Morgunblaðið - 03.09.1985, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
Tíu þúsund í bóka-
kaup ekki óalgengt
SKÓLAR eru nú hver af öðnim að
hefja störf og má sjá bókaverslanir
fullar út úr dyrum af nemendum í
leit að námsgögnum sínum. Fram-
haldsskólarnir voru settir í gær og
eiga nemendur þeirra að mæta sam-
kvæmt stundatöflu í dag, en
grunnskólanemendur á fimmtudag-
inn. Blaðamaður og Ijósmyndari
Morgunblaðsins brugðu sér í eina af
bókaverslunum Reykjavíkur í gær
þar sem heldur betur var hamagang-
ur í öskjunni og starfsfólk hafði í
nógu að snúast Af viðmælendum
okkar að dæma, er ekki óalgengt að
krónutalan 10.000 sé nefnd í sam-
bandi við bókakaup framhaldsskóla-
nemenda í ár.
Vinkonurnar María Gunnars-
dóttir og Helena Ólafsdóttir voru
niðursokknar í bókalistum sinum
er blaðamenn bar að. Þær sögðust
báðar vera 16 ára og því væri
þetta fyrsta árið í framhaldsskóla.
„Jú, við erum svolítið kviðnar —
höldum að stökkið úr grunnskóla í
framhaldsskóla sé dálítið mikið í
byrjun."
María vann hjá Norðurstjörn-
inni í Hafnarfirði í sumar og sagð-
ist hún hafa þénað um 70.000
krónur á þeim tima. Helena var í
bæjarvinnunni í Reykjvík og sagð-
ist hafa haft um 20.000 krónur þá
tvo mánuði sem hún vann. María
mun setjast á skólabekk i Flens-
borgarskóla og Helena í
Fjölbrautaskólanum i Breiðholti.
Þær stöllur gerðu ráð fyrir að hátt
i 10.000 krónur færu hjá þeim í
bókakaup í ár, því i fyrra eyddu
þær u.þ.b. 6.000 krónum. Þær
bættu því þó við að foreldrarnir
yrðu þeim eflaust hjálplegir við
fjármögnunina ef á þyrfti að
halda.
Ingi Fjalar, Egill Örn og Krist-
ján eru allir i Landakotsskóla og
sögðust eiga að byrja þar á
fímmtudaginn. „Við erum að
kaupa stílabækur, penna, blýanta,
strokleður og annað nauðsynlegt
viðvíkjandi skólagöngu. Við þurf-
um engar aðrar bækur að kaupa
því skólinn útvegar grunnskóla-
krökkum þær. Við gerum ráð fyrir
að eyða um 500 krónum hver i
þessi kaup okkar.
Aðspurðir um fjárhaginn sögð-
ust þeir eiga nóg af peningum.
Ingi Fjalar og Kristján báru út
dagblöð í sumar og fengu 2.000
krónur á mánuði, en Egill var i
vist við að passa 4 ára gamla syst-
ur sína í sumar. Þeir sögðust allir
ætla að reyna að vinna með skól-
anum í vetur við t.d. útburð blaða.
StöIIurnar Ragnheiður Gisla-
dóttir og Jóhanna Marta Kristen-
sen voru að fjárfesta í skólaritum
í gær eins og svo margir aðrir.
Þær sögðust vilja reyna að vinna
fyrir sér eins mikið sjálfar eins og
mögulegt væri. „Það er alltaf
skemmtilegra að geta staðið á eig-
in fótum í stað þess að þurfa að
biðja mömmu og pabba um pen-
inga.“ Jóhanna Marta fer á fyrsta
ár í Iðnskólann í Reykjavík i al-
mennt nám og síðan ætlar hún að
reyna að komast inn í fóstruskól-
ann næsta vetur. Hún vann á
Landakoti i sumar og ætlar að
reyna að fá sér aukavinnu með
skólanum í vetur.
Ragnheiður fer inn á annað árið
í Kvennaskólanum í Reykjvík.
