Morgunblaðið - 03.09.1985, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verð.
Steinull — glerull — hólkar.
Armúla 16 sími 38640
ITþorgrímsson & CO
Tann
Security since 1795
peningaskápar
Eldtraustir — þjóftíetdir
hetmsþekkt framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRDI, SIMI 651000.
Pú dregur
fyrirferðalítinn SleepOver
púðann upp úr vasa eða veski,
blæst hann upp, smeygir honum um hálsinn —
og færð þér væran blund hvenær sem þú þarft þess með,
hvort heldur er á ferðalagi eða heima í stofu. Óþægindin
af að sofa sitjandi án stuðnings við höfuðið þekkja flestir,
en nú er sá ágallinn úr sögunni. SleepOver-púðinn sér um
það!
Þú færð hann á útsölustöðunum, getur pantað hann í síma,
eða sent okkur afklippinginn.
útsóllistadir: Torglð, Austurstræti í pöntnnaftí|njn
Garðakaup, Qarðabæ^^^^^Z3i7
Vinsamlegast sendid mér SleepOver-púðann strax í póst-
kröfú. Verð kr. 490.- að viðbættum sendingarkostnaði.
riafn: .............................................
Heimilisfang: ......................................
SleepOver-umboðið, Box 507, 202 Kópavogur.
Betrunarvist
í tikTni af 25 ára afmæli
Vemdar birtist viðtal við
Jónu Gróu Sigurðardóttur
fortnann samtakanna í
málgangi þeirra. Þar er
hún spurð meðal annars
um baráttu Verndar fyrir
umbótum á sviði fangels-
ismála og beðin að nefna
nokkur dæmi:
,Já, við höfum Uum.
lagt mikla áhershi á nauð-
syn þess að hraðari með-
ferð dómsmála verði stað-
reynd. Það er sárt til þess
að vita, að ennþá gerist það
að menn sem hafa brotið
af sér, fá ekki dóminn í
hausinn fyrr en mörgum
áram síðar, þegar aðstæður
þeirra hafa oft breyst mjög
og þeir orðnir hinir nýtustu
þjóðfélagsþegnar, jafnvel
með Ijölskyldur. — Þá, allt
í einu, er þeim gert að af-
plána og greiða fyrir gaml-
ar syndir. Þetta brýtur
oftast viðkomandi og fjöl-
skyldu hans niður og er
hreint út sagt hrikalegt Ég
held hins vegar að það sé
nauðsynlegt að breyta lög-
unum í þessum efnum og
auka svigrúmið frá því sem
nú er, að menn séu náðaðir
ef þeir hafa bætt ráð sitt og
breytt um lífsstfl, frá því
brot voru framin og þar til
loks til refsingar og afplán-
unar kemur.
Okkar „pólitík" ef ég
má nota það orð, er sú, að
refsivistin verði notuð sem
betrunarvist, en ekki að-
eins innilokun. Okkur
fínnst að endurhæfingin
eigi að byrja inni í fangels-
unum. Þó aö það kunni að
kosta meiri peninga, þá
teljum við að árangurinn af
skipulagðri endurhæfíngu
inni í fangelsum skili sér
þcgar upp er staðið marg-
falt til þjóðfélagsins, í betri
borgurum, og fjármagn
sparist þegar til lengri tíma
er litið. Það kostar nefni-
lega stórfé að reka fangels-
in og hafa menn þar innan
dyra. Þess vegna á þjóðfé-
lagið að kappkosta að
reyna að koma í veg fyrir
að þeir menn sem einu
sinni lenda í fangelsi komi
þangað aftur. það verður
hins vegar ekki gert með
innilokun einni saman.
