Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
5
íshús
Reykdals
brennur
ELDUR kom upp í gömlu verksUeé-
is- og geymsluhúsi í Hafnarflrdi á
sunnudagskvöldið. Slökkviliðið I
Hafnarfirði kom á staðinn og gekk
greiðlega að ráða niðurlögum elds-
ins. Skemmdir urðu ekki miklar á
húsinu og litlar sem engar á því sem
þar var inni, en þar var meðal ann-
ars geymdur bátur.
Tilkynning um eldinn barst til
slökkviliðsins kl. 20.20 og var búið
að slökkva hann um klukkutíma
síðar, en vakt var við húsið til
klukkan þrjú í nótt. Það var mað-
ur sem hafði verið við vinnu sína í
húsinu, en brugðið sér frá, sem
varð eldsins var og lét slökkviliðið
vita. Húsið er gamalt timburhús
og stendur milli Lækjargötu og
Reykjanesbrautar. í Hafnarfirði
gengur það undir nafninu íshús
Reykdals, en það hefur undanfar-
in ár verið nýtt sem geymslu- og
viðgerðarhúsnæði.
Svartsengi:
Vélstjórar
samþykkja
samningana
STJÓRN- og trúnaðarmannaráð vél-
stjórafélags Suðurnesja samþykkti á
fundi í gærkveldi kjarasamninga við
Hitaveitu Suðurnesju fyrir hönd fé-
lagsmanna sinna. Samningar tókust
hjá ríkissáttasemjara á ellefta tím-
anum á laugardagskvöldið, en verk-
fall vélstjóra átti að hefjast þá á mið-
nætti. Til verkfallsins kom því ekki.
Vélstjórarnir fengu 9%%
hækkun frá 1. júní og fá síðan aðr-
ar hækkanir sem samist hefur um
á almennum launamarkaði. Vél-
stjórarnir vildu að samningurinn
væri afturvirkur til síðustu ára-
móta, sem þeir segja vera til sam-
ræmis við það sem umsamdist
milli vélstjóra og Landsvirkjunar,
en þeirri kröfu hafnaði stjórn
Hitaveitunnar.
Jón ólsen, hjá vélstjórafélagi
Suðurnesja sagði að þeir hefðu
orðið að hverfa frá þeirri kröfu
sökum formgalla á kröfugerð.
Samningurinn gildir til áramóta.
Ennþá hefur ekkert þokast í
samkomulagsátt í deilu iðnaðar-
manna sem vinna í Áburðarverk-
smiöjunni og viðsemjenda þeirra.
Iðnaðarmenn hafa verið í verkfalli
í mánuð. Guðlaugur Þorvaldsson,
ríkissáttasemjari sagðist búast
við að hann myndi boða til fundar
í dag eða á morgun til að kanna
hvort einhver samkomulags-
grundvöllur væri nú fyrir hendi.
Heimilið ’85:
Um 20 þús.
manns hafa
séð sýninguna
UM 20 þús. manns höfðu séð sýning-
una „Heimilið ’85“ í gærkveldi er
blm. hafði tal af Halldóri Guð-
mundssyni, blaðafulltrúa Kaupstefn-
unnar hf.
Halldor sagði að aðsóknin
fyrstu fimm sýningardagana hefði
verið mjög góð og talsvert betri en
á síðustu heimilissýningu. „Til að
endar nái saman þurfum við að fá
40 til 50 þús. manns á sýninguna,"
sagði Halldór. „Ef aðsóknin næstu
sex daga verður jafn góð og hún
hefur verið fram að þessu, þá
munum við vafalaust ná settu
marki."
Skömmu eftir að eldurinn kom upp.
MorgunblaðiA/Júlfus
Hinn eini
og sanni
stendur sem hæst
aö FOSSHALSI
(fyrir neöan Osta- og smjörsöluna, Árbæ, viö hliöina á nýju Mjólkurstöðinni).
IjdlkurstöSin
Öigeröin
svo sem Vogue hf. — Karnabær hf. — Hummel hf. —
Steinar hf. — Axel Ó. — Belgjagerðin hf. — Barnafata
versl. Fell — Garbo — Viktoría — Yrsa.
Dömufalnaður — Herrafatnaður — Unglingafatnaður — Barnafatnaður — Ungbarnafatnaður — Sportfatnaður — Vinnu-
fatnaður Gífurlegt úrval af alls konar efnum og bútum — Sængurfatnaður Handklæði — Gardínuefni — Hljómplötur
og kassettur í stórglæsilegu úrvali — Skór á alla fjölskylduna — Sportvörur í miklu úrvali — Snyrtivörur
Skartgripir — Gjafavörur í sérflokki — Slæður — Hanskar. o.m.fl. o.m.fl.
Video-horn fyrir börnin.
Frítt kaffi — Hægt að fá heitar vöfflur
m/rjóma, kleinur o.m.fl.
laugardaga
dagleg® 'r
föstodaga
Str*t>íi,'aena