Morgunblaðið - 03.09.1985, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
§agan af unga litla.
Ungi iitli hitti hænu mömmu.
Þá sagði Ungi iitli:
„Himinninn er að hrynja,
hæna mamma.“
Þá sagði hæna mamma:
„Hví heldur þú það, Ungi litli?‘
Þá sagði Ungi litli:
Á sýningunni Heimilið 85 í Laugardals-
höllinni kynnir ÍSFUGL enn eina nýjung,
KJÚLLETTUR úr kjúklingakjöti, raspaðar,
kryddaðar og tilbúnar á 10 mín.
Komið og reynið þessa frábæru nýjung.
ísfugl
fremstur
fugfa
Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Sími: 666103
Ályktun landsþings Landssambands framsóknarkvenna:
Kona veröi f 1. eða 2. sæti
hvers framboðslista
Framsóknarflokksins
Landsþing Landssambands fram-
sóknarkvenna var haldið aö Laugar-
vatni helgina 31. ágúst til 1. septera-
ber. Þar var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„Kona skal vera í 1. eða 2. sæti
hvers framboðslista Framsóknar-
flokksins í komandi sveitarstjórn-
ar- og alþingiskosningum. Við
uppröðun í önnur sæti framboðs-
listanna minnum við á þann yfir-
lýsta vilja Landsambands fram-
sóknarkvenna að stjórnir, nefndir,
ráð og listar á vegum flokksins
verði að helmingi skipuð konum."
í fréttatilkynningu frá lands-
þinginu segir m.a. að þingið fagni
þeim mikilvæga áfanga sem náðst
hafi í jafnréttisátt innan Fram-
sóknarflokksins með stóraukinni
þátttöku kvenna í störfum hans.
Nú þegar hafi ýmis af markmiðum
Húsavíkursamþykktarinnar
náðst, en áfram verði haldið á
sömu braut. Á næstu tveimur
árum verði gengið til sveitar-
stjórnar- og alþingiskosninga og í
tilefni af því hafi ofangreind álykt-
un verið samþykkt.
Á landsfundinum var kosinn
formaður og fulltrúar í fram-
kvæmdastjórn og landsstjórn sem
hér segir:
Formaöur.
Unnur Stefánadóttir.
Framkvæmdastjórn.
Drífa Sigfúsdóttir, Guðrún Jó-
hannsdóttir, Inga Þyri Kjartans-
dóttir, Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir.
Varamenn í framkvæmdastjórn:
Ragnheiður Sigurgrímsdóttir,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Þrúður Helgadóttir.
Landsstjórn.
Guðlaug Björnsdóttir, Dalvík,
Halldóra Jónsdóttir, Siglufirði,
Magdalena Sigurðardóttir, ísa-
firði, Ingibjörg Pálmadóttir, Akra-
nesi, Sigríður Magnúsdóttir,
Þykkvabæ, Þórdís Bergsdóttir,
Seyðisfirði.
jíVSíí ■
Ekkja Picassos
og Kjarvalsstaðir
Athugasemd frá Hannesi Davídssyni
Föstudaginn 23. ágúst sl.
hringdi til mín blaðamaður hjá
DV og vildi fá álit mitt á bréfi sem
stjórn Kjarvalsstaða hefði borist
frá Listahátið með kröfu um-
boðsmanns ekkju Picasso um að
loft á Kjarvalsstöðum yrði falið
eða því breytt á einhvern veg. Ég
sagðist ekkert hafa um málið að
segja þar sem mér væru málsatvik
ókunn. Blaðamaðurinn sagði
heimildarmann sinn formann hús-
stjórnar Kjarvalsstaða, Einar Há-
konarson, og ég mætti treysta því
er hann segði.
Laugardaginn 24. ágúst kom svo
stór fyrirsögn á baksíðu DV.
„Ekkja Picassos vill breyta Kjar-
valsstöðum". í fréttinni sem byggð
er á viðtali við Einar Hákonarson,
er sagt, „annaðhvort verði loft
sýningarsalanna falið eða breytt á
einhvern veg. Ella geti ekki af
Picasso-sýningunni orðið." Sama
dag hringdi í mig blaðamaður hjá
Morgunblaðinu og benti mér á
samstofna frétt á baksíðu Morg-
unblaðsins, þó öllu hógværari. Þar
er sagt, að umboðsmaður Picasso-
sýningarinnar Gilbert Haas hafi
ritað framkvæmdastjóra Lista-
hátíðar bréf þar sem þess er óskað,
„að reynt verði að fela loftið eða
því breytt með einhverjum hætti."