Hún sagðist vera það heppin að
þekkja fullt af fólki, sem ætti
bækurnar sem hún þyrfti að not-
ast við og gæti hún því fengið
flestar lánaðar. „Ég vann í bakaríi
i sumar og fékk um 20.000 krónur
i mánaðarkaup með því að vinna
alla daga auk helganna. 1 vetur
hef ég hugsað mér að vinna með
skólanum um helgar, helst i bak-
aríinu, til að drýgja tekjurnar,"
sagði Ragnheiður.
Helena Ólafsdóttir og María Gunnarsdóttir eru nú að stíga sín fyrstu
skref í framhaldsskólum.
Ingi Fjalar Magnússon, Egill örn Jónsson og Kristján Kristinsson bjugg-
ust við að eyða u.þ.b. 500 krónum í stflabækur, penna, blýanta og aðrar
nauðsynjar fyrir skólagönguna.
Síðara uppboð á Sölva Bjamasyni BA í dag:
Krafa Fiskveiða-
sjóðs nemur
172 milljónum
Vátryggingaverð skipsins
145,7 milljónir króna
ANNAÐ og síðara uppboð á togaran-
um Sölva Bjarnasyni BA fer fram
hjá sýslumanni Barðastrandarsýslu í
dag. Uppboðið fer fram að kröfu
Fiskveiðasjóðs, sem á 172 milljónir
króna inni hjá eigendum hans. Tog-
arinn hefur að undanförnu verið
gerður út frá Bíldudal og hafa
heimamenn áhuga á því að eignast
skipið að loknu uppboði, eða kaupa
annað skip til að renna stoðum undir
útgerð og fiskvinnslu á staðnum.
Sölvi Bjarnason er vátryggður
fyrir 145,7 milljónir króna, en
krafa Fiskveiðasjóðs nemur 172
milljónum króna, þar af eru 58
milljónir í vanskilum. Lögveðs-
kröfur í skipið nema um 2 milljón-
um króna og ennfremur eiga
Byggðasjóður og Landsbankinn
kröfur á skipið. f dag verður
ennfremur fyrsta uppboð á togar-
anum Kolbeinsey ÞH að kröfu
Fiskveiðasjóðs. Krafa sjóðsins
nemur 265 milljónum króna, vá-
tryggingaverðmæti er 176 milljón-
ir króna og 93 milljónir eru í van-
skilum við Fiskveiðasjóð. Annað
og síðara uppboð á togaranum
Sigurfara II SH fer fram síðar I
þessum mánuði. Krafa Fiskveiða-
sjóðs I það skip nemur 290 millj-
ónum króna, þar af eru í vanskil-
um 116 milljónir króna. Vátrygg-
ingaverð skipsins er 187 milljónir.
Loks verður annað og síðara upp-
boð á skipinu Helga S. KE síðar í
þessum mánuði. Krafa Fiskveið-
asjóðs í það skip nemur 65 millj-
ónum króna, þar af eru 28 í van-
skilum. Vátryggingaverð skipsins
er 61 milljón króna.
Magnús Björnson, skrifstofu-
stjóri Fiskvinnslunnar á Bíldudal,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að fyrirtækið og hreppurinn hefðu
haldið undirbúningsstofnfund að
fyrirtæki, sem tæki að sér rekstur
og fiskvinnslu á staðnum. Stofn-
fundur félagsins yrði síðan hald-
inn á fimmtudag. Hann sagði
væntanlegt fyrirtæki ekki myndu
bjóða í togarann á uppboðinu í
dag, en hugsanlega leita eftir
kaupum á honum eftir að ljóst
væri hver keypti það. Menn ein-
skorðuðu sig þó ekki við þetta
skip, þó það hefði reynzt vel þau
tvö ár, sem fiskvinnslan hefði gert
það út. Aðalatriðið væri að fá nýtt
skip til að renna stoðum undir út-
gerð og fiskvinnslu á staðnum.
Hjá Fiskveiðasjóði fengust þær
upplýsingar, að ráðgert væri að
láta yfirfara skipið, yrði það slegið
sjóðnum og auglýsa síðan til sölu.
Það yrði svo selt þeim, sem hag-
stæðast kauptilboð gerðu fyrir
sjóðinn, svo fremi, sem það væri
nógu gott að mati stjórnar hans.
INNLENT