Morgunblaðið - 03.09.1985, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Einn af fegurstu görðum á Akranesi 1985, Esjubraut 35. Eigendur eru hjónin Sigrún Ólafsdóttir og Sigvaldi Loftsson.
Akranes:
Viðurkenningar fyrir fegurstu garða
AkraneNÍ, 29. ágúst.
FEGRUNARNEFND Akraness hefur
úthlutað verðlaunum og viðurkenn-
ingum fyrir fegurstu lóðir við íbúð-
arhús og fyrirUeki á Akranesi 1985.
Þrjár íbúðarlóðir hlutu viður-
kenningu og voru það Esjubraut 35,
eign hjónanna Sigrúnar Ólafsdótt-
ur og Sigvalda Loftssonar, Vestur-
gata 80, eign hjónanna Ingveldar
Asmundsdóttur og Ólafs Árnason-
ar og Heiðargerði 10, eign hjón-
anna Emmu Reindal og Guðna
Eyjólfssonar. Málningarþjónustan
hf. fékk viðurkenningu fyrir fegrun
og snyrtimennsku við fyrirtæki
sitt.
Oddgeir Árnason garðyrkjustjóri
á Ákranesi sagði að áhugi bæj-
arbúa fyrir snyrtingu og fegrun
umhverfisins hefði stóraukist á
undanförnum árum. Jafnframt
hefðu bæjaryfirvöld á Akranesi
aldrei veitt meiru fjármagni til
fegrunar og snyrtingar kaupstað-
arins og aldrei hefði verið eins mik-
ið gróðursett af trjáplöntum í bæn-
um og nú í sumar.
Oddgeir sagði að nú væri unnið
að því að koma upp plöntusafni af
trjá- og runnategundum á einum
stað í gróðrarstöð bæjarins. Allar
plönturnar verða merktar og gert
aðgengilegt fyrir fólk til að kynna
sér hvað best á við á hverjum stað í
bænum. „Eg tel þetta vera geysi-
lega þýðingarmikið fyrir framtíð-
ina,“ sagði Oddgeir Árnason garð-
yrkjustjóri að lokum.
JG
NYTT FRA
MITSUBISHI!
Í986 árgerðirnar verða
kynntar í byrjun september:
Þá sýnum viö:
—LANCER—
— LANCER STATION —
— TREDIA 4WD - ALDRIF -
— COLT —
— GALANT —
— PAJERO - BENSÍN/TURBO DIESEL —
— PAJERO SUPERWAGON - BENSÍN/TURBO DIESEL -
— L 300 4WD - SENDIBÍLL/MINI BUS —
— L 300 - SENDIBÍLL/MINI BUS —
— L 200 - PALLBÍLL ■ BENSÍN/DIESEL -
BÍLARNIR, SEM SELJAST MEST,
ERU FRÁ MITSUBISHI.
— 50 ára reynsla í faginu —
Samkv. skýrslu Hagstofu íslands
[hIheklahf
Laugavegi 170 -172 Sími 21240
Vestmannaeyjar:
Listamenn skreyta
veggi fisk-
vinnslustöðvarinnar
Vestmannaeyjum, 29. ájfúst.
GÓÐVIÐRIÐ, sem ríkt hefur hér í
allt sumar, hefur virkað hvetjandi á
bæjarbúa til að snyrta og fegra hús
sín og lendur og satt að segja hefur
bærinn tekið umtalsverðum stakka-
skiptum til hins betra. Húseigendur
hafa verið ötulir við að mála hús sín
og rækta garða af alúð og eigendur
fyrirtækja hafa ekki látið sitt eftir
liggja í fegrunarátaki Vestmanney-
inga. Áfram hefur verið unniö að
malbikun gatna og eru nú velflestar
götur bæjarins malbikaðar. Flokkur
manna hefur í allt sumar unnið að
fegrun og snyrtingu opinna svæða í
bænum.
Sérstaka athygli hefur vakið
framtak stóru fiskvinnslufyrir-
tækjanna sem öll hafa málað hús
sin hátt og lágt í sumar og auk
þess hafa nokkur þeirra fengið
listamenn úr Eyjum til þess að
skreyta veggi þeirra með lista-
verkum. Þetta framtak er mjög
lofsvert og er það samdóma álit
fólks að sérlega vel hafi til tekist
og af þessum verkum sé hinn
mesti bæjarsómi. Fyrir nokkrum
árum var það til siðs hér i bæ að
Ein af myndum Guðgeirs Matthíassonar á mjölgeymslu FES. T.v. er gamla
Geirseyrin, þá „hróin“, uppsátur gömlu árabátanna, Edinborgarbryggjan og
gamla Hraðfrystistöðin.
Fínir drættir
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Enn bætast við hnýsilegar
myndir frá Ö.Á.-myndböndum
úr bresku nýbylgjunni. Á
kvikmyndahátíðinni í fyrra
vakti talsverða athygli myndin
The Draughtsman’s Contract
eða Samningur dráttlistarmanns-
ins (1982) eftir einn sérstæðasta
kvikmyndagerðarmann Breta,
Peter Greenaway, og þeir sem
misstu af henni þá geta nú
skoðað hana á myndbandi. Það
er vel þess virði. Samningur
dráttlistarmannsins er einhver
undirfurðulegasta mynd um allt
og ekkert sem ég hef séð.
Herra Neville, ungur og
myndarlegur dráttlistarmaður
(Anthony Higgins) gerir
sumarið 1649 samning við hefð-
armæðgur tvær á miklu sveita-
setri, frú Herbert (Janet Suz-
man) og frú Talman (Anne Lou-
ise Lambert) um gera tólf
teikningar á tólf dögum af land-
areigninni. Jafnframt eru í
samningnum ákvæði um gagn-
kvæma kynferðislega greiða-
semi, því báðar eru frúrnar leið-
ar á loftmiklum eiginmönnum
sínum. Unir dráttlistarmaður-
inn ungi sér vel framan af enda
margt um fína drætti í um-
hverfi sem yndisþokka kvenn-
anna. En fyrr en varir fer ým-
islegt torkennilegt að flækjast
inn á myndflötinn hjá lista-
manninum og hann sjálfur upp-
götvar að hann er peð í óræðu
tafli með völd og tilfinningar
sem tekur háskalega stefnu
þegar herra Herbert snýr heim
úr ferðalagi, — liðið lík.
I þá morðgátu og fleiri gátur
myndarinnar — til dæmis inn-
komu lifandi myndastyttu — fæ
Anthony Higgins sem dráttlistar-
maður með viðsjárverðan samn-
ing.
ég satt að segja engan botn. En
þessar gátur eru svo skemmti-
lega fram settar og listilega
spunnar að Samningur drátt-
listarmannsins heldur athygli
áhorfenda óskertri allt til
skringilegra en rökréttra lykta.
Greenaway leggur persónum
sínum safaríkan bókmennta-
legan texta í munn sem leikar-
arnir kjamsa á með velþóknun,
en það er hin myndræna stíl-
færsla sem umfram allt gefur
Samningi dráttlistarmannsins
gildi. Hinir grænu og glóandi
litir í fagurlega lýstri töku-
vinnslu Curtis Clark, uppstill-
ingar leikstjórans, sem minna á
kvikmyndamálverk, spaugsam-
ur og munúðarfullur þokki í lýs-
ingunni á uppstríluðu en undir-
förulu mannlífi sveitaaðalsins,
tilkomumiklir búningar og tón-
list Michael Nymans, — þetta
eru góð spil í heillandi kvik-
myndaþraut.
Stjörnugjöf: Samningur dráttlist-
armannsins ★ ★ ★