Morgunblaðið - 03.09.1985, Page 7
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
7
Ólafur Laufdal tekur
Hótel Borg á leigu
„Umtalsverdar breytingar á rekstrinum,“ segir Ólafur
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Hótel Borg 2—3 ár, m.a. hefur
veitingasalnum verið gjörbreytt.
Ólafur Laufdal veitingamaður fyrir framan Hótel Borg.
ÓLAFUR Laufdal veitingamaður
hefur tekið Hótel Borg á leigu til
10 ára frá 1. september sl. Ólafur
mun áfram reka veitingastaðina
Broadway og Hollywood og leigan á
Hótel Borg mun ekki breyta neitt
áformum Ólafs um að reisa hótel við
Ármúla í Reykjavík á næstu 3-4
árum.
„Þessi hugmynd um að ég tæki
Hótel Borg á leigu er nýlega til-
komin," sagði ólafur í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Eigendur
hótelsins, Sigurður Kárason og
Pálmar Magnússon höfðu sam-
band við mig og ámálguðu þetta,
en þeir höfðu hug á að snúa sér
alfarið að öðrum rekstri sem þeir
hafa verið með, tívolíinu í Hvera-
gerði og fleiru. Mér þótti hug-
myndin strax spennandi, því ég
hef alla tíð haft sterkar taugar til
Borgarinnar. Ég byrjaði að vinna
þar sem piccolo 13 ára gamall hjá
Jóhannesi Jósefssyni og í fram-
haldi af því lærði ég þar til þjóns.
Fyrstu sporin mín í veitinga-
mennskunni eru því stigin á Hótel
Borg.“
Gengið var frá samningum um
leiguna aðfaranótt sl. sunnudags
og að morgni þess dags tók Ólafur
við rekstri Hótel Borgar. „Það
hafa verið gerðar miklar endur-
bætur og breytingar á hótelinu sl.
2-3 ár, bæði á herbergjum, sölum,
eldhúsi og gestamóttöku. Þessum
breytingum er lokið. Ég mun á
næstunni einbeita mér að breyt-
ingum á rekstrinum, en þær verða
umtalsverðar þótt of snemmt sé
fyrir mig að segja á þessu stigi í
hverju þær verða fólgnar. Það
liggur þó alveg ljóst fyrir að ég
get á ýmsum sviðum samræmt
reksturinn öðrum fyrirtækjum
sem ég rek, Broadway og Holly-
wood, t.d. hvað varðar innkaup,
vinnslu á mat, birgðavörzlu, þjón-
ustu og fleira," sagði Ólafur.
Dansleikir verða haldnir um
helgar á Hótel Borg eins og verið
hefur og mun ólafur því standa
fyrir dansleikjahaldi á þremur
stöðum í borginni. Aðspurður
sagði Ólafur að áætlanir hans um
byggingu 70 herbergja hótels við
Ármúla með sal sem tekur 1100
manns í sæti, væru óbreyttar.
Byrjað væri að grafa grunn hót-
elsins og hann stefndi að því að
ljúka smíði hótelsins á næstu 3-4
árum. „Ég hef mikla trú á íslandi
sem ferðamanna- og ráðstefnu-
landi og því held ég ótrauður inn
á þetta rekstrarsvið. Það er greini-
leg vöntun á hótelum hér í Reykja-
vík,“ sagði Ólafur.
Hótel Borg var tekin í notkun
árið 1930. Hótelið reisti Jóhannes
Jósefsson glímukappi. Árið 1959
keyptu fjórir einstaklingar hótelið
og varð Pétur Daníelsson hótel-
stjóri. Núverandi eigendur keyptu
hótelið fyrir rúmum tveimur árum
og hafa þeir gert miklar endur-
bætur á húsnæðinu, endurnýjað
það hátt og lágt. Þeir ráku hótelið
sjálfir en hótelstjóri er Sigurður
Gíslason. Herbergi í hótelinu eru
46 og þar eru tveir veizlusalir, tvær
vínstúkur og turnherbergi, sem
leigt er út til minni funda og
samkvæma.