Slíkt getur kallað fram allt
önnur og verrí viðbrögð hjá
99KWM /
Jóna Gróa Sigurðardóttir
Á þessu ári eru liðin 25 ár frá stofnun
félagasamtakanna Verndar, en megin-
markmið þeirra er að hjálpa fólki sem gerst
hefur brotlegt við lögin. Áf þessu tilefni er
fjallað um samtökin í Staksteinum í dag og
meðal annars birtur kafli úr viðtali við for-
mann Verndar, Jónu Gróu Sigurðardóttur,
sem birtist í afmælisriti samtakanna.
föngum. Eg held að endur-
hæfíng og skipulögð
fræðsla af ýmsu tagi sé það
sem bæti menn og verði til
þess að rjúfa þann vfta-
hríng sem því miður alltof
margir fangar hafa ekki
náð að komast út úr.
I annan stað teljum við
mikilvægt að uppbyggjandi
vinna sé stunduð i fangels-
um, þannig að nafnið
vinnuhæli standi undir
nafni, en það er heiti Litla-
Hrauns og Kvíabryggju.
Hvað viðkemur Kvía-
bryggju, La.m., þá er þar
litla vinnu að fá fyrir þá
fanga sem þar eru. Þar eru
einkanlega yngrí menn
vistaðir, sem eru gjaraa að
taka út sína fyrstu refs-
ingu. En Kvíabryggja er
nánast letigarður og það er
sárt að þurfa að viður-
kenna það. En með skipu-
legri uppbyggingu mætti
koma málum á Kvía-
bryggju f gott horf og hægt
værí að vinna þar að upp-
byggjandi störfum. En til
þess þarf peninga sem ekki
eru til staðar. Eangelsis-
stjórínn þar, Þór Vilhjálm-
ur Pétursson, hefur lagt sig
allan fram til að ná í vinnu
fyrír fangana, en verkefni
eru fá. Astandið að þessu
leyti er miklu betra á
Litla-HraunL
t þessu sambandi vil ég
nefna að í lögum frá 1973
um fangelsi og vinnuhæli
var gert ráð fyrir þvi, að ein
og hálf milljón hið
minnsta, kæmi til bygginga
fangelsa og vinnuhæla. í
dag etu þessir peningar
eftir myntbreytingu 1980
150 þúsund krónur. Menn
geta af þessum töhim séð
að þessum málum er alltof
IftiU gaumur gefínn af
hálfu löggjafans."
„I lögum seg-
ir... “
í ritstjórnargrein 3. tölu-
blaðs 1984 málgagns
Verndar segir höfundur,
Jóna Gróa:
„Framkvæmdastjóra
Verndar heimsótti Vinnu-
hælið að Kvíabryggju fyrir
skömmu, en þangað eru
aðallega sendir ungir
menn sem að jafnaði era
að taka út sinn fyrsta dóm.
Þrátt fyrír að húsakostur
fyrír atvinnuhúsnæði sé
þar góður, er atvinna fyrir
fangana þar nánast engin.
„Það er nauðsynlegL að
menn venjist við átta
stunda vinnudag á stöðum
sem þessum, enda er það
sá dagvinnutími sem i það
minnsta tíðkast annars
staðar," sagði Vilhjálmur,
forstjórí á Kvíabryggju, en
hann er með hugmyndir
um hvernig leysa megi at-
vinnuleysið á staðnum, en
peningana vantar.