Einnig hann hafði formann hús-
stjórnar Einar Hákonarson sem
heimildarmann. Ég gat engu svar-
að þessu heldur á þeim tíma. Ég
hafði þá aðeins mánuði áður lesið
það í báðum þessum blöðum, að
Jacqueline Picasso litist vel á
Kjarvalsstaði, eða eins og hún
svaraði blaðamanni Morgunblaðs-
ins aðspurð um hvernig henni lit-
ist á aðstæður: „Salarkynnin eru
mjög góð. Sérstaklega er ég hrifin
af austursal Kjarvalsstaða.“ Þetta
var aðalfrétt á baksíðu Morgun-
blaðsins þann 28. júlí sl. Fyrirsögn
fréttarinnar var, „Líst vel á
Kjarvalsstaði“ tilfært innan til-
vitnunarmerkja. Svo var einnig
um fyrrgreindu ummælin.
í DV 29. júlí sl. var frétt um
komu Jacqueline Picasso og mögu-
leika á að hafa sýningu hér á verk-
um Picasso og segir þar: „en
Jacqueline valdi sýningunni stað í
Kjarvalssal Kjarvalsstaða. Mun
hún velja verkin sjálf og stjórna
uppsetningu þeirra."
Ékkert neikvætt orð haft eftir
henni um Kjarvalsstaði. Hún
hafði skoðað Listasafn ríkisins og
Kjarvalsstaði og tekið sína
ákvörðun. Mér þótti því fregn
laugardagsblaðanna nokkuð
„Hvergi í þessu bréfi er
sjáanlegt að dr. Haas
hafi sett fram „ósk um
að reynt verði að fela
loftið á Kjarvalsstöðum
eða því breytt með ein-
hverjum hætti“ eins og
segir í bréfi Listahátíðar
til stjórnar Kjarvals-
staða og dagsett er 20.
ágúst sl.“
furðuleg og ekki í samræmi við
ummæli Jacqueline Picasso.
Ég vissi að vísu að Einar Há-
konarson hafði beitt sér mjög í því
áhugamáli sínu að umturna
Kjarvalsstöðum, allt frá því að
hann komst í hússtjórnina, að
hann vildi rífa birtuskermana
„loftin" niður og breyta einhverju
einhvern veginn og að hann hafði
að lokum fengið leiktjaldamálar-
ann Steinþór Sigurðsson í þetta.
Athugun mín leiddi í ljós, að hús-
stjórnin hafði tímasett niðurrif
loftanna á næsta ári enda þótt
fjárveiting væri ekki fyrir fram-
kvæmdinni á fjárhagsáætlun
borgarinnar. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á kr. 9 milljónir.
Gat verið eitthvert samband
þarna á milli? Athugandi eru um-
mæli Einars Hákonarsonar, sem
höfð voru eftir í DV fréttinni:
„Það voru uppi áætlanir um að
breyta loftinu snemma á næsta
ári en þessi ósk ekkju Picasso flýt-
ir væntanlega fyrir."
Ég varð að kanna málið. Ekki
gat ég trúað því að frú Jacqueline
Picasso hefði talað sér svona þvert
um geð þegar hún lýsti ánægiu
sinni með Kjarvalssalinn. Ég
snéri mér bréflega til fram-
kvæmdastjóra Listahátíðar 26. ág-
úst sl. og fór fram á að fá afrit af
öllum bréfum er þetta mál varð-
aði. Framkvæmdastjórinn varð
góðfúslega við beiðni minni og
kvað dr. Gilbert Haas hafa skrifað
tvö bréf og fékk ég ljósrit af þeim
að því leyti er Kjarvalsstaði varð-
ar. Framkvæmdastjóri Listahá-
tíðar lýsti því yfir við mig, að um
önnur bréf væri ekki að ræða og
benti mér á að bréf það sem um
væri getið í fréttunum væri seinna
-Míele^
10%
kynningarafsláttur
meðan á sýningunni stendur
Þessar heimsþekktu vestur-þýsku
hágæða vélar eru kynntar á sýningunni
„Heimilið 85“ í Laugardalshöll
Veldu Míele annað er málamiðlun
JÓHANN ÓLAFSSON & C0
43 Sundaborg -104 Reykjavík - Sími 82644