Er ekki kominn tími til aö þú fáir þér
\/iA KinAi im hí»r tvflPir I
fJðmyteini'
Viö bjóöumþértvær
tegundiraf .
stjörnukortum.
Meöbáöumfylgir ^
skriflegurtexti.
Persónukort
Lýsir persónuleika þínum, m.a.:
grunntóni, tilfinningum, hugsun, ást og vin-
áttu, starfsorku og framkomu. Bendir á hæfi-
leika þína, ónýtta möguleika og varasama
þætti.
1
Framtíðarkort:
♦
£
Hvað geríst næstu tólff mánudi?
Framtíöarkortiö segir frá hverjum mánuöi,
bendir á jákvæöa möguleika og varasama
þætti. Hjálpar þér aö vinna meö líf þitt á
uppbyggilegan hátt og finna rétta tímann til
athafna.
Viö segjum aö stjörnuspeki sé stórkostleg og eitt þaö
gagnlegasta tæki sem manninum stendur til boöa, leiöi
til sjálfsþekkingar, mannþekkingar og almennt til auk-
ins skilnings manna á meöal. Stjömuspeki er góö fyrir
einstaklinga og t.d. hjón, foreldra og fyrir þá sem
standa á tímamótum o.s.frv.
„Er nokkuö aö marka þetta?“ segja margir. Þeir sem
hafa fengiö kort segja: „Þaö er hreint furöulegt hvernig
stjörnukortiö lýsir mér! “ „ Er st jörnuspeki ekki bara tóm
vitleysa og plat?“ segja sumir. Einn sagöi: „Þegar ég
skoöa stjörnukort þeirra sem mér líkar ekki vel viö,
hverfur andúöin og ég skil þá betur!“
Athugaöu máliö og dæmdu fyrir sjálfan þig!
KÍKTU VIÐ Á LAUGAVEG 66, EÐA HRINGDU í SÍMA 10377 OG PANTAÐU KORT!
Ef bæöi kortin eru gerö samtímis er 20% afsláttur. Einnig 20% f jölskyiduafsláttur.
NÁMSKEIO í STJÖRNUSPEKI!
Bjóöum einnig
sérstakan
einkatíma,
þar sem kort þitt
er túlkaö af
Gunnlaugi Guö-
mundssyni
stjörnuspekingi.
16. september. Þriggja vikna námskeiö, tvö kvöld í viku, á
mánudögum og fimmtudögum.
Á skemmtilegu námskeiöi kynnum viö undirstööuatriöi í
stjörnuspeki og túlkum kort þitt og annarra þátttakenda.
Túlkunin er itarleg lýsing á persónuleika þínum, komið er
m.a. inn á lífsorku, grunntón, tilfinningar, hugsun, ást og
samskipti, starfsorku, fas og framkomu. Þessir þættir eru
síöan dregnir saman í heilsteypta persónulýsingu. Áhersla
er einnig lögö á hæfiieika og þá sem hugsanlega hafa verið
bældir niöur í persónuleikanum.
6. október. Þriggja mánaöa námskeiö, kl. 16—18.45 á hverj-
um sunnudegi, alls tólf skipti fram til 22. desember.
Á þessu námskeiöi f jöllum viö um sömu hluti og á því fyrra
en fariö er ítarlegar i hvern þátt. Fariö er dýpra í undirstööuat-
riðin og í kort þitt og annarra þátttakenda. Þér er einnig kennt
aö lesa úr stjörnukorti, m.a. meö þvi aö gerö eru stjörnukort
fyrir ættingja þína og vini. Þetta er einstakt tækifæri til aö
læra stjörnuspeki í gegnum skemmtilega umræðu með
áhugasömufólki.
ST JuRNUSRI EKI
%DSTOOÍ
Laugavegi 66,
aími 10377.