í lögum um fangelsi og
vinnuhæli frá 1973 segir:
„Veita skal úr ríkissjóði 15
milljónir króna á árí hverju
hið minnsta til byggingar
fangelsa og vinnuhæla.“ í
dag eru þessar 15 milljón-
irnar haldið verðgildi sínu,
þá lætur nærri að sú upp-
hæð væri 11 milljónir
króna í dag. Ennfremur
segir í þessum lögum: „f
vinnuhæhim er vinnu-
skylda fyrir fanga, og skal
þar séð fyrir nægu húsrými
til vinnuaðstöðu fyrir
fanga. Þar skal vera að-
staða og tæki til fjölbreyttr-
ar vinnu og til kennshi,
bæði bóklegrar og verk-
legrar. Fangar skulu fá
greidd laun fyrir vinnu sina
á hælunum og setur
dómsmálaráðherra reglur
um vinnuna og launa-
greiðslur og skal taka tillit
til arðsemi vinnunnar og
launa á almennum vinnu-
markaði, við ákvörðun
launa. Heimilt er dóms-
málaráðherra aö ákvarða
með reglugerð að ákveðinn
hundraðshluti af launum
fanga fari f skyldusparnað
og skal sú upphæð sem
þannig sparast annaðhvort
renna til fjölskyldu fang-
ans eða afhendast honum
að lokinni afplánun refs-
ingar. Setja skal nánari
reglur um framkvæmd
þessa í reghigerð. Föngum
á vinnuhæhim skal séð
fyrír aöstöðu til tómstunda-
iðkana, eftir því sem við
verður komið á hverjum
stað.“ Með lögum þessum
hefur Alþingi markaö
ákveðna stefnu í fangels-
ismáhim sem ekki hefur
náð fram að ganga.
Flestir hinna ungu
manna sem gista fangelsin
eru þangað komnir vegna
afíeiðinga neyslu víns
og/eða annarra ffkniefna,
margir þeirra hafa ekki
lokið skyldunámi, lítið ver-
ið á vinnumarkaðinum og
faríð á mis við þá reynslu
að upplifa gildi vinnunnar,
uppskeru hennar og vinnu-
gleði.
Það hlýtur að vera krafa
þjóðfélagsins að vinnuhæli
landsins standi undir nafni
og sinni skyldu lögum sam-
kvæmL þannig að þeim
ógæfumönnum sem þar
vistast nýtist refsivistin til
aðlögunar að háttum hins
frjálsa þjóðfélags."
Næst þegar þú ætlar að
kikja á eina BETU
skaltu líta tll okkar.
f Vldeospólunnl er eltt
besta úrval landsins af
bæði BETA OG VHS myndum.
VideoSpólan
Holtsqötu 1, sími:169 69
T5>íbatnat.ka2ulinn
í'if*1
*Q-iettisgötu 12-18
TOYOTA TERCEL 4x4 1983
Ljósbrúnn, 6 gira, ekinn 66 þ. km.
Útlit mjög gott. Verð 410 þús.
BMW 316 1984
Grænsans. 4ra dyra, ekinn 18 þ. km.
Verð 565 þús.
Ford Escort 1600L
Station 1985
Þýzkur, vinrauöur, akinn 4 þ. km, 5 gír-
ar, útvarp, silsallstar, grjótgrind. Veró
460 þús.
M. Benz 300 Diesel 1983
Blár (metallic), 5 cyl. beinsk. ekinn
200 þ. km. Vél nýupptekin. Útlit mjög
gott. Verð 780 þús.
Range Rover 1980
Rauöur. Ekinn aöelns 36 þ km Jeppi i
algjörum sértlokki. Verö: Tilboö. (skipti
á ódýrari).
MMC Sapporo GSL 2000 1982
Hvitur, ekinn 96 þ. km. Sjálfsk.,
vökvastýri, rafm.rúöur, álfelgur. fal-
legur bill. Verð 390 þús.
CITROÉN BX TRS 1984
Toppbill. V. 520 þús.
OPEL ASCONA 1984
Ekinn 22 þ. km. V. 480 þús.
SUBARU 4x4 1984
Ekinn 13 þ. km. V. 540 þús.
VOLVO 340 DL 1984
Ekinn 21 þ. km. V. 395 þús.
PAJERO (langur) 1985
Ekinn 10 þ. km. (þensín) V. 900 þús.
LADA SPORT 1981
Ekinn 42 þ. km. V. 220 þús.
HONDA ACCORD EX 1982
Sjáifsk. m/öllu. V. 400 þús.
RENAULT 9 GTS 1983
Blásans., 5 gíra, ekinn 46 þ. km. Út-
varp + segulb. o.fl. Verö 355 þús.
Mikil aala:
Vantar nýlega bfla é ataðinn