, en farþegi sem var í
öryggisbelti slasaðist minna og öku-
raaður vörubflsins slapp ómeiddur.
Mikið ryk var á veginum þegar
slysið vildi til. Vörubifreiðinni
sem var á austurleið var ekið á
eftir stórum grjótflutningabíl með
aftanívagni. Vegurinn er mjög
þurr og var því mikill rykmökkur
á veginum. Pallbíllinn kom á móti
á vesturleið og var ný búinn að
mæta grjótflutningavagninum
þegar slysið varð. Svo virðist sem
ökumenn bifreiðana hafi ekki séð
hvor annan vegna ryksins og
skullu þær því saman á miðjum
veginum. Þær munu hvorug hafa
verið á mikilli ferð.
Mönnum frá Búrfellsvirkjun
tókst að losa ökumanninn úr bíln-
um áður en lögreglan á Selfossi
kom á staðinn. Þá kom í ljós að
ekki var þorandi að flytja mann-
inn með sjúkrabifreið og var þyrla
frá varnarliðinbu fengin með
milligöngu Slysvarnarfélags ís-
lands til að fljúga uppeftir. Hún
lagði af stað uppeftir upp úr fjög-
ur, en stöðvaði á Selfossi til að
taka upp leiðsögumann og lækni.
Hún lenti síðan á þyrlupallinum
við Borgarsjúkrahúsið um sex-
leytið.
vat
VITRETEX
Morgunblaöið/Júlíus
Þyrlan lendir á þyrlupallinum við Borgarsjúkrahúsið um sex leytið í gær með slasaðan ökumann pallbflsins.