Morgunblaðið - 03.09.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
23
öeóti'ffatfparMMuf'm f
KENWOOD C«
Byrjar útgáfu bóka
fyrir almennan mark-
að jafnt sem skóla
NÝLEGA komu út fjórar bækur frá
Iðnskólaútgáfunni og er sú fimmta
væntanleg á markaðinn í september.
Bækur þessar eru ætlaðar til
kennslu jafnframt því sem þær eru
ætlaðar almennum markaði. Bæk-
urnar eru: Ritgerðir eftir þá Hjálmar
Árnason og Baldur Sigurðsson,
Kjalnesinga saga sem Jón Böðvars-
son bjó til prentunar, Gísla saga
Súrssonar, sem Jóhanna Sveinsdótt-
ir bjó til prentunar, Áfengi eftir
Hrafn Pálsson og i vinnslu er Nú-
tímasaga Ásgeirs Ásgeirssonar.
Atli Rafn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnskólaútgáfunn-
ar, sagði á blaðamannafundi er
haldinn var til kynningar bókum
þessum, að útgáfan hefði til þessa
reynt að þjóna aðeins iðnfræðslu-
skólum, en nú væri jafnframt ætl-
unin að fara út á hinn almenna
markað. „Upphaflega var Iðn-
skólaútgáfan stofnuð, 1950, vegna
þess að aðrar bókaútgáfur fengust
sjaldan til að prenta skólaefni
vegna fyrirsjáanlegs taps á slíkri
prentun. Með tilkomu fjölbrauta-
skólanna hefur starfsemin aukist
nokkuð og nú er ætlunin að fara
að gefa út bækur einnig fyrir hinn
almenna bókamarkað. Upplag
fyrir iðnfræðsluna hefur verið allt
frá 50 eintökum upp í 500.“
Ingvar Ásmundsson, Skólastjóri
Iðnskólans í Reykjavík er formað-
ur Sambands Iðnfræðsluskóla.
Sambandið er eigandi útgáfunnar
og rekur hana, en það mynda 12
skólar: þrír iönskólar, Vélskólinn
og fjölbrautaskólar.
Hrafn Pálsson, höfundur bókar-
innar Áfengi, sagði á fundinum að
hann hefði leitast við að skrifa
bók sína í léttum dúr og sem hlut-
lausast. „Mikið er um frumupplýs-
ingar um áfengi. Bókin getur verið
handbók fyrir kennara sem vilja
ræða um áfengismá! við nemendur
sína jafnt og fyrir hinn almenna
borgara sem vill gera upp hug
sinn.“ Árni Elfar myndskreytti.
Hjálmar Árnason, annar höf-
undur Ritgerða, sagði að lengi
hefði vantað námsefni til kennslu
ritsmíða. „Bókin fjallar um frá-
gang ritgerða, uppbyggingu á at-
vinnuumsóknum og bréfum. Síðari
hluti bókarinnar er um gerð heim-
ildaritgerða."
Jón Böðvarsson bjó Kjalnesinga
sögu undir prentun og er hún
fyrsta skólaútgáfa, sem út kemur
af sögunni. Verkefni og orðskýr-
ingar eru í bókinni auk korts af
sögusviði hennar. Haukur Hall-
dórsson myndskreytti.
Gísla saga Súrssonar kom út í
skólaútgáfu og sá Jóhanna
Sveinsdóttir um það verk. í for-
mála gerir útgefandi grein fyrir
sögunni, en hún sagði á fundinum
að hún forðaðist að taka ein-
(iregna afstöðu til bókmennta-
verka, en reyndi heldur að varpa
Á myndinni eru frá vinstri: Atli Rafn Kristinsson, framkvæmdastjóri Iðn-
skólaútgáfunnar, Hjálmar Árnason, annar höfundur Ritgerða, Ásgeir Ás-
geirsson, höfundur Nútímasögu, Jón Böðvarsson, sem bjó Kjalnesingasögu
undir prentun, Jóhanna Sveinsdóttir, sem bjó Gísla Sögu Súrssonar undir
prentun, og lengst til hægri er Haukur Halldórsson, teiknari.
Iðnskólaútgáfan:
ýmsum spurningum til lesenda.
Orðskýringar og verkefni eru í
bókinni auk goðfræðilegrar nafn-
askrár í sambandi við vísur sög-
unnar. Myndir eru eftir Hauk
Halldórsson.
Ásgeir Ásgeirsson, höfundur
Nútímasögu, sagði bók sína fjalla
um tímann frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar fram til
miðs áttunda áratugar. „Þessi
tími var tími örlagaríkra atburða
er mótuðu gang heimsmála og
hversdagslíf jarðarbúa. Sérstak-
lega er fjallað um stjórnmál og
hagsögu en sneitt er hjá land-
fræðilegri niðurbútun efnisins.
Fjallað er um velmektarár Banda-
ríkjanna í alþjóðamálum, drottn-
unarskeið dollarans í alþjóðahag-
kerfinu, vinslit og samkeppni risa-
veldanna og vígbúnaðarkapp-
hlaupið er henni fylgdi. Einnig er
komið inn á góðærið mikla sem
ríkti, á Vesturlöndum á sama tíma
og efnahagsvandi þróunarland-
anna varð sífellt erfiðari. Síðar er
gert ráð fyrir að bókin verði aukin
svo hún taki til tímabilsins
1914—1984,“ sagði Ásgeir.
UMBOÐSMENN KENWOOD UM LAND ALLT:
ÓTRÚLEGA
JL-HÚSIÐ, Hringbraut 121, Reykjavík
RAFHA HF., Austurveri, Reykjavik
RAFÞJÓNUSTA SIGURD., Skagabraut 6, Akranesi
HÚSPRÝÐI, Borgarnesi
HÚSIÐ, Stykkishólmi
VERSLUN EINARS STEFÁNSSONAR, Búðardal
KAUPFÉLAG SAURBÆINGA, Skriðulandi, Dalasýslu
PÓLLINN HF„ ísafirði
VERSLUN EINARS GUÐFINNSSONAR, Bolungarvík
VERSLUN SIGURÐAR PÁLMASONAR, Hvammstanga
KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA, Blönduósi
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA, Sauðárkróki
RAFSJÁ HF„ Sauðárkróki
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA, Akureyri
GRÍMUR OG ÁRNI, Húsavík
VERSLUN SVEINS GUÐMUNDSSONAR, Egilsstöðum
ENNCO SF„ Neskaupstað
MOSFELL, Hellu
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA, Selfossi
RADtÓ- OG SJÓNVARPSÞJÓNUSTAN, Selfossi
KJARNI, Vestmannaeyjum
RAFVÖRUR, Þorlákshöfn
VERSLUNIN BÁRA, Grindavík
STAPAFELL HF„ Keflavík
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
HEKIAHF
LAUGAVEGI170 • 172 SÍMAR 11687 - 21240
Kr. 16.000 staðgreiðsla
Afborgunarskilmálar
TVEGGJA DYRA
KÆLI' OG FRYSTISKAPAR
Samt. stærð: 260 I.
Frystihólf: 45 I.
Hæö: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eöa hægri opnun.
Fullkomin viðgeröa-
og varahlutaþjónusta.
P ;
—. mmm
Heimilis- og raftækjadeild.
HEKLA HF
LAUGAVEG1170 • 172 SÍMAR 11687 ■ 21240
±
THORN
LÁGT VERD